Fréttatíminn - 28.06.2013, Page 54
54 bækur Helgin 28.-30. júní 2013
GLORIOUSLY WASTED (16)
LAU: 18:00, 20:00, 22:00
SUN: 18:00, 20:00, 22:00
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
Á A
NN
AN
VE
G
MYS
TER
Y ISL
AND
FLIC
KBO
OK F
ILMS
OG S
INDR
I KJA
RTAN
SSO
N KYN
NA K
VIKM
YND
EFT
IR HA
FST
EIN G
UNN
AR S
IGUR
ÐSS
ON A
ÐAL
HLU
TVE
RK H
ILM
AR G
UÐJÓ
NSS
ON S
VEIN
N
ÓLA
FUR
GUN
NAR
SSO
N OG
ÞOR
STEI
NN B
ACH
MAN
N TÓN
LIST
ARS
TJÓR
N KG
B HLJ
ÓÐV
INNS
LA BÍ
ÓHL
JÓÐ
KLIPP
ING K
RIST
JÁN L
OÐM
FJÖR
Ð LEIK
MYN
D HÁ
LFD
ÁN P
EDER
SEN
KVIK
MYN
-
DAT
AKA
ÁRN
I FIL
IPPU
SSON
FRAM
LEIÐ
END
UR ÁR
NI FI
LIPP
USS
ON D
AVÍÐ
ÓSK
AR Ó
LAFS
SON
HRE
INN
BEC
K TO
BIAS
MU
NTH
E TH
EO Y
OUN
GST
EIN S
INDR
I KJA
RTA
NSS
ON
SAG
A EF
TIR H
AFST
EIN G
UNN
AR S
IGU
RÐS
SON
OG S
VEIN
ÓLA
F GU
NNA
RSS
ON H
AND
RIT H
AFS
TEIN
N GU
NNA
R SI
GUR
ÐSS
ON L
EIKS
TJÓR
N HA
FSTE
INN
GUN
NAR
SIG
URÐ
SSO
N
HILMAR GUÐJÓNSSON
SVEINN ÓLAFUR GUNNARSSON
OG ÞORSTEINN BACHMANN
Í KVIKMYND EFTIR
HAFSTEIN GUNNAR SIGURÐSSON
FRUMSÝND
2. SEPTEMBER
The Coproduction Office presents a Zik Zak Filmworks · Essential Filmproduktion · The Bureau · M&M Productions · Production
Cast Tómas Lemarquis · Thröstur Leó Gunnarsson · Elı́n Hansdóttir · Anna Fridriksdottir · Hair and Make up Frı́da Metúsalemsdóttir · Costume Design Linda B. Árnadóttir · Tanja Dehmel · Set Design Jón Steinar Ragnarsson · Music slowblow
Sound Design Pétur Einarsson · Editing Daniel Dencik · Director of Photography Rasmus Videbæk DFF · Co-Producer Sol Gatti-Pascual · Executive Producers Lene Ingemann · Tivi Magnusson · Susanne Marian and Prof. Dr. Klaus Keil
Thorfinnur Omarsson · Lucas Schmidt · Michael Schmid-Ospach · Paul Trijbits · Vinca Wiedemann · Producers Philippe Bober · Kim Magnusson · Skúli Fr. Malmquist · Thorir Snær Sigurjónsson
Written and directed by Dagur Kári Supported by Danish Film Institute · Film Council · Filmboard Berlin-Brandenburg · Filmstiftung Nordrhein-Westfalen · Islandic Film Foundation · In cooperation with ZDF Das kleine Fernsehspiel Arte
D I G I T A L
THE NORDIC FILM AWARD
GOTHENBURG 2003
GRAND JURY PRIZE
ANGERS 2003
MOVIEZONE AWARD ROTTERDAM 2003 SWEDISH CHURCH AWARDBEST MUSIC
ANGERS 2003
IPRESCI GOTHENBURG 2003
COOL CUTS
(WITH ENGLISH SUBTITLES)
*SEE SCHEDULE ON BIOPARADIS.IS
Nei! Níu milljón nautheimsk náhveli!
Fari allir blaðamenn á blálogandi billjón faðma
dýpi. Svona er þessi sorpblaðamafía! Fari það í
þúsund þorska, að maður
hefði þegið að þaggað
væri niður í þeim!
Ég skal flytja þig á sjálf-
virku færibandi og fabríkera úr þér fiskimél.
Fari það í tuttugu trilljónir af
tútnum túnfiskum!
Komdu hérna með mér
vesæli vellingur!
Kolsvartir kolkrabbar og
billjón blekaðir beinhákarlar.
Trilljón truntufýlur og tryllingsleg trönusíli!
Þegar ég kem klónum í þig, skal skal hausskera
þig, kverka þig, slógdraga, roðfletta, flaka og
hengja á rá!
Lúðulaggar! Lubbaleg lindýr. Lúsugir og graut-
linir niðurgöngulaxar.
Þú mannkynssmánarblettur! Þú... mann-
vonnskuskeggapaskeppna! Ættir að hengjast
til þerris á hæstu rá!
Snautaðu burt, svívirðilegi sjórekni draugur
niður í subbulegu marglyttusúpuna!
Launmorðingi! Ég ætti að láta þig éta þitt eigið
lúsuga skegg!
Skammastu þín burt, skítugi skrápháfur,
skammarlegi skarkoli, skammarblettur,
skemmdur skyrhákall!
