Heimilisritið - 01.01.1948, Síða 37

Heimilisritið - 01.01.1948, Síða 37
Mynd 3 Mynd 4 Þafi œtti auSvitað að vera vandalítið fyrir stúlku, sem hefur óaðfinnanlegt vaxt- arlag, að velja sér kjól. Aðalatriðið er að lianu fari vel. en þó þyrfti jafnframt að ka])pkosta, að hann eigi vel við litarluitt hennar og persónuleika. En það er nú einu sinni svo, að flestar konur hafa ein- hver líkamslýli. Þau má samt venjulega hylja að meira eða minna leyti, með ein- löldiim ráðum, ef hugvit og smekkx isi eru f.vrir hendi. Tökum til diemis mjög grnnna stúlku, sem klæðist þröngu og aðskornu pilsi (sbr. mynd 1). Ef til vill er hún einnig í þunnri og þröngri blússu, svo að olnbogarnir standa eins og horn út í loftið, ef hún beygir þa, og brjóstin sýnast ennþá inn- fallnari en þau eru í rnun og veru. Nei, vitaskuld á hún að vera í víðum flikum úr þykku efni og með fellingum (sbr. mynd i). Auk þess getur hún fitað sig með réttu mataræði og fengið útþanið brjósthol með sérstökum líkamsæfingum. Holdugar stúlkur geta einnig klælt af sér fituna.i til mikilla muua. Það er því miður alltof algengt að sjá þær í svo þröngum kjól, að spikið pokar út hér og þar. og þrýstir svo á kjólaefnið, að maður er á milli vonar og ótta um að hann rifni þá og þegar utan af þeim. Auðvitað verða þær að gæta þess aiV kjólarnir séu hæfilega víðir. Þær skulu varast að ganga i kjólum úr salíni, flaueli og loðnu ullarefni; ennfremui úr stórrósóttu og þverröndóttu efni. I stað )>ess ættu ))ær að ganga í flíkum úr fremur þunnu, dökk- leitu efni, með fíngerðum röndum, ]óð- réttum eða því sem næst. Þær geta og megrað sig með því að stunda hollar íþróttii' og forðast fitandi mat. Það tekst með svolítilli ))olinmæði! Á mynd 3 sést stúlka með mjótt og langt andlit. Hvað gerir hún við þvír Ekkert? Jú. hið gagnstæða við það sem hún ætti að gera. Hvers vegna skyldi enginn hafa sagt henni, að það fari henni ekki vel, að skipta í miðju og láta hárið lat'a niður með vöngunum, og að hún ætti aldrei framar að setja upp þessa löngu erynalokka, sem hún er með? A mynd 4 er sama stúlkan. Það er erfitl að þekkja hana aflur. Iiún hefur gert ótal tilraunir með, hvernig gréiðsla færi henni bezt, og loks lagt það á |)ann veg, sem fer henni ágætlega. I stað þess að vera í flegnum kjól hefur hún nú fengið sér annan upp í háls, og það gerir sitt til þess að andlitið sýnist styttra. Loks gengur hún nú með kringlótta e.vrnarlokka, en hefur kastað hinum út í yztu myrkur. HEIMILISRITIÐ 35

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.