Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.06.2013, Page 20

Fréttatíminn - 28.06.2013, Page 20
ólst upp í Breiðholti og fór í FB. Áhuginn á eldamennsku var þegar til staðar hjá honum á þeim árum og tók hann fyrsta árið í kokkanám- inu þar. Hann ákvað hins vegar að feta í fótspor foreldra sinna og lærði viðskiptafræði í Háskóla Íslands. „Ég lét blindast af bönkunum,“ segir Árni sem starfaði um skeið í reikningshaldi hjá Glitni. Hann flutti svo til Flórída en þar ætlaði hann að fara að læra viðskipta- tölvufræði en kveðst sem betur fer hafa orðið afhuga því. „Þá fluttist ég til New York, greip tækifærið og skellti mér í kokkaskóla,“ segir hann. Árni starfaði á tveimur veitinga- stöðum á Manhattan. Fyrst á ABC Kitchen á meðan hann var í námi í The French Culinary Institute. Eftir að námi lauk starfaði hann á Park Avenue. „Báðir háklassastað- ir,“ segir hann. Eitt eftirminnilegt atvik frá kokkastarfinu var þegar fyrrum Bandaríkjaforseti snæddi á veit- ingastað Árna. „Ég bjó til salat fyrir Bill Clinton. Dóttir hans er „vegan“ og sannfærði hún pabba sinn um að feta þá braut. Þetta var mjög gaman,“ segir Árni og hlær. Á Park Avenue var Árni línu- kokkur og fékk tíu dollara í laun á tímann, 1.243 krónur íslenskar. Það eru algeng laun í þessum bransa þar í borg og staðfestir Árni að erfitt geti verið að framfleyta sér á þeim. Hann segir þó að reynslan hafi verið ómetanleg og erfiðisins virði. „Maður er ekki í þessu til að græða pening heldur af ástríðu. Það er gaman að vera hluti af teymi þar sem flestir deila þessari ástríðu manns og allir leggjast á eitt til að skapa eitthvað frábært í glundroð- anum sem oft vill verða í eldhúsinu. Ég get vel hugsað mér að vinna aft- ur í New York en nú á Hið blómlega bú hug minn allan. Ég hef aldrei séð jafn mikið af starfsfólki og á Park Avenue. Við vorum oft sex á línunni og aukalega fjórir bara í eftirréttum. Svo var yfirkokkur og þrír aðstoðaryfir- kokkar. Þá voru þjónar sem sáu um að gestum liði vel en svokallaðir „runners“ sáu um að færa gestum matinn og drykkina. Foreldrar mínir komu og borðuðu þarna. Þau sögðu að það væru fleiri að vinna þarna en borða.“ Þannig stóðu sumsé leikar hjá Árna þegar Bryndís og Guðni Páll buðu honum að stjórna þættin- umwe. Þau héldu samt sambandi og Árni féllst á endanum á að taka að sér verkið. „Þremur mánuðum síðar hugsaði ég með mér, fjand- inn, þetta er góð hugmynd. Kýlum á þetta! Þannig að ég sagði upp í vinnunni og var kominn upp í sveit tveimur vikum síðar.“ Væri gaman að gera aðra þáttaröð Rúmt ár er nú liðið og enn eru þau búsett í Árdal, þó Árni hafi reyndar eitthvað verið á ferðinni enda á hann nú kærustu í Hollandi. Í Árdal Guðni Páll tíndi túnfífla í túnfætinum í Árdal. Árni djúpsteikti þá í tempura og þeir voru svo snæddir með hunangi. Og brögðuðust vel. Bryndís Geirsdóttir framleiðandi, Guðni Páll Sæmundsson leikstjóri og Georg sonur þeirra ásamt Árna í Árdal. Georg fagnaði tveggja ára afmæli sínu þegar Fréttatímann bar að garði. Betri notaðir bílar Toyota Kauptúni Kauptúni 6 Sími: 570-5070 Yaris Hybrid 1500 Bensín/Rafmagn sjálfsk. Á götuna 17.08.12 Ekinn 11.400 km Verð: 3.290.000 Raðnr: 999043 Auris Hybrid 1800 Bensín/Rafmagn sjálfsk. Á götuna 17.11.10 Ekinn 48.000 km. Verð: 3.450.000 Raðnr: 999117 4ár 75% 2,1lítrar CO2 49g Prius Plug-in 1800 Bensín/rafmagn sjálfsk. Á götuna: 03.07.12 Ekinn 4.100 km. Verð: 5.390.000 Raðnr.: 999114 2ár 75% 4,0lítrar CO2 89g 4 ár 75% 3,5lítrar CO279g RAV4 GX 2000 Bensín, sjálfsk. Á götuna 31.05.12 Ekinn 31.500 km. Verð: 5.250.000 Raðnr: 998943 3ár 75% 7,6lítrar CO2177g Land Cruiser 150 GX 3000 Dísil, sjálfsk. 7 manna. Á götuna: 21.10.11 Ekinn 38.600 km. Verð: 9.690.000 Raðnr: 999041 3 ár 75% 8,1lítrar CO2213g P P P 3ár 75% 4,9lítrar CO2130g Urban Cruiser 1400 Dísil, beinsk. 4WD Á götuna 14.06.12 Ekinn 29.600 km. Verð: 3.820.000 Raðnr: 999186 Úrval notaðra bíla og fleiri litir í boði á www.toyotakauptuni.is 20 viðtal Helgin 28.-30. júní 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.