Fréttatíminn - 17.06.2011, Page 44
44 bíó Helgin 17.-19. júní 2011
T hor fór að vísu mis-vel í fólk en mynda-sögunördar voru upp
til hópa hæstánægðir með
þrumuguðinn og forleikurinn
að X-Men-þríleiknum heppn-
aðist einnig vel. Fjórða mynd-
in um Sjóræningjana í Karab-
íska hafinu var lítið annað en
framlenging á þvældri dell-
unni í myndum tvö og þrjú
og Hangover 2 kemst hvergi
nærri bráðfyndinni fyrri
myndinni. Sumarið er þó
sem betur fer varla hálfnað
og í kortunum eru nokkrar
myndir sem eru líklegar til
að geta lyft geði bíógesta svo
um munar.
Gullkálfurinn Harry Potter
hefur sinn svanasöng í júlí í
seinni hluta Harry Potter and
the Deathly Hallows þar sem
loksins kemur að langþráðu
uppgjöri galdrastráksins og
hins illa Voldemort og eins og
lesendur bókanna um Harry
vita, ganga ekki allir heilir frá
þeim hildarleik.
Ofurhetjurnar hafa ekki
sungið sitt síðasta í sumar og
hinn rómaði Captain Amer-
ica fær nú sitt fyrsta alvöru
tækifæri í bíó í Captain Amer-
ica: First Avenger en þar segir
frá Steve Rogers sem er ekki
talinn fær um að gegna her-
þjónustu og gefur þá kost á
sér í leynilega tilraun þar sem
honum er breytt í ofurhetju
sem á eftir að láta til sín taka
í seinni heimsstyrjöldinni
þar sem hann stendur vörð
um amerísk gildi með skjöld-
inn góða sem dregur dám að
bandaríska fánanum.
Green Lantern er fulltrúi
DC Comics í bíó í sumar en
í þeirri mynd er tilrauna-
flugmaður vígður inn í hóp
sem hefur það hlutverk að
viðhalda lögum og reglum
í alheiminum. Helsta vopn
Green Lantern er grænn
hringur sem gefur honum
yfirnáttúrulega hæfileika.
Martin Campell leikstýrir
og hann kann ýmislegt fyrir
sér þegar kemur að spennu
og hasar enda á hann að baki
James Bond-myndirnar Golden-
eye og Casino Royale, Zorro-
myndirnar með Antonio
Banderas og Edge of Dark-
ness með Mel Gibson.
Pandabjörninn Po er í
miklu stuði í Kung Fu Panda
2 um þessar mundir og nú
styttist óðum í aðra fram-
haldsmynd vinsællar teikni-
myndar þegar Cars 2 dettur
í hús. Þar halda ævintýri
kappakstursbílsins Lightning
McQueen áfram og sem fyrr
talar Owen Wilson fyrir
hetjuna. Nú fer McQueen til
útlanda ásamt félaga sínum til
þess að keppa í heimsmeist-
aramóti en ferðalagið tekur
óvænta stefnu þegar félaginn
flækist í alþjóðlegt njósnamál.
James Franco, Brian Cox
og Andy Serkis láta til sín
taka í enn einni Apaplánetu-
myndinni en hér er litið fram
hjá Planet of the Apes-klúðri
Tims Burton. Myndin ger-
ist í San Francisco sam-
tímans þar sem tilraun með
erfðabreytingar á öpum fer
úrskeiðis þannig að til átaka
kemur milli apa og mannfólks
um yfirráð á jörðinni.
Cowboys and Aliens er sú
mynd sem beðið er eftir með
einna mestri eftirvæntingu
en í henni býður leikstjórinn
Jon Favreu upp á kúrekahas-
ar með geimverum þar sem
Daniel Craig og Harrison
Ford munda sexhleypurnar
í Arizona árið 1873 og verjast
innrásarher utan úr geimnum.
Góðkunningjar nokkurra
kynslóða barna, Strumparnir,
komast í hann krappan í The
Smurfs þegar Kjartan galdra-
kall flæmir þá úr þorpinu sínu
og alla leið í mannheima inn í
miðjan Central Park þar sem
þeir þurfa að finna leið heim
áður en Kjartan nær í skottið
á þeim.
bíósumarið bráðum kemur beTri Tíð frumsýnd
Galdrauppgjör og geimkúrekar
Bíósumarið hefur ekki verið neitt sérstaklega sólríkt og rétt eins og veðurblíðan hefur látið bíða
eftir sér hafa myndir sem væntingar voru bundnar við klikkað og fáar eftirminnilegar myndir
hafa dúkkað upp. Enn sem komið er eru það helst ofurhetjur úr Marvel-heiminum sem hafa
staðið fyrir sínu.
Í raun mega það teljast undur og stórmerki að ekki sé
fyrir löngu búið að gera bíómynd um flakkarann grjót-
harða, Jack Reacher, þar sem bækur Lee Child um
kappann eru sérstaklega bíóvænar. Reacher er líka karl-
menni í sama hörkuflokki og gæjar eins og James Bond
og Jack Bauer og er líklegur til að trekkja vel að í bíó.
Nú er útlit fyrir að Reacher fari loks að birtast í bíó
en sjálfsagt varpa áform Toms Cruise um að leika
töffarann nokkrum skugga á gleði aðdáenda Reachers.
