Fréttatíminn - 28.06.2013, Blaðsíða 14
Sætúni 8, 105 Reykja-
vík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatim-
inn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@
frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði
Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda-
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morg-
undegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í
Landsprenti.
S
Samfélag sem byggir á hátækni krefst
fjölgunar nemenda í verk- og tækni-
menntun. Því þarf að hvetja ungt fólk
til að leggja stund á raun- og tækni-
vísindi og velja sér starfsvettvang á
þessum sviðum. Meðal þess sem fram
kom í nýlegum tillögum Samráðsvett-
vangs um aukna hagsæld var að efla
þyrfti og auka áherslu á gæði mennt-
unar, einkum á sviði raun-
greina og nýsköpunar. Þá
þurfi að fjölga kennslu-
stundum í raungreinum.
Þetta á við hvort
heldur horft er til verk-
og tæknináms á fram-
haldsskólastigi eða há-
skólastigi. Mikilvægt
er að ungt fólk geri sér
grein fyrir því að iðn- og
tæknimenntun á fram-
haldsskólastigi veitir
aðgang að fjölbreyttum störfum og
góðum launum. Atvinnulífið hefur
tekið við sér eftir áfall hrunsins. Því er
aukin eftirspurn eftir iðnaðarmönnum
í fjölmörgum greinum. Jafnframt ber
að hafa í huga að iðnmenntun er góður
grunnur að frekar framhaldsnámi. Há-
skólamenntuðu tæknifólki, sem lokið
hefur iðnmenntun, stendur fjölbreytt
starfsval til boða.
Að efla verk- og tæknimenntun er
mikilvægt hagsmunamál atvinnulífs-
ins. Það kallar eftir tækni- og raun-
greinamenntuðu fólki. Verkefnið snýr
því beint að samtökum þess. Samtök
atvinnulífsins hvöttu fyrirtæki nýverið
til að taka þátt í að efla verk- og tækni-
menntun með því að kynna atvinnu-
lífið fyrir nemendum og kennurum
grunn- og framhaldsskóla. Viðbrögð
við hvatningunni voru jákvæð og fyrir-
tækin brugðust fljótt við kallinu. Á
síðu samtakanna segir að um fimmtíu
fyrirtæki hafi þegar lýst yfir áhuga á að
efla starfsmenntun og fleiri geti bæst í
hópinn. Þar segir síðan: „Til að skólar
útskrifi fólk með þekkingu sem nýtist
í atvinnulífinu þurfa börn og unglingar
að skilja í hverju störf eru fólgin og
hverju þau skila. Til að nemendur fái
nauðsynlega tengingu við fjölbreytt
störf, með sérstakri áherslu á verk og
tækni, þurfa þau að fá tækifæri til að
komast í raunverulega snertingu við
atvinnulífið í landinu. Fulltrúar fyrir-
tækja þurfa líka að eiga þess kost að
skiptast á skoðunum við skóla um
áherslur í skólastarfi sem efla áhuga
nemenda á atvinnulífinu og hjálpa þeim
að velja meðvitað við hvað þeir ætla að
starfa síðar á lífsleiðinni.“
Getið er um ýmsa möguleika um
framlag fyrirtækjanna sem getur verið
að halda kynningu í skólum á hlutverki
fyrirtækis í samfélaginu og störfum
sem þar eru unnin, að taka á móti nem-
endum í starfskynningar, að þróa stutt
starfsnám í samstarfi við skólann eða
gefa nemendum verkefni til úrvinnslu
sem tengjast starfsemi fyrirtækisins.
Aðkoma stjórnvalda að eflingu
tæknimenntunar er mikilvæg. Fylgja
þarf eftir vinnu sem kynnt var á liðnu
hausti um tímasetta áætlun um eflingu
verk- og tæknináms á framhaldsskóla-
og háskólastigi. Á kynningarfundi kom
fram að hlutfall framhaldsskólanema
í verk- og tækninámi sé 33 prósent en
stefnt er að því að það verði 40 pró-
sent árið 2020. Hlutfall háskólanema
í tæknigreinum er nú 9,3 prósent en
stefnt er að því að það verði 16 prósent
árið 2020. Kallað var eftir aðgerðaáætl-
un í samráði við skóla og aðila vinnu-
markaðarins og kynningu á náms- og
starfsmöguleikum sem til staðar eru.
Jafnframt þurfi að auka hlut þessara
greina í aðalnámskrá grunnskóla og
leggja áherslu á samvinnu skóla og
atvinnulífs.
Mikilvægt er að vekja áhuga kvenna
ekki síður en karla á tækninámi.
Fram kom í Fréttatímanum síðast-
liðinn föstudag að konur eru aðeins 13
prósent útskrifaðra tölvunarfræðinga
á Íslandi síðustu fimm ár, 44 á móti 333
körlum. Mikil eftirspurn er hins vegar
eftir konum í forritun og upplýsinga-
tækni og þær geta, eftir því sem þar
kom fram, valið úr verkefnum. Ímynd
tölvunarfræðinga kann að hafa sitt að
segja um að konur fara síður í þetta
nám. Þeirri ímynd þarf að breyta.
Atvinnulífið kallar eftir tækni- og raungreinamenntuðu fólki
Fjölga þarf nemendum í verk- og tækninámi
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og
þæginda búnaði sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja aksturs-
upplifun. Má þar nefna hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og
árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense.
Outlander kostar frá
5.990.000 kr.
Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur
MITSUBISHI OUTLANDER
Rúmbetri, sparneytnari og betur búinn
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
mitsubishi.is
Eyðir aðeins frá 5,5 l/100 km.
Vikan í tölum
29,3
prósent landsmanna eru
með áskrift af Stöð 2 sam-
kvæmt rannsókn Pipars upp
úr lífsstílskönnun Capacent.
Árið 2005 voru 49,9 prósent
landsmanna áskrifendur
Stöðvar 2.
70
sæti hefur Ísland stokkið upp um
síðasta árið á styrkleikalista FIFA
undir stjórn Lars Lagerbäck. Liðið
var í 131. sæti fyrir ári síðan en
er nú komið í 61. sæti. Ofar hefur
Ísland ekki verið síðan árið 2004.
459
urðu gjaldþrota hér á landi fyrstu
fimm mánuði ársins. Það er
tæplega tólf prósenta fækkun frá
sama tímabili í fyrra.
2.000
kríupör og rúmlega það verptu á
Seltjarnarnesi í ár að sögn Jóhanns
Óla Hilmarssonar fuglafræðings.
Mjög gott varp, segir Jóhann Óli.
500
fangar hafa verið teknir af lífi í
Texas eftir að dauðarefsing var
tekin þar upp að nýju árið 1976.
350
laxar eru komnir á land í Norðurá
og er hún aflahæsta á landsins
sem stendur.
14 viðhorf Helgin 28.-30. júní 2013