Heimilisritið - 01.06.1955, Qupperneq 59
Framhaldssaga eftir
RUTH FLEMING
Nýi
herragarðs-
eigandinn
FORSAGA
Bruce Kinlock hefur erft herra-
garðinn Kinlock Hall við andlát Sir
Hamish, sem var fjarskyldur ætt-
ingi hans. Hann er nú fluttur á
herragarðinn, ásamt móður sinni, og
hefur ráðið Lindu, dóttur Sir Ham-
ish sem ritara sinn.
Bruce var vanur hestamaður,
og hann langaði að láta spretta
úr spori eftir fáfömum vegin-
um. Hann bað hestasveininn um
að leggja á Sultan, bezta hest-
inn í hesthúsinu, og þegar hann
hafði skipt um föt eftir mat,
reið hann af stað. Hann hafði
skammt farið, er hann leit aftur’
og þegar hann kom auga á Lindu
í einum glugganum, lyfti hann
handleggnum og veifaði til
hennar.
Hann komst brátt í betra skap,
en þegar hann beygði fyrir hæð-
arás einn, sá hann ungan mann
skammt frá, sem var að reyna
að kenna fallegum jörpum fola
að stökkva. Hann reið honum
aftur og aftur að hlöðnum stein-
vegg, en folinn var hræddur og
þorði ekki að hoppa yfir. Reið-
maðurinn var óþolinmóður og
notaði svipuna óspart. Svo kippti
hann 'í taumana og reyndi á
ný, en aftur gugnaði hesturinn.
Þá stökk maðurinn af baki og
fór að berja folann með svip-
unni þangað til hann hneggjaði
af sársauka.
Bruce hleypti hestinum og
reið á vettvang.
„Hvað.eruð þér eiginlega að
gera, maður minn?“ spurði hann
hvasslega.
„Ekkert,“ svaraði hinn, en
hann hætti barsmíðinni. „Ég er
bara að reyna að troða einhverju
viti inn í kollinn á þessari
JÚNÍ, 1955
57