Fréttatíminn - 12.07.2013, Qupperneq 30
Gengið í lið með Leifi
Í
Í persónugalleríi Ladda er meðal annarra
að finna Leif óheppna. Ég gekk í lið með
honum á dögunum þegar ég tók nokkurra
daga frí til þess að mála húsið. Fyrirfram
gengur maður að því sem gefnu að dag-
arnir kringum mánaðamótin júní og júlí
séu bestir allra til að mála utanhúss. Sólin
er hæst á lofti og nóttin björt. Bærilega
hlýtt á að vera á þessum árstíma en það
sem meira máli skiptir er vonin um að
hann hangi þurr. Hann gerði það ekki. Því
var líkt á komið hjá mér og Leifi óheppna.
Það rigndi og rigndi – og það rigndi og
rigndi – og ég beið og beið – og beið og
beið og beið – en það stytti ekki upp. Þá er
ekki gott að mála utandyra.
Samt fór ég bjartsýnn út fyrsta morgun-
inn með pensil og málningardós því það
hafði stytt upp seinni part nætur. Eftir
að hafa hrært í dósinni sótti ég stiga sem
nauðsynlegur var til verksins þótt húsið sé
aðeins ein hæð og þægilegt fyrir þá sem
ekki hafa meistararéttindi í greininni. Ég
hef samt málað talsvert um ævidagana og
treysti mér vel í verkið ef það viðraði bæri-
lega. Sem það gerði ekki því ekki hafði ég
fyrr lagt stigann að húshliðinni en það fór
að rigna. Ég beið um stund, líkt og Leifur
óheppni, taldi þetta aðeins vera skúr en
svo var ekki. Rigningin var samfelld. Ég
hraktist inn í bílskúr með málningargræj-
urnar og gekk frá þeim. Það þýðir ekki að
mála veggi ef rigningin skolar málning-
unni jafnharðan af.
Á öðrum degi var ég enn bjartsýnn og
hélt af stað með tól mín og tæki í þeirri
von að betur gengi. Himininn var að samt
þungbúinn og veðurspáin óhagstæð mál-
urum. Ég fylgdist með veðurspá af ekki
minni áhuga en bændur sem ekki vilja
fá rigningu í flekkinn. Veðurfræðingar
voru allir sammála. Rigning eða skúrir
og skipti þá engu hvort skúrir voru í
kven- eða karlkyni. Þennan dag mátti
kalla úrkomuna skúrir. Þá var reynandi að
skjótast út með pensilinn þegar þornaði
en vonbrigðin voru því meiri
þegar byrjaði að rigna á
ný. Samt tókst mér að
mála meðfram þak-
kantinum hlémegin.
Þriðja daginn
var úrkoman sam-
felld. Þá dró aðeins
úr bjartsýninni
því frítíminn,
sem löngu var
ákveðinn í þetta
verkefni, var tak-
markaður. Mér
bar, samkvæmt
ráðleggingum fag-
manna, að mála
þrjár umferðir.
Fyrst með olíu-
grunni og síðan tvær
umferðir til viðbótar með
málningunni sjálfri. Aug-
ljóst mátti því vera að verkið
tæki tíma. Þrátt fyrir úrhelli
þessa dags hrærði ég í dósinni og
fór út með pensilinn. Rúllu þýddi ekki að
hreyfa. Ég fann þurrt svæði undir skyggni
við bílskúrinn og gat dundað mér þar á
hálfum hraða. Fyrirfram hafði ég séð fyrir
mér, þegar málningarfríið var bókað, að
ég málaði hverja umferðina á fætur ann-
arri léttklæddur í sól og yl. Svo var ekki.
Það var ekki nóg með úrkomuna. Það var
líka kalt. Því klæddist ég úlpu, vettlingum
og húfu við verkið þessa hásumardaga.
Það er niðurdrepandi, jafnvel fyrir bjart-
sýnismann.
Á fjórða degi lifnaði heldur yfir mér.
Ekki það að brostin væri á blíða eða hitatíð
heldur hitt að eftir hádegi stytti tímabund-
ið upp. Ég lagði penslinum þegar í stað
og hóf grunnyfirferð með rúllunni. Samt
gat ég ekki málað nema tvær hliðar húss-
ins. Hinar voru svo gegnblautar að ekki
þýddi að eiga við þær í svo takmörkuðum
þurrki. Samt var þetta áfangi sem gaf von.
Húsið breytti um svip, að minnsta kosti úr
tveimur áttum séð.
Veðurfræðingurinn í sjónvarpinu var
ekki eins dapurlegur og fyrri kvöld og
lofaði sól. Loforð veðurfræðinga eru svona
og svona – en yfirleitt heldur ábyggilegri
en stjórnmálamanna. Ég lagðist því glaður
til hvílu það kvöldið í því skyni að taka
daginn snemma.
Það rigndi þegar ég vaknaði næsta
dag og það rigndi enn um hádegið. Ég
tók örlögum mínum og hringdi ekki einu
sinni í Veðurstofuna enda þekki ég veður-
fræðingana ekki lengur með nafni. Það er
af sem áður var þegar þeir voru stjörnur
sjónvarpsins og þóttu jafnvel svo fyndnir
að þeir voru fengnir til að troða upp á
skemmtunum. Undir nón gerðust hins
vegar þau stórtíðindi að sólin, sem lofað
hafði verið, braust fram. Ég beið ekki
boðanna, sótti málningartólin og kleif
stigann við vegginn. Um leið og ég rak
nefið upp fyrir þakbrúnina fékk ég sólar-
geisla í augun, eins og ég átti von á, en það
breytti því þó ekki að það rigndi framan í
mig á sama tíma. Ekki hef ég veðurfræði-
lega þekkingu til að skýra þá furðu að í
senn skíni sól og á mann rigni. Þannig á
það ekki að vera. Það er annað hvort heitt
eða kalt, blautt eða þurrt, sól eða rigning.
Þetta þurfa Trausti og félagar á Veðurstof-
unni að skýra nánar.
Sjötta daginn rigndi enn svo ég hafði
nægan tíma til að lesa Moggann í morg-
unsárið. Þá hvarf bjartsýnin endanlega því
yfir forsíðuna þvera sagði frá viðtali við
veðurfræðing sem sá ekkert annað í kort-
unum en rigningu og kulda mín megin á
landinu svo langt sem spár næðu. Sá góði
maður var ekkert að tala um næstu daga
heldur vikur. Lægðirnar eru ekki röð held-
ur biðröð. Það þýðir að komið verður haust
áður en styttir upp – og ég á samkvæmt
ráðleggingum að fara þrjár umferðir.
Eftir lesturinn ákvað ég að taka annan
pól í hæðina en Leifur óheppni. Ég hætti
að bíða, pakkaði draslinu saman og fór
aftur í vinnuna. Ritstjórnarskrifstofan
heldur að minnsta kosti vatni.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/J
ón
Ó
sk
ar
Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri
Sendum frítt
www.lindesign.is
Ofið úr Pima bómull sem er einstök að gæðum
Yfir 40 tegundir íslenskra rúmfata til brúðargjafa
Einstakar brúðargjar
Úrval brúðargjafa á tilboðsverði
úr vefverslun
Íslensk
hönnun
Lítið og þægi
legt
ferðakolagri
ll
– auðvelt að
brjóta saman
!
998kr.stk.
Verð áður 2999 kr. stk.
Notebook ferðakolagrill
66%afsláttur
– fyrst og fre
mst
ódýr!
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · www.skorri.is
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla
MEÐ
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is
30 viðhorf Helgin 12.-14. júlí 2013