Fréttatíminn - 28.06.2013, Side 42
42 gönguferðir Helgin 28.-30. júní 2013
GönGuferðir rósa siGrún Jónsdóttir er nýkomin frá HornbJarGsvita
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.isFERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Seiðmagn óbyggðanna
Ferðafélag Íslands hefur gefið út Seiðmagn óbyggðanna,
ferðaþætti eftir Gerði Steinþórsdóttur. Einstakar ferðalýsingar
Gerðar að mestu byggðar á greinum hennar sem birtust í
Morgunblaðinu undir heitinu ,,Á slóðum Ferðafélags Íslands.“
Fæst á skrifstofu FÍ Mörkinni 6 og í helstu bókabúðum.
r ósa Sigrún Jónsdóttir, myndlistarmaður og leið-sögumaður hjá Ferðafélagi
Íslands, drakk í sig ást á náttúru
og útivist með móðurmjólkinni.
„Ég er alin upp í sveit þar sem ég
elti kýr og kindur fram yfir tvítugt,
var alltaf úti og í sterku sambandi
við náttúruna. Í uppeldi mínu var
hálendið sveipað dýrðarljóma og
við reyndum að fara í hálendis-
ferðir á hverju sumri,“ segir hún.
Rósa Sigrún er gift Páli Ásgeiri Ás-
geirssyni sem hefur skrifað fjölda
leiðsögubóka um Ísland. Hann
starfar einnig sem leiðsögumaður,
er mikill náttúruunnandi og náðu
þau strax saman þegar þau kynnt-
ust árið 1987. „Eftir það höfum við
verið með gönguskóna á fótunum,“
segir Rósa.
Þau hjónin fara mikið saman í
ferðir og nú á miðvikudagsmorgn-
inum sneru þau aftur heim eftir að
hafa verið leiðsögumenn í fjögurra
daga gönguferð með starfsmönn-
um Arion-banka á Hornströndum.
„Við fórum með þrjátíu manna hóp
norður á Hornbjargsvita. Þetta var
alveg dýrðleg ferð. Fyrst er ekið til
Ísafjarðar, farið með bát inn í botn
Lónafjarðar og þaðan er gengið
12 kílómetra með dagpoka yfir á
Hornbjargsvita.“ Þar er hús frá
árinu 1930 með gistiaðstöðu fyrir
allt að fimmtíu manns með eldhúsi
og öllum búnaði. „Þetta er í raun
eins og stórt heimili við ysta haf,“
segir Rósa. Frá Hornbjargsvita
fóru þau síðan með hópinn í dags-
ferðir út frá vitanum. „Þarna iðar
allt af lífi, fuglinn í björgunum,
refurinn og yrðlingarnir, og gróð-
urinn bókstaflega sprettur upp
undan fótum manns.“ Spurð hver
sé uppáhalds staðurinn hennar á
Íslandi til að fara í gönguferður
segir hún óhikað: „Í augnablikinu
er þetta í mestu uppáhaldi.“
Hún kom fyrst til Hornstranda
árið 1998. Í framhaldinu skrifaði
Páll Ásgeir ferðahandbók um
Hornstrandir og gengu þau þar
mikið til að afla efnis í bókina
sem inniheldur kort, ljósmyndir
og aðrar upplýsingar. „Við fórum
þangað í marga rannsóknarleið-
angra og höfum bundist svæðinu
tryggðarböndum og reynum að
fara þangað allavega einu sinni á
ári,“ segir hún.
Rósa bendir á að þó víða á
Hornströndum séu bæði nýjar og
gamlar göngugötur sé þetta ekki
auðvelt gönguland, svæðið sé grýtt
og mikið um göngur upp og niður.
Þetta henti því ekki fólki nema í
góðu formi.
Fjögurra daga ferðin sem þau
eru nýkomin úr hófst á 12 kíló-
Hálendið sveipað dýrðarljóma
Rósa Sigrún Jónsdóttir heillaðist ung af náttúru og útivist. Hún
er nýkomin frá Hornbjargsvita þar sem hún var leiðsögumaður
hjá hópi starfsmanna Arion-banka. Eiginmaður hennar, Páll
Ásgeir Ásgeirsson, er einnig mikill útivistarmaður og hafa þau
nánast verið með gönguskóna á fótunum frá því þau kynntust.
Rósa Sigrún Jónsdóttir ásamt eigin-
manni sínum, Páli Ásgeiri Ásgeirssyni.
Bæði eru þau miklir göngugarpar.
Ljósmynd/Jón Smári Einarsson
metra dagleið. Á degi tvö var far-
inn langur hringur út á Hornbjarg
þar sem gengnir voru um 20 kíló-
metrar. Þriðji dagurinn var róleg-
ur, þau heimsóttu eyðibýli, kynntu
sér refarannsóknir og skoðuðu
náttúru og dýralíf í Hrolleifsvík og
Bjarnarnesi. Fjórði dagurinn var
heimfarardagur. Þá tók trússbátur
allt dótið og flutti til Ísafjarðar en
hópurinn gekk yfir Kýrskarð, nið-
ur í Höfn í Hornvík og um Hafnar-
skarð niður í Veiðileysifjörð.
Fjallgöngur eru líf og yndi
þeirra hjóna. Páll Ásgeir stýrir
verkefninu „Eitt fjall á viku“ hjá
Ferðafélagi Íslands og er Rósa þar
fararstjóri. Þau eru saman með
fjölda fastra gönguhópa sem þau
ganga með, aðallega dagsferðir á
veturna en lengri ferðir á sumrin.
Með fram þessu sinnir Rósa mynd-
listaráhuga sínum og er að fara
að opna sýningu í Slunkaríki á
Ísafirði með verkum tileinkuðum
vestfirskum fjöllum þar sem hún
blandar saman bróderingu og
blýantsteikningu. Annars gengur
lífið sinn vanagang hjá þeim
hjónum, þau eru saman með fjölda
fastra gönguhópa sem þau ganga
með, aðallega dagsferðir á veturna
en lengri ferðir á sumrin.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Bróderuð blýantsteikning eftir Rósu af Traðarhyrnu í Bolungarvík.
Gönguhópur rakst á lágfótu í Hornvík. Refurinn er eina villta landspendýrið þegar
hér var numið land. Ljósmynd/Jón Smári Einarsson