Heimilisritið - 01.01.1948, Side 60

Heimilisritið - 01.01.1948, Side 60
laglegur raaður. Hann var fríður í andliti. augun blá og hrein, og raunnuriira festulegur. Hann hafði þýða rödd. Weston lögreglustjóri sagði við hann: „Eg geng þess ekki dulin, Marshall, að þér hafið orðið fyrir þungu ál'alli. En ég vona að þér skiljið, að það er mikilvægt fyrir mig að fá sem fyrst allar nauð- synlegar upplýsingar“. „Ég skil það vel“, sagði MarshaU. „Spyrjið þér bara“. „Þetta var seinni kona yðar?“ „Já“. „Hvað voruð þið búin að vera lengi í hjónabandi?“ „Rúm fjögur ár“. „Hvað hét hún áður en hún giftist?“ „Helen Stuart. Hún kallaði sig Arleiía S.tuart á leiksviðinu“. „Var lnin leikkona?“ „Já, hún lék í óperettum“. „Hætti hún að leika þegar hún giftist yður?“ „Neij hún hélt því áfrara, þar til fyrir hálfu öðru ári“. „Var það af nokkrum sétstök- um ástæðum, að hún hætti þá?“ Kenneth Marshall hikaði and- artak. „Nei“, sagði harra. „Hún sagð- ist bará vera orðin leið á því“. „Það var ekki — til þess að þóknast yður?“ „0-nei“, sagði Marshall og lyfti augnabrúnunum lítið eitt. „Það var þá með samþykki yðar, að hún hélt áfrara að leika eftir að þið giftust?“ Það lék dauft bros um varir Marshalls. „Ég hefði heldur kos- ið að hún hætti því. En — ég lét það afskiptalaust“. „Og — hjónabandið — var hamingjusamt?“ Marshall svaraði kuldalega: „Það var það“. Weston þagði um stund. Síðan sagði liann: „Hafið þér nokkurn grun um, hver muni liafa myrt konu yð- ar?“ Marshall svaraði án tafar: „Ekki nokurn“. „Atti hún nokkra fjand- menn? „Ef til vill“. „Nú?“ Marshall sagði með nokkrum iíkafa: „Misskiljið mig ekki. Konan mín var leikkona. Hún var sér- lega fögur kona. Af þeim ástæð- lim varð hún fyrir óþægindum. Það varð misklíð útaf hlutverk- um -— keppni — öfund, gæti maður sagt, allskonar ofsóknir, jafnvel hatur. En þar fyrir er ekki sagt að neinn hafi haft hug á því að myrða hana“. Hereule Poirot lét nú í fyrsta sinn til sín heyra. Hann sagði: „Það sem þér eiginlega vilduð 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.