Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.07.2013, Side 8

Fréttatíminn - 12.07.2013, Side 8
F ólk er ekki alltaf meðvitað um hugverkarétt hönnuða á vörum sem þeir hafa framleitt og gerir sér ekki alltaf grein fyrir því vinnu- og hönnunarferli sem liggur að baki viðkomandi vöru og alvarleika þess að stela hönnun annara. Neyt- endur ættu að bera virðingu fyrir þeirri vinnu sem liggur að baki hönnun einstaks hlutar og borga réttum aðilum fyrir vinnuna í stað þess að borga þeim sem stela og gera eftirlíkingar. Fyrsta skref hönnuðar sem kemst að því að verið sé að gera eftirlíkingar getur verið að hafa samband við við- komandi og óska eftir því að framleiðslu á eftirlík- ingum verði hætt,“ segir Ástríður Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands. Hún segir jafnframt að hér á landi sé nokkuð um það að fólk geri eftirlíkingar af fatnaði og skartgripum og selji. Einnig að föndurbúðir aug- lýsi vörur og námskeið sem auðvelda eigi fólki að búa til sínar eigin eftirlíkingar. Með því að sækja um hönnunarvernd hjá Einkaleyfastofu sé kominn grundvöllur fyrir hönnuði til að sækja rétt sinn, sé á þeim brotið. Á undanförnum árum hafa verið seldar eftirlíkingar af vörum vinsælla íslenskra hönnuða, svo sem af skartgripum Steinunnar Völu Sigfúsdóttur sem hún framleiðir undir merkinu Hring eftir hring, hálsmenum Hlínar Reykdal og af hárspöngum frá Thelmu design.  Hugverkaréttur eFtirlíkingar algengar Stolin hönnun víða til sölu Hér á landi er algengt að eftirlíkingar af skarti og fatnaði séu seldar í versl- unum, á sölusíðum á netinu og á Facebook. Föndurbúðir auglýsa einnig vörur svo fólk geti sjálft útbúið sínar eftirlíkingar og staðið fyrir námskeiðum. Hönnun Hlínar Reykdal hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og hafa eftirlíkingar á vörum hennar verið til sölu. Hlín telur þó að ekki búi alltaf einbeittur brotavilji að baki heldur frekar sjálfsbjargarviðleitni og vanþekking á mikilvægi þess að virða höfundarrétt. Hálsmen frá Handa design voru seld í versluninni Kastaníu en þeirri sölu hefur nú verið hætt. Mynd/Facebook síða Handa design. Hálsmen frá hönnuðinum Hlín Reykdal. Mynd/Jón Reykdal. Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna rafmagn. Úrkomu og leysingavatni af jöklum landsins er safnað í uppi- stöðulón, sem flest eru á hálendinu. Lónin eru vatnsmest síðsumars og geyma þá um 4.600 gígalítra, eða 4,6 rúmkílómetra af vatni. Þessi forði gerir okkur kleift að vinna raforku jafnt og þétt allt árið. Velkomin í heimsókn! Gestastofur Landsvirkjunar eru opnar frá kl. 10-17 alla daga í allt sumar: Fljótsdalsstöð Gestastofa í Végarði og leiðsögn um Kárahnjúka miðvikudaga og laugardaga frá kl. 14-17. Búrfell Gagnvirk orkusýning og vindmyllur á Hafinu. Starfsfólk Landsvirkjunar tekur á móti gestum við vindmyllurnar kl. 13-17 alla laugardaga í júlí. Krafla Jarðvarmasýning í gestastofu. www.landsvirkjun.is/heimsoknir Orkuforðinn okkar Hálslón 2100 Gl1 Þórisvatn 1400 Gl2 Blöndulón 412 Gl3 Hágöngulón 320 Gl4 Krókslón 140 Gl5 Sultartangalón 109 Gl6 7 8 10 11 9 Kelduárlón 60 Gl Gilsárlón 20 Gl Bjarnarlón 5 Gl Ufsarlón og Vatnsfellslón 3 Gl Hrauneyjalón 33 Gl Miðlunarrými helstu lóna á Íslandi: 4 5 6 7 8 9 1011 412 Gl 56 km² 3 Miðlunarrými Flatarmál við fullt lón Blöndulón 1400 Gl 83 km² 2 Miðlunarrými Flatarmál við fullt lón Þórisvatn 2100 Gl 57 km² 1 Miðlunarrými Flatarmál við fullt lón Hálslón 8 fréttir Helgin 12.-14. júlí 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.