Fréttatíminn - 17.06.2011, Side 54
Rúllaði húsmóðurinni upp
Leik- og söngkonan Selma Björnsdóttir steig á svið í Borgar-
leikhúsinu á fimmtudagskvöld þar sem hún leysti af Nínu
Dögg Filippusdóttur í krefjandi hlutverki húsmóðurinnar í
samnefndu Vesturportsstykki. Nína Dögg er upptekin við
tökur á Heimsenda, nýrri sjónvarpsþáttaseríu
sem Ragnar Bragason leikstýrir. Þar fyrir
utan er Nína Dögg með barni og kúlan er farin
að láta sjá sig. Selma stökk til með stuttum
fyrirvara og fékk lítinn tíma til að undirbúa sig
en þótti standa sig með mikilli prýði. Selma á tvær
sýningar eftir fyrir sumarfrí og verkið heldur svo
áfram í haust. Selma er með fleiri járn í eld-
inum því hún mun leikstýra Vesalingunum
sem verður stærsta sýning Þjóðleikhúss-
ins á næsta leikári.
Maður
kastar
hlutum
fastar með
höndunum
heldur en
úr þessari
byssu.
R únar Steinn Rúnarsson var á leið heim úr útskriftarferð með
skólafélögum sínum úr Versló þegar
hann ákvað að losa sig við smá-
mynt á flugvellinum og keypti sér
teygjubyssu merkta Malaga. Þessi
ákvörðun reyndist honum kostnaðar-
söm þar sem íslensk vopnalög banna
innflutning á teygjubyssum.
„Ég tók hana með mér í flug-
vélina úti en þegar ég fór í gegnum
tollinn á Íslandi var mér sagt að það
sé stranglega bannað að koma með
hana til landsins. Byssan var gerð
upptæk og ég var látinn borga 10.000
króna sekt. “
Þar sem Rúnar átti ekki í neinum
vandræðum með að komast með
teygjubyssuna frá Spáni undrast
hann hörð viðbrögð við henni hér
heima. „Þeir vísuðu bara í vopnalög
á Íslandi og ég spurði þá hvort ég
mætti fara með hættulegri vopn í
flugvélar en ég mætti vera með á
Íslandi. Og þeir svöruðu því bara
játandi. Þetta er náttúrlega alveg fá-
ránlegt. Maður kastar hlutum fastar
með höndunum heldur en úr þessari
byssu. Eftir að ég var búinn að borga
spurði ég hvort ég mætti ekki taka
teygjubyssuna með mér en það var
ekki inni í myndinni.“
Starfsmaður hjá Tollinum í Kefla-
vík segir ekki mikið um að teygju-
byssur séu gerðar upptækar hjá
komufarþegum en þó komi jafnan
einhver slæðingur af þeim frá Spáni.
Hann segir íslensk vopnalög ströng
og að samkvæmt þeim beri toll-
vörðum skylda til að leggja hald á
slíkan varning. Í tilfellum sem þessu
sé fólki boðið að ljúka málinu á
staðnum með sektargreiðslu en því
sé vitaskuld frjálst að fara með málið
fyrir dómstóla. -þþ
vopnabuRðuR Keypti minjagRip á Spáni
nanna áRnadóttiR HRyllingSSaga fyRiR feRðamenn
Uppvakningar herja
á Vesturbæinn
Til dæmis
grípur einn
uppvakning-
anna hálffulla
flösku af Lýsi
og þá er gerð
nánari grein
fyrir sögu og
gildi Lýsis í ís-
lenskri menn-
ingu.
Þ ótt fjölskylda mín búi öll á Íslandi hef ég að mestu eytt ævinni er-lendis. Mamma er hjúkrunarkona
og er sú manngerð sem verður óróleg
ef hún er of lengi á sama stað þannig
að við fluttum oft á milli landa. Ég fékk
svo þessa bakteríu og hef verið mikið á
flakki,“ segir Nanna sem býr nú í Kaup-
mannahöfn. Eftir hrun ákvað hún að
flytja heim frá London og var hér í rúm
tvö ár. Hún segist hafa notið hverrar mín-
útu og ástandið hérna hafi verið henni
innblástur fyrir bókina.
Ósköpin í sögu Nönnu byrja þegar
verið er að reisa nýtt orkuver í nágrenni
Reykjavíkur. Brennisteinsgufur leka út
í andrúmsloftið og breyta iðnaðarmönn-
unum í uppvakninga. Áður en nokkur
nær að átta sig á hvað er í gangi flæða
uppvakningar yfir landið. Sagan fylgir
svo hópi íslensks utangarðsfólks sem
reynir að halda lífi og limum í Vestur-
bænum.
