Heimilisritið - 01.01.1948, Síða 32

Heimilisritið - 01.01.1948, Síða 32
ITugo tók við hridgnura af Alicc og skoðaði hann. Já, liann var sannarlegá orðin slitinn. Máhnurinn hafði sorfist af margra vikna, mánaða, já, ára striti. Hamingja, ást og gleði fjölskyldunnar var þessu sliti að þakka, en á það minntist Ellen Herrick ekki einu orði. Hugo fannst hun vera einhver geðþekkasta kona, sem hann hafði kynnst, og hann sá, að Christine líktist móður sinni. — Nei, þér megið ekki sam- þykkja að maðurinn yðar kaupi handa yður nýjan hring, frú Herrick, sagði hann. Það geta allir keypt sér nýja giftingar- hringa, en svona hring er ekki hægt að kaupa fyrir peninga! Hann smeygði hriugnum upp á fingur Christine, og brosti til móður hennar. Hann gæti gert það sem verra var en að giftast Christine. Hann hftfði alltaf verið ástfanginn af henni — hún var svo viðmóts- þýð. En nú, þegar hann hafði séð heimili hennar, og móður henri- ar — lækniskona þurfti einmitt að vera af þessuin sterka. fín- gerða toga spunnin, eins og Ell- en Herrick. Hjarta Christine söng af gleði. Hugo er dásamlegur! Hún greip eina hvellhettuna. — Taktu í á móti mér, pabþi! Þau sprengdu allar hvellhett- urnar, og úr þeim duttu ýmsir smáhlutir — bréfhúfur, orðs- kviðaseðlar, tinhringar og bláir skrautmunir úr gleri. Það ríkti almenn kátína í stofunni. Gestir og heimafólk hlógu og brutu hnetur, en enginn fann neina orð- sendingu frá ungfrú Buckhaven, né heldur dreymdi þau um, að ungfrúin hefði lagt áritað nafn- spjald í eina af hvellhettunum. Xokkru síðar, þegar þær Ell- en og Alice voru að hita te í eldhúsinu, kom Christine út úr dagstofunni. — Mamma, Hugó var að biðja mig að aka með sér til Folkestone og verða þar þangað til annað kvöld. (), mámma, hvað á ég' að gera? Eg get ekki farið —það er ekki hægt. Eg hef engin föt til að vera í! Enginn hvatti Alice til þess, enginn bjóst við því af Alice, en hún leiddi Christine up á loft og lánaði henni föt af 'sér. Nýjú kápuna sína, hattinn, sém við hana átti, kvöldkjól, sem Alice hafði sjálf ætlað að vera í um kvöldið, nýja sokka, silkinátt- kjól.— — — Enga heimsku! Auðvitað þiggurðu það, sagði Alice vin- gjarnlega. Það gerir hvorki til né frá þótt ég sé einu 'sinni á æv- inni ekki klædd samkvæmt nýj- ustu tízku. Eg á hann Brian minn núna, og að eilífu. 30 HEIMILISEITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.