Heimilisritið - 01.01.1948, Blaðsíða 40
dyrahandfanginu, þegar hurð-
inni var skyndilega hrundið upp,
og hann stóð augliti til auglitis
við ungfrú Odile Campanat.
„Eruð þér hér? Hvernig
stendur á því?“
„Það skal ég skýra fyrir yður,
eftir að þér eruð búinn að segja
mér, hvort þetta veldur yður
fremur undrunar en gleði“.
„Eg er himinlifandi“.
„Agætt, komið þér þá“.
Og þau tvö, sem einu sinni
höfðu dansað saman, gengn nú
inn í saumastofuna, og þar sagði
lnin honum þetta:
„Þér eruð nú, kæri herra Lep-
inois, staddur hjá einni af beztu
vinkonu.n mínum. Maðurinn
hennar dó skyndilega. Hún var
bláfátæk, og varð að fara að
vinna íyrir sér sjálf.
Hún stofnaði þessa saunia-
stofu. Eg' og íleiri vinkonur
hennar höfum síðan verzlað við
hana að staðaldri, enda er húu
afbragðs saumakona. Mér er ó-
skiljanlegt livaðan henni kom sú
hugmynd að setja þessa hjóna-
bandsauglýsingu í blaðið, sem'
þér kannist við, og sjálf getur
hún enga skýringu á því gefið.
Hún fékk mörg svör, ýmissa
tegunda. Dag nokkurn kom ég
henni að óvörum, einmitt þegar
hún var að lesa yfir öll þessi
margvíslegu bréf. Það var hreint
ekki svo lítið verk.
38
Hún bað mig að fara yfir bréf-
in með sér, og ég gerði það. Allt
í einu sagði hún: „Sjáðu, sá er
skrítinn. Hann skrifar bæði fullt
nafn sitt og heimilisfang“.
Hún rétti mér bréf yðar, herra
Lepinois, og ég las það, mér til
mikillar ánægju.
Mér fannst gaman að því að
gerast staðgengill vinkonu minn-
ar, enda var það auðvelt fyrir
mig, þar sem þér þekktuð ekki
rithönd mína.
Mér þótti mjög gaman af bréf-
um yðar, og mér þóttu bréfin
yðar svo hrífandi, eins og þér
eflaust getið skilið“.
„Eg skil yður, kæra ungfrú
Odile, og ég er forsjóninni þalck-
látur fyrir þessa ráðstöfun. Á ég
líka að þakka þessari sömu góðu
tilviljun stöðuhækkun mína“.
„Það er annað mál, sem við
getum síðar rætt“.
„Eins og yður sýnist. Eg mun
ræða málin við yður eins oft og
þér viljið“.
„Gætið þess að lofa ekki of
miklu, yður mun kannske iðra
þess síðar“.
„Aldrei“, sagði hann, „ég mun
aldrei þreytast á að hlusta á yð-
ur, ef þér viljið leyfa mér það“.
„Eg veit að þessi orð yðar
koma frá hjartanu. I bréfunum
yðar las ég um ást yðar til mín,
og nú, er hún endurgoldin“.
KNDIR
HEIMILISHITIÐ