„Þetta er ferðamannabók að því leyti
að í gegnum söguna koma fyrir þættir úr
íslenskri sögu og menningu sem eru svo
skýrðir betur í neðanmálsgreinum. Til
dæmis grípur einn uppvakninganna hálf-
fulla flösku af Lýsi og þá er gerð nánari
grein fyrir sögu og gildi Lýsis í íslenskri
menningu. Þarna eru líka íslenskar
mataruppskriftir og lagalisti sem aðal-
persónan, Barbara, setur saman.“
Nanna segir að ferðamenn geti lesið
bókina sem skáldsögu sem upplýsi þá
um leið um menningu okkar og tónlist,
hvar þeir eigi að borða og hluta af nátt-
úru landsins. „Hvað Íslendinga varðar
þá vona ég að þeir geti lesið bókina sér
til skemmtunar. Þeir sem eru vel að sér
í zombie-myndum ættu síðan að geta
fundið alls konar litla brandara og vís-
anir í þessa kvikmyndagrein. En það er
bara eitthvað fyrir algera nörda eins og
mig.“
Nanna segir hugmyndina að sög-
unni hafa mallað í kollinum á sér árum
saman. „Við pabbi erum sjúk í hryllings-
myndir og höfum mjög lengi leikið okk-
ur við að kokka upp uppvakningahryll-
ing í Reykjavík. Ég byrjaði samt ekki að
móta þessa sögu fyrr en í nóvember í
fyrra. Fyrst ætlaði ég bara að skila henni
inn sem smásögu á námskeiði í ritlist
sem ég sat í Háskóla Íslands en svo hélt
ég bara áfram að skrifa og skrifa.“
toti@frettatiminn.is
Tekinn með teygjubyssu í tollinum
Bókaútgáfan Ókeibæ Kur gefur í júlí út bókina Zombie Iceland eftir Nönnu Árnadóttur. Nanna er Ís-
lendingur en hefur nánast alla sína tíð búið í útlöndum og skrifar því á ensku. Hún er forfallinn aðdáandi
hryllingsmynda og í bókinni ráðast uppvakningar á Vesturbæinn í Reykjavík. Í söguna fléttar hún upp-
lýsingar um land og þjóð sem ætlað er að dýpka skilning erlendra ferðamanna á Íslendingum.
Gosi fær liðsauka
Tökur eru hafnar á annarri
þáttaröð gamanþáttanna
Hæ Gosi sem Skjár einn
sýnir. Bræðurnir Árni Pétur
og Kjartan Guðjónssynir
fara þar fremstir í flokki og
eiginkonur persóna þeirra
eru leiknar af Maríu Ell-
ingsen og Helgu Brögu.
Fjöldi nýrra andlita munu
birtast í nýju þáttunum en
meðal leikara sem gengið
hafa til liðs við hópinn eru
Björn Jörundur, Dóri DNA,
Nína Dögg Filippusdóttir,
Guðmundur Ólafsson og
Gísli Örn Garðarsson.
Jóhannes leysir Helga af
Kompáskappinn Jóhannes Kr. Kristjáns-
son vakti mikla athygli með ítarlegri úttekt
sinni á læknadópi og ungum sprautufíklum
í Kastljósi. Jóhannes er ekki horfinn af
skjánum og verður viðloðandi Kastljós
eitthvað áfram. Fyrst um sinn leysir hann af
félaga sinn Helga Seljan, sem er í veikinda-
fríi eftir að hann fékk fyrir hjartað. Vonir
standa síðan til að Jóhannes haldi áfram
eftir að Helgi snýr aftur enda gríðarlega
öflugur og harður fréttamaður.
Þegar Zombie Iceland var tilbúin benti frænka Nönnu henni á að sagan væri örugglega nógu geggjuð fyrir Hugleik og Ólafíu hjá Ókeibæ Kur.
Rúnar Steinn var að
koma úr umtalaðri
útskriftarferð til Costa
del Sol en hótel-
starfsfólk og aðrir
gestir kvörtuðu yfir
framgöngu Íslend-
inganna. „Ég held að
þetta hafi ekki verið
neitt óvenjuleg út-
skriftarferð. Maturinn
var frekar vondur en
annars var þetta bara
fínt hótel,“ segir Rún-
ar og telur umræður á
netinu um ferðina ekki
alveg í samræmi við
raunveruleikann.
www.rit.is
FALLEG OG FRÆÐANDI
bók fyrir garðáhugafólk
Fæst á öllum helstu bóksölustöðum um land allt. – Pöntunarsími 578-4800.
54 dægurmál Helgin 17.-19. júní 2011