Heimilisritið - 01.01.1948, Page 56

Heimilisritið - 01.01.1948, Page 56
„Já — ójú, má vera. Kg held nú samt að mér sé óliætt að segja, að ég hefði getað náð ár- angri á venjulegan hátt“. „Það getur verið“, svaraði Poirot með hægð. „Og hér er nú aftur morð á ferðinni“, sagði lögreglustjórinn. „Vitið þér nokkuð viðvíkjandi því?“ „Ekki með vissu, en það er býsna athyglisvert“. „Viljið þér vera okkur hjálp- legir?“ „Já, gjarnan, með yðar leyfi“. „Kæri vinur, það myndi glcðja okkur mjög mikið. Við vitum ckki enn svo mikið, að hægt sé að ákveða hvort maður þarf að leita aðstoðar Scotland Yards. A.ð vissu levti lítur svo út scm morðinginn muni vera hér á staðnum. En allir gestirnir eru auðvitað framandi fólk. INIaður verður að leita frekari upplýs- inga um það í London“. „Já, það er rétt“, sagði Poirot. „Fyrst og fremst“, sagði Weston, „verðum við þó að kom- ast að því, hver það var sein seinast sá konuna á lífi. Þernan færði henni morgunverðinn klukkan níu. Stúlkan á neðri hæðinni sá liana fara út úr for- stofunni um tíuleytið“. „Vinur kær“, sagði Poirot“, „þar get ég gefið nokkrar upp- lýsingar“. „Sáuð þér hana í inorgun? Hvenær?“ „Fimm mínútur yfir tíu. Eg hjálpaði henni að setja á flot fleka, niðri á baðströndinni“. „Fór hún út á honum?“ „Já“. „Ein?“ »Já“. „Sáuð þér hvert hún fór?“ „Hún fór íyrir tangann þarna hægra megin“. „Það er í áttina til Pixy Cove?“ »Já“. „Og klukkan var þá ..: . ?“ „Ætli hún hafi ekki verið um það bil tíu, þegar hún fór út frá ströndinni“. W7eston hugsaði sig um. . „Það getur komið heim. Hvað haldið þér að það taki langan tíma að róa yfir í víkina?“ „Eg er illa að mér í því. Eg hef aldrei vogað mér út á fleka eða bát. Hálfa klukkustund, gæti ég hugsað mér“. „Það er nokkurnveginn það sem ég hafði hugsað mér“, sagði lögreglustjórinn. „Hún hefur varla'flýtt sér mikið. Nú, ef hún hefur komið þangað fimmtán mínútur fyrir ellefu, getur það staðið lieima“. „Hvenær álítur læknirinn að hún hafi dáið“. „Neasdon hleypur ekki á sig. Hann fer að öllu gcctilega. Hann 54 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.