Fréttatíminn - 28.06.2013, Síða 4
Skuldir Heimilanna Skuldarar berjaSt við dróma
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
15%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir út júní.
veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
V 3-10 m/s. skúrir og hiti 8-15 stig,
hlýjast Na-laNds.
höfuðborgarsVæðið: V 5-8 m/s og
skúrir. Hiti 9-13 stig.
V 3-8 m/s. skýjað með köflum eN smá
skúrir V-til. hiti 10-17 stig.
höfuðborgarsVæði : V 3-5 m/s. skýjað og
smá skúrir. Hiti 9 til 13 stig. .
hæg sV-átt og skýjað eN síðdegisskúr-
ir Víða um laNd. hiti 10 til 16 stig.
höfuðborgarsVæði : V 3-5 m/s og skúrir
síðdegis. Hiti 10 til 14 stig. .
suðvestanátt átt og skúrir
suðvestanátt og skúrir um
allt land, en þó þurrt austantil
fram yfir hádegi. milt í veðri.
dálitlar skúrir V-til á morgun,
en skýjað með köflum a-lands
og síðdegisskúrir á
sunnudag.
10
9 13
14
11
10
10 13 14
10
11
11 14 15
11
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
m ér er aftur farið að líða eins og stofnanabarni, segir Guðmundur Har-
aldsson. Honum finnst hann álíka
vanmáttugur og bjargarlaus í viður-
eigninni við Dróma, fyrirtækið sem
innheimtir kröfur hins fallna banka
SPRON og hann var sem barn á
vistheiminum íslenska ríkisins.
„Ég virðist engan rétt hafa gagn-
vart Dróma. Þeir bera enga ábyrgð
og fara eftir sínum geðþótta.“
Árið 2005 tók Guðmundur 12,6
milljóna króna myntkörfulán hjá
SPRON til að endurfjármagna verð-
tryggð lán sem hvíldu á íbúð sem
hann á í Kópavogi. Hann segir að
sér hafi verið ráðlagt að taka lánið,
það væri skynsamlegt. Enginn hafi
varað við því að hætttulegt væri að
skulda í erlendum myntum þegar
tekjurnar væru í íslenskum krón-
um. Íbúðin er nú metin á svipaða
fjárhæð og 2005 en lánið stendur í
um 25 milljónum, að mati Dróma.
Guðmundur, sem er búinn að borga
um sjö milljónir af láninu, átti áður
um helming af verði íbúðarinnar en
sú eign er horfin. Hann berst enn
við að standa í skilum en Hæstirétt-
ur telur að lánið hafi verið löglegt.
Guðmundur segir einkennilegt
að sum af þessum lánum hafi verið
dæmd lögleg en önnur ólögleg, þótt
lánin séu með sömu uppbyggingu
en eilítið mismunandi orðalagi í
lánasamningum. „Þetta er klárlega
mismunun en Hæstiréttur dæmir
þetta svona,“ segir Guðmundur.
„Ég hef enga leiðréttingu fengið,"
segir Guðmundur. Hæstiréttur
telur að sams konar lán og hann
tók lögleg. Hann gagnrýnir að
hann hafi ekki fengið að vita þegar
Drómi felldi einhliða niður sam-
komulag um að hann mætti borga
6.000 krónur á mánuði af hverri
milljón meðan málið væri í bið. Nú
séu innheimtuaðgerðir gegn fólki
komnar í gang aftur af fullri hörku.
Guðmundur er ekki einn þeirra 160
einstaklinga sem fengu endurút-
reikninga sem nú er búið að fella
niður eins og sagt var frá í fjölmiðl-
um á dögunum.
