Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.06.2013, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 28.06.2013, Blaðsíða 2
Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 VELDU GRILL SEM EN DIST OG ÞÚ SPARA R 49.900 Kraftmikið, meðfærilegt og frábærlega hannað gasgrill fyrir heimilið eða í ferðalagið Frábært á svalirnar eða á veröndina www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka dagaOpið kl. 11 - 16 laugardaga Útför Hemma Gunn í dag Fjölmargir vilja eignast símaklefa en Síminn hefur ákveðið að þeir fari allir á haugana í árslok. Gunnhildur Arna segir málið í skoðun. Ljósmynd/Hari  Fjarskipti Frétt Fréttatímans um endalok símakleFa hreyFði við Fólki Slegist um símaklefana „Eftir að fréttin birtist hjá ykkur í síðustu viku hefur rignt yfir okkur fyrirspurnum frá fólki sem vill eignast símaklefa,“ segir Gunnhild- ur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Fréttatíminn greindi frá því í síðustu viku að allir símaklefar landsins verða teknir úr umferð í lok þessa árs. Símaklefunum hefur fækkað jafnt og þétt síðustu árin og nú eru þeir ekki nema fjórtán eftir. Út- breiðsla GSM-síma þykir hafa gert þá óþarfa. Gunnhildur Arna segir að ýmis fyrirtæki, til að mynda auglýs- ingastofur, hafi lýst yfir áhuga á að eignast símaklefa. „Og einstaklingar líka. Það var til dæmis einn sem vildi fá þetta í garðinn sinn. Svo vilja endurvinnslufyrirtæki álið í klefunum. Við skoðum þetta allt en það hafa engar ákvarðanir ver- ið teknar um þessa góðu klefa,“ segir Gunnhildur. Hún segir að þó sé afráðið að einn símaklefi verði á kaffihúsi starfsmanna Símans, Kaffigarðinum. Fréttin um endalok símaklefanna hreyfði við fleirum en fólki sem vill eignast þá. Þannig hafa sumir ekki enn gefið upp vonina um að klefarnir fái að lifa áfram. „Það eru sum sveitarfélög sem vilja yfirtaka reksturinn á klefunum hjá sér. Það er í skoðun.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir upplýsingafulltrúi Símans Fjölmiðlamaðurinn ástsæli, Hermann Gunnarsson, verður jarðsunginn í dag, föstudag. Útförin verður frá Hallgríms- kirkju og hefst klukkan 15:00. Prestur verður séra Pálmi Matthíasson. Bein útsending frá jarðarförinni verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda þar sem erfidrykkjan fer fram. Hemmi Gunn átti að baki farsælan feril í íþróttum og lék knattspyrnu með Val og tuttugu leiki með knattspyrnulandsliðinu, auk þess að leika nokkra landsleiki í handbolta. Síðar hóf hann störf hjá Ríkisútvarpinu, fyrst sem íþrótta- fréttamaður og hafði síðar umsjón með þáttunum vinsælu Á tali hjá Hemma Gunn. Hemmi starfaði lengi hjá Stöð 2 og Bylgjunni auk þess að syngja inn á plötur og skemmta með Sumargleðinni. Að kvöldi útfarardags, klukkan 19:35, verður minningardagskrá um Hemma Gunn í Ríkissjónvarpinu þar sem sýndar verða svipmyndir frá athöfninni fyrr um daginn. Þar á eftir verður sýndur sjónvarpsþáttur um feril og lífshlaup Hemma þar sem sýndar verða myndir úr safni sjónvarpsins og viðtöl við ættingja hans og vini, samferðar- og samstarfsfólk. -dhe Sálfræðingafélagið skorar á stjórnvöld Sálfræðingafélag Íslands skorar á stjór- nvöld að bregðast við þörf framhalds- skólanema fyrir sálfræðiþjónustu. Börnum í grunnskóla er tryggt aðgengi að sál- fræðiþjónustu af hálfu sveitarfélaganna en þegar grunnskólanum sleppir er aðgengi að þjónustu lítið sem ekkert, hvorki í fram- haldsskólunum né í heilsugæslunni. Þannig er staðan þrátt fyrir að börnin teljist ekki fullorðin fyrr en við 18 ára aldur. Í tilkynn- ingu frá Sálfræðingafélaginu er bent á að fjárveitingar til