Heimilisritið - 01.01.1948, Side 30

Heimilisritið - 01.01.1948, Side 30
— lJað þýðir þá nokkuð að setja von sína á það! Það var raunar örlítil von, þó aðeins örlítil, en þegar Christine var farin til vinnu sinnar, hleraði Ellen ósjálfrátt eítir fótataki póstþjónsins meðan hún sýslaði við hússtörfin. Hann kom um þrjúleytið og afhenti nokkur póstkort, en ekkert frá Lissie frænku. Ellen fór út til að gera innkaup. Hún keypti ögn af möndlum og rúsínum, ódýra flösku aí Sherry, nokkrar appelsínur og fíkjur. Og svo hætti hún á að bruðla nokkrum krónum fyrir hvellhettur, sem hún ætlaði að hafa til að skreyta borðið með. Þegar Christine kom heim seint um kvöldið, þreytt og von- svikin yfir að ekkert skyldi liafa borizt frá Lissie frænku, lá henni við að tárast yfir hvellhettunum. — Mamma, þær eru svo fá- tæklegar! Og þær eru ekki ætlað- ar fyrir fullorðið fólk. Af hverju keyptirðu ekki heldur blóm? Eða fáein glös; þau, sem við eigum, eru öll ósamstæð! Þú getur ekki verið þekkt fyrir að láta þessar livellhettur á borðið! — Nú jæja, ef þér finnst það ekki — í SÖMU ANDRÁ komu þau Brian og Aliee, og Ellen flýtti sér að bjóða þau velkomin. 28 Hvellhelturnar gleymdust, Ellen hafði eignast nýja „dóttur", í splunkunýjum fötum og málaða eftir nýjustu tízku. Án efa dá- fríð stúlka þrátt fyrir allt, en — þessar nýmóðins ungu stúlkur voru allar svo harðneskjulegar. llarðar sem stál! Morguninn eftir vaknaði Ell- en við það, að vekjarklukkan hringdi. Ilún flýtti sér á fætur, hún hafði tvo gesti, og auk þess ætlaði Hugo að koma til mið- degisverðar. Hún fór niður í morgunsloppn- um til að hita te, og brátt var öll fjölskyldan komin á fætur. Póstþjónninn kom nokkru síðar, og meðal annars hafði hann með- ferðis bréf frá Lissie frænku. — Ef hún sendir mér eitthvað sem varið er í, fer ég bakdyra- megin í verzlunina, fæ þá til að hleypa mér inn og tek eitthvað út í vöruskemmunni--------Æ, Drottinn minn, fimm shillingar! Christine gekk hægt inn í svefnherbergið sitt. Hún saum- aði nýjan kraga á síðdegiskjól- inn sinn og snyrti sig sem bezl liún gat. Brian og Alice hurfu inn í dagstofuna og lokuðu á eftir sér, Ellen bjó til matinn og lagði á borðið, en maður henn- ar tók sér skemmtigöngu á með- an og hafði hundinn með sér. Dúkurinn var snjáður, en drif- hvítur — og ósamstæð glösin HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.