Fréttatíminn - 28.06.2013, Blaðsíða 62
62 bíó Helgin 28.-30. júní 2013
Báðir þessir
kappar séu
skugginn
af Bruce
Willis í hlut-
verki New
York-lögg-
unnar John
McClaine
sem fór
einn gegn
ofurefli í
Die Hard.
Frumsýnd Hamagangur í WasHington
Þ egar horft er yfir höfundarverk leik-stjórans Rolands Emmerich mætti ætla að Hvíta húsið sé sérstakur þyrnir
í augum hans. Hann lét geimverur sprengja
forsetabústaðinn í tætlur í sumarsmellinum
Independence Day fyrir margt löngu og nú
stefnir hann þangað herdeild vondra manna
sem hafa illt eitt í hyggju og ógna öryggi for-
setans sem Jamie Foxx leikur.
Einn maður setur stórt strik í áætlun fúl-
mennanna en fyrir algera tilviljun er lögreglu-
maðurinn John Cale í skoðunarferð um Hvíta
húsið ásamt ungri dóttur sinni akkúrat þegar
illmenninn láta til skarar skríða. Okkar maður
ætlar sér vitaskuld ekki að láta innrásarmenn-
ina komast upp með svona lagað og ræðst í
blóðuga varnarbaráttu sem snýst ekki aðeins
um líf og limi hans og dóttur hans þar sem
hann kemur forseta sínum að sjálfsögðu til
hjálpar.
Channing Tatum leikur lögreglumanninn
vaska en vegur hans hefur vaxið hratt í Holly-
wood en þær myndir sem hann hefur komið
fram í á síðustu misserum hafa allar verið til
þess fallnar að auka hróður hans en þar á með-
al eru 21 Jump Street, Magic Mike, Side Ef-
fects, G.I. Joe: Retaliation auk þess sem hann
er væntanlegur í gamanmyndinni This Is the
End sem þykir líkleg til þess að gera það gott.
Gerard Butler var í svipuðum sporum og
Tatum fyrir skömmu en hann lék brottrekinn
lífvörð forseta Bandaríkjanna sem fékk heldur
betur æruna uppreista þegar svo heppilega
vildi til að hann var á staðnum þegar hryðju-
verkamenn gerðu árás á Hvíta húsið. Síðan
má segja að báðir þessir kappar séu skugg-
inn af Bruce Willis í hlutverki New York-lögg-
unnar John McClaine sem notaði jólafríið sitt
til þess að senda hryðjuverkamenn til heljar á
færibandi þegar rummungsþjófar og terror-
istar réðust á vinnustað eiginkonu hans í miðju
jólaglöggi.
Aðrir miðlar: Imdb: - Rotten Tomatoes: 58% Me-
tacritic: 61%
Hvíta húsið í Washington er heldur betur í brennidepli í ár en White House Down er önnur
spennumyndin á þessu ári sem fjallar um árás illmenna á húsið og um leið vitaskuld forseta
Bandaríkjanna. Gerard Butler lenti óvænt í því fyrr á árinu í Olympus Has Fallen að þurfa að
bjarga forsetanum, sem Aaron Eckhart lék, úr klóm hryðjuverkamanna og nú er Channing Tatum
mættur á sama stað og kemur forsetanum sem Jamie Foxx leikur að þessu sinni frá bráðum
bana. Báðar myndirnar gætu borið stimpilinn Die Hard í Hvíta húsinu enda fer skyldleikinn við þá
frábæru mynd ekki á milli mála.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Niður með Hvíta húsið!
Channing Tatum er meira að segja í hvítum hlýrabol, eins og Bruce Willis í Die Hard forðum, þegar hann ræðst gegn innrásarliði
í Hvíta húsinu. Jamie Foxx leikur forsetann sem virðist einnig nokkuð liðtækur þegar kemur að átökum.
Fölsk hjónabandssæla
Hrollurinn The Purge hefur glatt þá
sem slíkt kunna að meta undanfar-
ið í Bandaríkjunum og nú fá hroll-
sæknir Íslendingar að fara í gegn-
um eina nótt skelfingar og bráðrar
lífshættu ásamt ósköp venjulegri
kjarnafjölskyldu.
Yfirfull fangelsi eru orðin að stóru
vandamáli og stjórnvöld hafa brugð-
ist við ástandinu með þeirri kolbrjál-
uðu lausn að gera alla glæpi, morð
þar með talin, lögleg í tólf klukku-
stundir einu sinni á ári. Með þessu
móti hefur tekist að ná glæpatíðni
aðra daga ársins niður í sögulegt
lágmark en að vonum bíður venju-
legt fólk þessa blóðuga dags ekki
með neinni eftirvæntingu. Á meðan
lögleg glæpaaldan gengur yfir þýð-
ir nefnilega ekkert að hringja í lög-
regluna eða leita sér hjálpar á súkra-
húsum. Hver er næstur sjálfum sér.
Ethan Hawke leikur fjölskyldu-
föður sem grípur til örþrifaráða sem
gætu splundrað fjölskyldu hans þeg-
ar óboðinn gestur brýst inn á heim-
ili fjölskyldunnar þessa hættulegu
nótt. Spurningin sem blasir við fjöl-
skyldunni er hversu langt þau eru
tilbúin til þess að ganga til þess að
vera öryggi sitt og hvort þau komist
yfirleitt í gegnum nóttina án þess að
verða sjálf að samskonar ófreskjum
og þau þurfa að takast á við.
Aðrir miðlar: Imdb: 5,6, Rotten Tom-
atoes: 38%, Metacritic: 41%
Frumsýnd grænt ljós geFið á morð
Nótt lögleysunnar
Gestagangurinn á hinni árlegu morð-
nótt getur verið skuggalegur.
Frumsýnd Hjónaruglingur
Leikstjórinn og handritshöfundurinn
Justins Zackham, sem skrifaði meðal
annars gamanmyndina The Bucket
List, hefur smalað saman nafntoguð-
um leikurum fyrir sitt nýjasta grín, The
Big Wedding. Þarna eru saman komin
Robert De Niro, Diane Keaton, Susan
Sarandon og Robin Williams ásamt
Katherine Heigl, Amanda Seyfried og
fleirum.
Don og Ellie (De Niro og Keaton)
eru löngu fráskilinn og Don í sambúð
með Bebe (Sarandon), bestu vinkonu
Ellie. Þegar kjörsonur Dons og Ellie
frá Kólumbíu er að fara að kvænast
þurfa þau að setja á svið heilmikinn
blekkingarleik fyrir blóðmóður piltsins
þar sem sú stendur fast á hefðum og
hefur ekki hugmynd um skilnað kjör-
foreldranna.
Bebe þarf því að flytja út af
heimilinu og Ellie kemur í hennar stað
og tekur sinn gamla sess við hlið Dons.
Þetta kallar á alls konar ófyrirséðan
misskilning og rugling sem setur
blekkingarleikinn í uppnám þannig að
afleiðingarnar geta orðið agalegar.
Aðrir miðlar: Imdb: 5,2, Rotten Tom-
atoes: 7%, Metacritic: 28%
GAGGALA—GÓÐAN DAGINN!
SUNNY
STYLE
«69
SÉRSTAKUR Í SÓKN
HEAVY
SPECIAL
«70
VORBOÐINN LJÚFFENGI
CHICKEN
HEALTHY
STYLE
«91
LÆSTU KLÓNUM Í
LOBSTER
STYLE
«60
74,6% ... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 35 – 49 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent jan - mars 2013
850 svör