Heimilisritið - 01.01.1947, Síða 48
TÍZKA
• —
. ■■ -1)
Iburðarmeiri og skrautlegri
kvenfatnaður
EIN ÞEKKT tízkukona sagði
um daginn í blaðaviðtali í New
York, að kvenfólk yrði að gera sér
það Ijóst, að nú væri stríðið búið
og því engin afsökun lengur fyrir
því að ganga í óbrotnum og lit-
lausum fötum'
Þrátt fyrir látlaust nöldur um
skort á öllum sviðum, hvað klæðn-
að snertir, þá er það staðreynd, að
frá því löngu fyrir stríð hafa ekki
sézt eins íburðarmikil föt í New
^York.og nú. Allir kjólar, hvort sem
þeir eru úr silki eða ull, eru hlaðnir
skrauti, svo sem Jjöðrum, gljáplöt-
um og steinum. Mörg þúsund
metrar af ekta silki, sem áður var
notað í fallhlífar fyrir herinn, er nú
selt fyrir of fjár í öllum helztu
verzlunarhúsum borgarinnar.
Sophie sýnir kjöldkjóla, sem öll
borgin talar um. Notar hún ein-
göngu í þá ekta silki. Er þetta í
fyrsta skipti eftir stríð, sem kvöld-
kjólar eru viðhafnarmiklir. Mynd-
in til hægri sýnir einn af kjólunum
á sýningu hjá Sophie. Er liann úr
kampavínslituðu ekta gljásilki yf-
irsaumaður svörtum steinum og
perlum.
46
HEIMILISRITIÐ