Fréttatíminn - 28.06.2013, Síða 21
Ný 7 kg þvottavél með íslensku stjórnborði og íslenskum
leiðarvísi. 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Nýhönnuð tromla
(„waveDrum”) fer einstaklega vel með þvottinn. 15 mín.
hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið leitast við
að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta („antiVibration
Design”).
Við leggjum áherslu á hágæða vörur og fyrsta flokks þjónustu
á góðu verði.
Kynningarverð:
124.900 kr. stgr.
Þvottavél, WM 14Q370SN
www.sminor.is
Hraðkerfi 15
7 kg
Tekur mest
anti-vibration
Design
Orkuflokkur
Ný Siemens þvottavél
- með öllum þeim eiginleikum sem menn þurfa í dagsins önn.
Ariel fljótandi þvottaefni
og Lenor mýkingarefni
fylgja með öllum
Siemens þvottavélunum.
seríu næsta sumar. Þá yrði hún að
vera á næsta stigi. Í fyrstu þátta-
röðinni var borgarbarnið Árni að
kynnast sveitinni og bændastörf-
unum. Í þeirri næstu væri hann
reynslunni ríkari og ef til vill ögn
brattari í tilraunum sínum,“ segir
Guðni.
Markaðurinn kalli eftir góðum
afurðum
En hvað stendur upp úr eftir að
hafa búið í sveit í eitt ár? Hvað
hafa þau lært?
„Kannski að hlutirnir eru ekki
alltaf eins flóknir og þeir virðast.
Við ræktuðum til að mynda baunir
og margar tegundir af salati i
garðinum okkar. Salatið óx villt og
galið og var einstaklega fallegt og
bragðgott. Af hverju er ekki hægt
að nálgast þess konar íslenskar
afurðir í verslunum hér?“ spyr
Bryndís.
Þá segjast þremenningarnir
hafa öðlast ágætis skilning á því
hvernig íslenskur landbúnaður
gengur fyrir sig. Þau segjast
ánægð með gæði framleiðslunnar
en finnst að svigrúm sé til að auka
úrvalið töluvert. Þar komi neyt-
endur sterkt inn. „Við teljum að
markaðurinn og framleiðendurnir
eigi samleið og nauðsynlegt sé
að góð tengsl séu þar á milli. Við
borgarbörnin eigum mikið undir
því að bændurnir séu almenni-
legir og vandi sig við framleiðsl-
una en þá kemur á móti metnaður
okkar neytendanna til að styðja
góða framleiðendur með því að
vanda vöruval. Ég er spennt að sjá
hvernig landbúnaðurinn þróast og
ég held að það muni velta mikið
á neytandanum,“ segir Bryndís
og Guðni tekur við: „Við sitjum
á gullkistu, hráefnið er gott, hér
eru víðir vellir og mikið land til. Ef
hægt er að kenna markaðinum að
kalla eftir góðri afurð þá fær hann
góða afurð.“
Undir þetta tekur Árni. „Áhersl-
an er alltaf að hagræða, að fram-
leiða meira og meira. Það þyrfti
að breyta þessu og segja: þetta er
varan, svona er hún best og vinna
svo í kringum það.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
er að vísu enginn búskapur þetta
sumarið og eftirvinnsla þáttanna
hefur reynst svo tímafrek að ekki
er enn búið að setja niður í mat-
jurtagarðinn. Guðni Páll segir þó
að það standi til bóta. Þættirnir eru
að renna sitt skeið á enda, sjöundi
þáttur var sýndur á Stöð 2 í vikunni
og sá síðasti fer í loftið í næstu viku.
Framhaldið segja þau óráðið, mikill
vilji sé til að halda áfram og fram-
leiða fleiri þáttaraðir en framleiðsla
á svona efni er kostnaðarsöm og
hefur reynst þung í fjármögnun.
Samt hafi þau öll gegnt mörgum
hlutverkum til að láta þessa þátta-
röð ganga upp.
Þau segjast hafa fengið margar
fyrirspurnir um hvort þættirnir
verði gefnir út á DVD og vilji gjarn-
an verða við þeim óskum.
Hugmyndir Fréttatíma-manna um
að þau gefi út matreiðslubók til að
hamra járnið meðan það er heitt fá
ekkert sérstakar undirtektir, enda
telja þau sig ekki hafa nægan efni-
við enn sem komið er.
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur
næstu þáttaröð?
„Það væri gaman að fara í aðra
Það eru mikil tækifæri
í sveitinni, maður sér
það eftir að hafa verið
hér í ár. Það er hægt
að byggja upp áhuga-
verð fyrirtæki hér.
viðtal 21 Helgin 28.-30. júní 2013