Reacher er um tveggja metra hátt vöðvabúnt, fyrrver-
andi herlögreglumaður sem þvælist stefnulaust um
Bandaríkin og lendir í útistöðum og hörku átökum við
glæpahyski á hverjum áfangastað.
Cruise er þess vegna víðs fjarri því að vera fyrsti mað-
urinn sem fólk getur séð fyrir sér túlka Reacher, sem er
frekar á færi manna á borð við Jason Statham.
Framleiðslufyrirtæki Cruise tryggði sér hins vegar
kvikmyndaréttinn á níundu Reacher-bókinni, One Shot,
árið 2005. Vinna er hafin við handritið og Cruise hefur
lýst áhuga sínum á að leika aðalhlutverkið.
Neeson rís upp
Liam Neeson fór mikinn
í Batman Begins þar sem
hann lék skúrkinn Ra’s Al
Ghul. Allt benti til þess að
Batman hefði tekist að
koma illmenninu í hel í lok
myndarinnar en ýmislegt
ýtir nú undir þann grun að
Ra’s Al Ghul sé ekki allur.
Orðrómur er nefnilega
kominn á kreik um að
Neeson hafi sést við tökur á
þriðju Batman-mynd Chri-
stophers Nolan, The Dark
Knight Rises. Hvort Neeson
birtist í endurliti eða
er í raun upprisinn
liggur ekki fyrir en
áður var vitað að Josh
Pence, sem lék Tyler
Winklevoss í Social
Network, myndi leika
Ra’s Al Ghul ungan í
nýju myndinni.
Spielberg
pælir enn í
risaeðlum
Jurassic Park-myndirnar
sem runnu á sínum tíma
undan rifjum Stevens
Spielberg urðu þrjár en
ekkert hefur spurst til
klónuðu risaeðlanna í tíu ár
þótt af og til hafi hugmyndir
um fjórðu myndina dúkkað
upp. Nú er enn eina ferðina
komin hreyfing á málið þar
sem sjálfur Spielberg og
Mark Protosevich, hand-
ritshöfundur I am Legend
með Will Smith, eru
farnir að kasta á milli sín
hugmyndum um Jurassic
park 4.
Cowboys
and Aliens
er sú mynd
sem beðið
er eftir
með einna
mestri eftir-
væntingu
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Gamli jaxlinn Harrison Ford og hinn grjótharði Bond-leikari Daniel Craig þurfa að snúa bökum saman þegar geimverur ráðast á
Arizona á tímum villta vestursins.
Capatain
America fær loks
að láta ljós sitt
skína í alvöru
bíómynd.
Cruise vill
vera Reacher
Tom Cruise hefur látið til sín
taka í hasarmyndum en getur
hann túlkað Jack Reacher?
Í Super 8 leiða þeir saman hesta sína
Steven Spielberg og J.J. Abrams.
Abrams (Cloverfield, Star Trek, Lost,
Fringe) skrifar og leikstýrir en Spielberg
framleiðir. Myndin gerist í smábæ í Ohio
árið 1979. Nokkrir krakkar, sem eru að
leika sér með Super 8-kvikmyndatökuvél
verða vitni að lestarslysi þegar pallbíl
er ekið upp á brautarteina beint í veg
fyrir lest.
Krakkarnir sjá eitthvað óútskýranlegt
og dularfullt hverfa frá lestarflakinu.
Herinn er fljótur á vettvang, sem bendir
til þess að farmur lestarinnar hafi ekki
verið neitt venjulegur. Í kjölfarið fara
dularfullir atburðir að gerast í bænum.
Allir hundar yfirgefa svæðið og fólk
byrjar að hverfa. Lögreglustjórinn
stendur ráðþrota en þrettán ára sonur
hans, sem hafði verið einn þeirra sem
urðu vitni að slysinu, ákveður að rannska
málið ásamt vinum sínum.
Aðrir miðlar: Imdb: 8,1, Rotten
Tomatoes: 83%, Metacritic: 72.
Dularfullt lestarslys
Krakkarnir verða vitni að
lestarslysi sem dregur dilk
á eftir sér.
Expendables 2
mjakast í rétta átt
Vonir margra um að fram-
hald verði á testósterón-
veislunni The Expendables, sem
Sylvester Stallone bauð til með
harðjöxlunum Jason Statham,
Mickey Rourke, Jet Li, Arnold
Schwarzenegger, Bruce Willis
og fleiri góðum mönnum, eru
farnar að glæðast. Stallone
hafði áður lýst því yfir að hann
væri ekki til í að leikstýra fram-
haldsmynd en myndi leika og
taka þátt í handritsgerð.
Simon West hefur verið fenginn
til þess að taka leikstjórnina að
sér en hann kann sitthvað fyrir
Stallone er til í
aðra umferð af
The Expendables.
sér þegar kemur að spreng-
ingum og byssulátum þar sem
hann á að baki myndir eins og
The Mechanic með Statham
og Con Air þar sem smalað var
saman harðhausum úr ýmsum
áttum, ekki ósvipað og í The
Expendables.
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
VEIÐIKORTIÐ FÆST Á N1