Heimilisritið - 01.01.1948, Page 6
eiga heitmey í báti föður síns og
hefði enga aðra í huga. Af þess-
um sökum átti hin volduga
fiskimannskona marga dapra
stund og hún gætti dóttur sinn-
ar vel fyrir tataranum. Já ekki
var írostið úr jörðinni fyrr en
hún sendi Alexander langvegu til
að stinga upp mó og hélt honum
þannig í hæfilegri fjarlægð frá
bænum. En þá söng Alexander
óskiljanlega söngva í mógröfun-
um og var afkastamikill auk
jæss. Hann var stór og glaðvær
heiðingi. Leonarda átti sjaldan
orðastað við hann.
Leonarda átti sjaldan orðastað
við hann nei og gerði sig eigi
heldur seka um neitt annað, hún
mundi að lnin var dóttir Jens
Olai. En A orið er mjög viðsjár-
verð árstíð, og þegar auk þess
tók að hitna í veðri urðu augu
Alexanders sem stjörnur og hann
kom stundum óþarflega nærri
Leonördu þegar hann átti leið
framhjá lienni. IJún hafði á ó-
skiljanlegan hátt týnt ýmsum
munum úr kistu sinni, enda þótt
læsingin væri í ágætu lagi. Það
kom í ljós að kistubotninn var
laus og Leonarda bar á Alexand-
er að hafa losað hann.
Nei ég er saklaus af því, sagði
hann. Ég reyni kannski að hafa
uppi á mununum ef þú skilur
loftsdyrnar eftir opnar í kvöld
svo ég komist inn til þín.
Hún leit til hans og svaraði
um hæl viðstöðulaust:
Viltu endilega láta kasta þér á
dyr á morgunF
En tatarinn er svo leikinn í
því að tala sínu máli og hann
kann svo mörg ísmeygileg lodd-
arabrögð með sinn rauða imúnn
og sína brúnu húð og með augun
sín. Og auk þess er hann ófyrir-
leitinn karl í ástamálum.
Daginn eftir sat Leonarda úti
á hlaði og batt skóþveng sinn og
Alexander bar þar að. Hann
sagði:
Lofaðu mér nú að vera hérna
samt ef þú getur notast við mig
við mótekjuna. Og ég skal aldr-
ei aftur segja það sem ég sagði.
Ilún skortaði augunum til
hans, Jæssi fáu orð höfðu kynleg
áhrif á hana. Og hann hafði tekið
ofan húfuna og hárið hékk svo
umkomuleysislega niður í augu
hans og rauðu varirnar voru svo
lokkandi. Leonarda svaraði:
Jæja við getum reynt.
Hún la'ut yfir skóþvenginn og
var orðin kafrjóð.
En tatarinn vissi áreiðanlega
hvað hann gerði þegar hann upp-
hóf ungu stúlkuna og bað hana
að gera sér hann að góðu við
mótekjuna. Hann vildi skjalla
liana þótt hann vissi fullvel að
það var ekki hún, lieldur móð-
ir hennar sem hafði öll ráð á
heimilinu.
4
HEIMILISRITIÐ