framhaldsskóla á Íslandi eru minni en í mörgum OECD-löndum. „Margs konar tilfinningavandi eykst mjög á framhaldsskólaárunum og ljóst að dýrkeypt er, ef ekki er brugðist við honum með réttum hætti. Ef rétt er á haldið verður að telja líklegt að betra aðgengi að sálfræðiþjónustu við framhaldsskóla- nemendur muni skila sér í sparnaði ríkis til framtíðar, að ónefndum bættum lífsgæðum og betri líðan þeirra sem í hlut eiga,“ segir í tilkynningunni. Aldurshópurinn 35 til 49 ára skuldar mest Samanlagðar skuldir fjölskyldna á aldr- inum 35 til 49 ára eru um 43 prósent af heildarskuldum landsmanna, samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands. Skuldir þessa aldurshóps höfðu þó dregist saman um 7,6 prósent á milli ára. Í lok árs 2011 skulduðu 19 prósent fjölskyldna á Íslandi ekki neitt. Af skuldsettum fjöl- skyldum skuldaði helmingur 6 milljónir króna eða minna og skulduðu 90 prósent skuldsettra fjölskyldna minna en 31,4 millj- ónir króna. Þeir aldurshópar fjölskyldna sem skulda minnst er fólk 29 ára og yngra og eldra en 67 ára. -dhe n okkrir hressir Íslendingar í Danmörku lögðu leið sína á karókí-barinn Sams Bar í Kaupmannahöfn á sunnudagskvöldið og hittu þar fyrir engan annan en forsætisráðherra Íslands, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Aðstoðarmaður hans, Jóhannes Þór Skúlason, segir að þeir félagarnir hafi litið þarna inn kvöldið áður en Sigmundur átti fund með Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, og þeir hafði því ekki stoppað lengi. „Við fórum út til að finna okkur ein- hvern mat. Síðan gengum við þarna framhjá og datt í hug að fá okkur kannski einn bjór," segir Jóhannes. Þeim leist þó heldur illa á sönginn til að byrja með og ákváðu að fresta bjórnum, enda klukkan hvort eð er orðin margt. Hvorki Sigmundur né Jóhannes tóku lagið en þeir nutu söngsins í smá tíma. „Þarna komu síðan nokkrir skemmtilegar söngvarar og einn var alveg fárán- lega góður,“ segir hann og er nokkuð viss um að sá hafi tekið lagið Walking in Memphis. „Þegar við erum á leiðinn út mætt- um við síðan söngvaranum og Sigmundur sagði við hann á ensku hvað hann hefði sungið vel.“ Það kom þeim síðan nokkuð á óvart þegar söngvar- inn svaraði þeim bros- andi á Íslensku: „Takk fyrir, Sigmundur!“ Kannski er ekki að undra að þarna hafi hópur Íslend- inga verið enda er Sams Bar einn vinsælasti karó- kíbarinn í Kaup- mannahöfn, á besta stað á Strikinu. Fyrsti karó- kíbarinn sem opnaður var í Danmörku árið 1989 hét einmitt Sams Bar en honum var lokað þeg- ar annað útibú var opnað á Strikinu. Einhverjir Íslendinganna settu sig skjótt á biðlistann þegar þeir sáu Sigmund Davíð og ætluðu að syngja sérstak- lega fyrir hann en forsætisráðherrann var farinn áður en röðin kom að þeim. „Við vorum að fara á fund um morgun- inn þannig að það þýddi ekkert að vaka frameftir,“ Jóhannes. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  dægradvöl sigmundur davíð gaF sér tíma til að hlýða á lög Forsætisráðherrann á karókíbar í Köben Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra leit við á karókóbar á Strikinu kvöldið áður en hann fundaði með forsætisráðherra Dana. Aðstoðarmaður hans segir þá hafa hætt við að fá sér einn kaldan voru lítt hrifnir af því sem þeir heyrðu til að byrja með. Kraftmikill söngvari vakti síðan athygli þeirra. Kvöldið áður en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hitti Helle og ræddi við hana um Evrópusambandið kíkti hann á karókíbar með aðstoðar- manni sínum. Mynd/Hari 2 fréttir Helgin 28.-30. júní 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.