Fréttatíminn - 28.06.2013, Síða 40
40 heimili Helgin 28.-29. júní 2013
Húsgögn Kraum selur íslensKa Húsgagnaframleiðslu
Hönnun gólf- og veggflísar
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
Er vagninn rafmagnslaus
Frístunda rafgeymar í miklu úrvali
?
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is
e rla Sólveig Óskarsdóttir hönnuður hefur nú sett í framleiðslu stofuborð sem smíðuð verða hér á landi. Borðin
eru í tveimur stærðum og má fella hið
minna inn í hið stærra, líkt og gömlu inn-
skotsborðin, sem svo vinsæl voru á
árum áður, að sögn Erlu. „Þau
eru þannig gerð að
þau ná yfir sófann og
því er gott að nota þau
til að borða við eða sem
tölvuborð,“ segir hún.
Borðin má fella
saman og fer lítið fyrir
þeim í flutningum.
Erlendir ferðamenn
hafa tekið borðunum
af miklum áhuga en
þau eru seld í hönn- unar-
versluninni Kraum í Aðalstræti.
Borðin eru smíðuð í Vogum á Vatnsleysu-
strönd, þar sem Erla segist hafa fundið mjög færa
smiði. Hún hefur einnig hannað sófa í sömu línu en
framleiðsla á honum er ekki enn komin af stað. Frum-
gerð sófans er þó til sýnis í Kraum og kannar Erla nú
hvar hentugast væri að framleiða hann, hvort sem er
hér á landi eða erlendis, og þá
til að mynda í Danmörku.
Aðspurð segir Erla um-
hverfi hönnuða á Íslandi
mjög ábótavant og mikill inn-
flutningur húsgagna standi þeim
fyrir þrifum. „Opinberir aðilar þurfa að
breyta hugarfari sínu og marka sér þá
stefnu að kaupa einungis íslensk hús-
gögn líkt og dönsk yfirvöld hafa gert.
Mér finnst sorglegt að sjá dönsk húsgögn
í opinberum byggingum hér á landi,
sem er svo algengt, í stað þess að
sjá fallega, íslenska hönnun. Það
myndi breyta miklu fyrir hönnuði
og einnig yrði íslensk framleiðsla
þannig sýnilegri. Það má ýmsu koma
til leiðar með hugarfarsbreytingu,“
segir hún.
Erla stefnir á áframhaldandi þróun á
þessari húsgagnalínu og gæti hugsað sér
að framleiða borðin í ýmsum litum og viðarteg-
undum.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Íslenskt stofuborð
úr Vogunum
Erla Sólveig Óskarsdóttir húsgagnahönnuður fann flinka smiði í Vogum á Vatnsleysuströnd til að
framleiða stofuborðin sem hún hefur hannað. Hún leitar nú að framleiðanda fyrir sófann sem
hannaður er við borðin.
Erla Sólveig Óskarsdóttir húsgagnahönnuður við borðin og sófann sem eru í nýrri húsgagnalínu sem hún hefur hannað. Einungis
borðin eru komin í framleiðslu enn sem komið er.
Marokkósk mynstur á gólfið
Eitt af því heitasta í innanhússhönnun
um þessar mundir eru gólf- og veggflísar
í marokkóskum stíl. Meðal veitingahúsa
sem skarta slíkum flísum er kaffihúsið í
Iðuhúsinu á Lækjargötu og nýr veitinga-
staður og gúrme-verslun sem bráðlega
mun opna í nýju hóteli í Kirkjuhvoli við
Dómkirkjuna. Flísar í þessum stíl brjóta
upp nútímalegan og mínimalískan stíl
sem hefur verið allsráðandi undanfarin
ár og virka í hvaða herbergi sem er, jafnt
í eldhús, baðherbergi og stofu.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is