„Þetta er sagt löglegt og við
sem neytendur virðumst ekki hafa
nokkurn rétt. Það er brotið á mann-
réttindum okkar. Ég hef verið í fjár-
hagslegri gíslingu í á fimmta ár.“
Guðmundur segist orðinn lang-
þreyttur á að bíða eftir því að
skuldunautar Dróma fái að njóta
sama réttlætis og þeir sem skulda
stóru bönkunum – að ógleymdum
almennu niðurfærslunum sem fólki
er lofað af nýrri ríkisstjórn. „Ég
er neytandi sem samdi við banka-
stofnun, sem var bæði undir eftirliti
frá ríkisstofnun sem heitir FME, og
starfaði í skjóli laga um neytenda-
vernd. Bankinn brást og ríkið brást
og lántakendur eiga að taka á sig
allt hrunið og Drómi, sem er inn-
heimtustofnun, innheimtir af fullri
hörku. Þeir bera enga ábyrgð og
sækja öll mál af hörku en ég þarf að
sækja minn rétt og borga lögmanni
20.000 krónur á tímann til að verja
mig."
Þótt Drómi hafi samskipti við
skuldara og annist innheimtu
eru það ýmist erlendir sjóðir eða
þá dótturfélög Seðlabankans og
Arionbanki sem eiga nú kröfurnar
og fá peningana sem Drómi inn-
heimtir, segir Guðmundur. Mikið
hefur verið þrýst á stjórnmálamenn
að tryggja skuldunautum Dróma
sömu stöðu og það fólk hefur sem
tók lán í stóru bönkunum þremur -
en án árangurs.
Og Guðmundur segir að honum
finnist hann aftur lentur í klónum
á kaldlyndu og sinnulausu yfir-
valdi, líku yfirvaldinu sem rak vist-
heimili barna hér á árum áður og
tók þá Guðmund og bróður hans
frá berklasjúkum foreldrum. Þá var
foreldrunum bannað að heimsækja
þá bræður af því að tilfinningasam-
band barnanna við foreldra sína
væri of sterkt. Áratugir liðu áður en
Guðmundur fékk sanngirnisbætur
eftir dvölina á vistheimilinum og
hann hefur ekki gefið upp von um
að hafa líka sigur að lokum í barátt-
unni gegn Dróma, sem tekur mikið
af tíma hans og annarra aðstand-
enda baráttusamtakanna Samstaða
gegn Dróma.
Pétur gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Líður aftur eins og stofnana-
barni eftir slaginn við Dróma
Guðmundur Haraldsson segir að staða sín í baráttunni við Dróma og sinnuleysi yfirvalda minni
sig á þá stöðu sem hann hafði þegar hann var barn á illræmdum vistheimilum ríkisins.
guðmundur haraldsson starfar í hópnum samstaða gegn dróma og hefur ekki
gefið upp von um að þeir sem drómi innheimtir skuldir hjá fái að njóta sömu rétt-
inda og viðskiptavinir stóru bankanna þriggja. Mynd/Hari
UNesCo hefur samþykkt
umsókn Þjóðskjalasafns
um að manntalið 1703
verði sett á heimsminja-
skrá. manntalið 1703 er
líklega elsta manntal
í heimi, sem enn er
varðveitt, þar sem getið
er allra þegna heillar
þjóðar með nafni, aldri
og stöðu. Það er einstök
heimild um íslenskt
þjóðfélag í upphafi 18.
aldar. ákvörðun um að
taka manntalið spratt
af bágbornu efnahags-
ástandi landsins og harð-
indum í lok 17. aldar. árni
magnússon prófessor við
kaupmannahafnarhá-
skóla og Páll Vídalín
varalögmaður fengu það
verkefni að kanna ástand
og efnahag landsins og
taka manntal.
Hagstofa íslands
gaf manntalið út í
prentuðum heftum
á árunum 1924-1947,
sem síðar voru sam-
einuð í bókarform. árið
2001 var manntalið
1703 í fyrsta sinn birt
notendum alnetsins á vef
Þjóðskjalasafns íslands.
Núna er stafræn gerð
manntalsins á mann-
talsvef Þjóðskjalasafns,
manntal.is
kalla eftir tillögum vegna
Feneyjartvíærings 2015
Nýtt fyrirkomulag verður við val á fulltrúa
íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2015.
