Heimilisritið - 01.01.1948, Qupperneq 62
„Óskuðuð þér sérstaklega eft-
ir því að hitta konu vðar í niorg-
un?“
„Nei, ég var bara að hugsa
um hvar hún gæti verið“.
Weston þagði. Hann hagræddi
sér í stólnum. Síðan sagði hann:
„Þér sögðuð áðan að konan
yðar hefði áður kynnst Patrick
Redfern. Var það náinn kunn-
ingsskapur?“
Kenneth Marshall hikaði, en
sagði síðan:
„IConan mín sagðist hafa hitt
hann í boði einhversstaðar“.
„Það var þá bara lausleg við-
kynning?“
„Það varð ég að álíta“.
„Eftir því sem“ — lögreglu-
stjórinn hóstaði lágt. „Mér
skilst, að það hafi leitt til frek-
ari vináttu“.
M arshall sagði byrstur:
„Yður skilst það, ha? Hver
hefur sagt yður það?“
„Það er. skrafað um það hér
í gistihúsinu“.
Andartak liorfði Marshall á
Poirot. Augnaráðið var b?eði
kuldalegt og reiðiþrungið. Síð-
an sagði hann:
„Lygaþvættingurinn á gisti-
lnisunum — maður kannast v.ið
hann!“
„Það kann að vera rétt. En
mér skilst að Redfern og konan
yðar hafi gefið nokkurt tilefni“.
„Eins og hvað?“
„Þau voru alltaf saman“.
„Er það allt og sumt?“
„Þér neitið þá ekki að svo
hafi verið?“
„Það getur vel verið. Eg tók
ekki eftir því“.
„Þér höfðuð þá — þér afsakið
Marshall — ekkert á móti þessu
sambandi“.
„Eg var ekki vanur að rekast
í því, hvernig konan mín hagaði
sér“.
„Þér létuð ekkert á yður skilja
— hrevfðum engunfi aðfinnsl-
um?“
„Á engan hátt“.
„Ekki einu sinni þegar það fór
að vekja hneyksli, og tók að
spilla sambúðinni milli Redfern
og konu hans?“
Kenneth Marshall sagði
þóttafullur:
„Ég skipti mér ekki af einka-
málum annarra, og ætlast til að
aðrir ski]>ti sér ekki af mínum.
Ég hlusta ekki á kviksögur og
þvætting“.
„Þér munuð ekki neita því, að
Redfern var mjög hrifinn af
konunni yðar?“
„Hann hefur sjálfsagt verið
það, Það voru fleiri. Hún var
fögur kona“.
„En þér voruð sjálfir vissir
mn, að það væri ekkert að at-
huga við þetta samband“.
„Ég segi yður alveg satt, ég
lmgsaði aldrei út í það“.
60
HEIMILISRITIÐ