Heimilisritið - 01.09.1947, Page 57

Heimilisritið - 01.09.1947, Page 57
Hverju á hér við að bæta? Er ég les það er ég hef skrifað virðist mér ég hafi sagt frá svo ofur- litlu af öllu því, sem á daga mína hefur drifið. En góður Guð sér um að menn geti gleymt. Ég veit að fyrir þann hæfileika eiga menn að vera þakk- látir. Hefði ég munað alla viðburði hörmungaáranna myndi ég ekki hafa haldið lífinu eftir björgunina. Ég vona ennþá að einhverjir ætt- ingja minna séu á lífi. En ég veit að þeh- elztu og yngstu eru dánir. Ég man, að móðir mín fór einu sinn í viku upp í kirkjugarðinn að leiði ömmu. Ég fór oftast með mömmu. í kirkjugarðinum ríkti kyrrð og fegurð. Við vissum hvar amma hvíldi. En faðir minn og móðir, systkini og flestir ættingj- ar mínir eru afmáðir. Enginn veit hvar þeir hvíla. Þeir hvíla meðal þúsunda er flej'gt var í samgraf- irnar. Eftir dauðann eru þeir nafn- lausir og lítilsvirtir. — Heima í þorpinu mínu var bílstjóri, sem var geðveikur. Geð- veiki hans kom í ljós á þann hátt, að hann veiddi dýr, svo sem mýs fugla og ketti. Úr dýrunum kvaldi hann svo lífið á níðingslegan hátt. Maðurinn hafði lengi hagað sér þannig áður en hann var látinn á hæli. Okkur börnin hryllti við þessum manni. Hann var í okkar augum eins og eitnrslanga, og við forðuðumst hann. En við gátum ekki hatað .hann, vegna þess að hann var ruglaður. Ég álít að margir fangaverðir, þeir er ég hef kynnst, séu líkir þess- um bílstjóra. .Þeir unnu þó ennþá meiri níðingsverk en hann. En þeir hljóta að hafa verið geðveikir. Og er hægt að ásaka menn fyrir það þótt þeir séu veikir? — Líklega ekki fremur en fyrir það. að fæðast með svart hár og bogið nef. En það er von um að lækna megi veikindi, ef það er ekki hafist handa of seint. Það er vegna þess, sem ég vil verða læknir. Ég vil hjálpa til þess að bjarga mannslífum. E N D I R Ókunnar raddir Taugalæknir var að rannsaka andlega líðan hermanns nokkurs. ..Heyrið þér nokkurn tíma raddir, án þess að vita, hver talar eða hvaðan?“ spurði hann. „Já, st.undum“. „Hvenær helzt?“ „Þegar ég svara í síma“. HEIMILISRITIÐ 55

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.