Heimilisritið - 01.01.1948, Síða 25

Heimilisritið - 01.01.1948, Síða 25
alltaf sundur alla ánamaðka, sem hann náði í, og kyrkti einu sinni tíkarkvikindi í greip sinni, saklaust dýrið, sem ekkert inein hafði gert honum, hann fékk líka borgað fyrir það. Ég skal segja þér, livernig það var. Enn verður maðurinn þögull. Iíann virðist ekki ætla sér að halda áfram sögunni. Stúlkan tekur þessú hiki háhs engan veg- inn, kannski langar hana ekki mikið til að heyra söguna af frænda hans; hún lítur á hann andartak, í augum hennar er ekki vottur af eftirvæntingu eða spurn, öllu heldur deyfð, kannski þreyta. En liann veit hún muni hlusta á orð hans. Og hann held- ur áfram. — Já. En hefndin kom. Hefnd- in. Undarlegur glampi í augum mannsins. — Hann var kyrktur sjálfur. Einu sinni, þegar hann var á ferðalagi á skipi úti fyrir Cap Afatapan. Hann. stóð á dekkinu að kveldi til og horfði á mána- glitið á hafinu. Þetta var uppi á efsta þilfari, aftarlega, og allt var hljótt, jafnvel liljóðara en það er liér nú. Þá veit hann ekki fyrr en að honum kemur mað- ur, sem reyndist vera Grikki, eða kvaðst vera það, og var brjál- aður, skal ég segja þér, mjög mikið brjálaður. Hann víkur sér að honum og fer að tala við hann, og frændi minn sér ekki, að maðurinn er brjálaður, því hann var sauðheimskur, þótt hann hefði ánægju af að kvelja skepnur. Jæja, innan lítillar stnndar býður hann vini mín- um, — frænda mínum sko, — býður honum sígarettu, og hann þiggur sígarettuna .. . Og hann býður honum að kveikja í sígar- ettunni og frændi minn þiggur það. — En þegar hann ber eld- inn upp að sígarettunni, sleppir hann eldspýtunni, opnar greip sína og tekur fvrir kverkar vini mínum — svona, sko, svona ha! — svona — nei, hahahaha, hel- vítið átti fyrir því, — hann var bara maður, jarðarormur, sem hafði slitið sundur aðra orma, —- svona tók hann, finnurðu til? — — finnurðu ekki til, ha? hahaha haha!-aaaaaaaaa! 3. Stúlkunni tekst að losna úr greip mannsins. Hlátur hans deyr út. — í sogandi hvæsi. Eitt langt, dimmt a — Hún þýtur upp af bekknum, hleypur út úr garðinum og út eftir sandstígnum. Allar dúfurnar á gangstéttinni hefja sig skelkaðar til flugs. (O.sló oij Stokkhólmi í sept. 191,6). HEIMILISRITIÐ 23

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.