í fyrsta sinn er kallað eftir tillögum sem
valið verður úr. með nýja fyrirkomulaginu
er horfið frá því lokaða ferli sem hingað til
hefur verið viðhaft við val á fulltrúa íslands
að því er kemur fram í tilkynningu frá kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar. ekki er
óskað eftir ábendingum heldur samstarfs-
aðilum sem munu fylgja verkefninu eftir
til enda og eru listamenn, sýningarstjórar,
listfræðingar, söfn og sýningarstaðir
sérstaklega hvött til að senda inn tillögur.
Undanfarin ár hefur fagráð kynningarmið-
stöðvarinnar valið fulltrúa íslands og mun
nýja fyrirkomulagið ekki leysa fagráðið
af hólmi, heldur veita fólki tækifæri til að
koma verðugum verkefnum á framfæri.
-dhe
Ferðaþjónustan
leggst gegn einokun
samtök ferðaþjónustunnar skora á
Vegagerðina að falla frá samningi við
samband sveitarfélaga á suðurnesjum
um almenningssamgöngur á milli
suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Samningurinn felur m.a. í sér einkaleyfi
á akstri á milli Flugstöðvar leifs eiríks-
sonar(Fle) og reykjavíkur og telja sam-
tökin nauðsynlegt að fella það ákvæði
niður þar sem ekki eru forsendur fyrir
einokun á leiðinni, enda er samkeppni
til staðar sem sinnir þjónustu við flug-
farþega,“ segir í tilkynningunni. í áliti
samkeppniseftirlitsins var mælst til þess
að Vegagerðin taki samninginn þegar til
endurskoðunar og stöðvi framkvæmd
útboðsins. Það hefur innanríkisráðherra
sömuleiðis gert.
manntalið 1703 á heimsminjaskrá uNesCo
Í vikunni kom fram að Drómi hafi sent um
það bil 160 einstaklingum, sem fengið
höfðu endurútreiknuð myntkörfulán í
kjölfar árna Páls- laganna svokölluðu bréf
þar sem endurútreikningurinn var aftur-
kallaður. lánin yrðu innheimt í samræmi
við upphaflegar kröfur.
„Mín viðbrögð eru þau að mér finnst þetta
algerlega með ólíkindum. mér er nánast
orða vant yfir þessu og tel þetta algjörlega
óásættanlegt,“ segir ásta sigrún Helga-
dóttir, umboðsmaður skuldara í samtali
við rúV um málið. Hún segir að drómi
eigi að einbeita sér að því að gera kröfur á
ríkið en ekki fjölskyldur og einstaklinga.
drómi gegnir sama hlutverki og slit-
astjórnir bankanna; að gæta hagsmuna
kröfuhafa sProN og Frjálsa fjárfestingar-
bankans með því að hámarka verðmæti
eigna þrotabúanna. kröfuhafarnir, sem
drómi vinnur fyrir, eru erlendar fjár-
málastofnanir, dótturfélög seðlabanka
íslands og arionbanki. Þeir einstaklingar
sem drómi hefur innheimt hjá gengis-
tryggð lán hafa lengi talið sig bera skarðan
hlut frá borði og segjast ekki njóta fullra
réttinda heldur hafi þeir mun lakari stöðu
en lántakar stóru bankanna þriggja. lánin
sem gömlu viðskiptabankarnir veittu eru
ekki í umsjón slitastjórna heldur hluti af
eignum nýju bankanna sem voru búnir til
á rústum hinna gömlu. eins og kunnugt
er var mjög misjafnt orðalag í lánasamn-
ingum myntkörfulánanna og hafa sumar
tegundir þeirra verið dæmdar ólögmætar
en aðrar ekki.
Drómi er slitastjórn fyrir SPRON og Frjálsa
4 fréttir Helgin 28.-30. júní 2013