Gráloðna, grútskítuga, grindhoraða grásleppa.
Viðbjóðslegi, vitlausi viðurstyggðar vöðuselur.
Sígildar svívirðingar Kolbeins
Kolbeinn kafteinn setur sinn sterka svip á þær Tinna-bækur þar sem hann er í slagtogi með
blaðamanninum hjartahreina. Kolbeinn er alger andstæða Tinna; drykkfelldur, veikgeðja og
stjórnlaus en að sjálfsögðu góð sál með stórt hjarta. Kjafturinn á Kolbeini er ekki síður mikill
og blótsyrði hans og formælingar eru með því eftirminnilegasta í Tinna-bókunum,
sérstaklega í þýðingum Lofts Guðmundssonar en þar fær sjóhundurinn að njóta sín
á kjarnyrtri íslensku. Hér eru nokkrar sígildar svívirðingar kafteinsins.
Tvær til
viðbótar
Eitthvað er það í fari hins
hjartahreina Tinna sem
viðheldur vinsældum hans
og gerir það af verkum
að áhuginn á honum
erfist milli kynslóða. Ekki
spillir svo fyrir að leikstjór-
arnir Steven Spielberg
og Peter Jackson ákváðu
fyrir nokkrum árum að
gera bíómyndaþríleik um
hetjuna.
Fyrsta myndin, The
Adventures of Tintin, í leik-
stjórn Spielbergs kom út
fyrir tveimur árum, féll vel
í kramið hjá unga fólkinu
og hefur án efa aflað Tinna
nýrra lesenda.
Forlagið brást fyrir
nokkrum misserum við
eftirspurninni eftir Tinna
og hóf endurútgáfu á
bókunum sígildu í smærra
broti en áður þekktist.
Nú hafa tvær góðar bæst
við en Vindlar faraós og
Blái lótusinn komu út fyrir
skömmu.
Í Vindlar faraós ætla
Tinni og Tobbi í skemmti-
siglingu til Kína en hitta
um borð hinn snarruglaða
prófessor Fílímon Flanósa
sem býður þeim með
sér til Egyptalands en
þegar þangað er komið
flækist Tinni inn í áætlanir
óvægins smyglhrings. Í
Bláa lótusnum slappar
Tinni svo af í góðra vina
hópi á Indlandi eftir að
hafa flett ofan af alþjóð-
legum eiturlyfjasmygl-
urum. Þangað berast
honum óljós skilaboð sem
reka hann af stað í enn eitt
æsilegt ævintýrið.
Tinna bækurnar í nýja
brotinu eru nú orðnar
átta en auk Bláa lótussins
og Vindla faraós eru
komnar út Leyndardómur
Einhyrningsins, Fjár-
sjóður Rögnvaldar rauða,
Leynivopnið, Krabbinn
með gylltu klærnar,
Skurðgoðið með skarð í
eyra og Kolafarmurinn.
T
inni er hugarfóstur
belgíska teiknarans
Georges Remi sem
kallaði sig ætíð Hergé.
Myndasöguhetjan
hlýtur að teljast skriflatasti blaða-
maður samanlagðrar dægurmenn-
ingarsögunnar en þrátt fyrir að vera
titlaður blaðamaður hefur hann
varla skilað af sér nema tveimur til
þremur greinum í prentun á löngum
og æsispennandi ferli.
Tinni er dyggðum prýddur,
hrekklaus en útsjónarsamur og
þrautgóður á raunastundum sem
hefur ítrekað komið sér vel á því
heimshornaflakki sem höfundur
hans sendi hann á í vel yfir tuttugu
bókum. Í raun er Tinni sjálfur svo
blæbrigðalaus persóna að ef hann
nyti ekki furðulegra aukapersóna
við teldist hann líklega með leiðin-
legri mönnum og ekki þarf að þræta
fyrir að bækurnar um hann væru
talsvert fátæklegri ef Kolbeinn
kafteinn, prófessor Vandráður og
rannsóknarlögreglu-
mennirnir Skapti
og Skafti lífg-
uðu ekki upp á
síðurnar.
Tinni er
skilgetinn sonur
20. aldarinnar og þvælist
í frekar raunsæjum heimi í
kringum miðbik síðustu aldar.
Hann er því óhjákvæmilega barn
síns tíma og hefur fengið nokkrar
gusur yfir sig í seinni tíð þegar
hann er skoðaður með gleraugum
nýrra og upplýstari tíma.
Fyrir tuttugu árum eða svo var
mikið gert með að Tinni væri sam-
kynhneigður og ýmis-
legt tínt til því til
staðfestingar,
ekki síst náin
vinátta hans
og kínverska
piltsins Chang.
Því verður svo
ekki neitað að kon-
ur fyrirfinnast varla í
veröld Tinna og þegar þær
láta til sín taka þá eru þær
sýndar í frekar neikvæðu
ljósi. Eftirminnilegasta
dæmið um þetta er að
sjálfsögðu söngkonan
Valía Veinólínó. Ákaf-
lega þreytandi og erfið
kona að eiga í samskipt-
um við. Þá hefur Hergé
fengið á baukinn í seinni tíð
fyrir rasisma sem þykir æpandi
áberandi í bókinni Tinni í Kongó.
Sú bók þykir víða best geymd
gleymd eða á báli. En Tinna fyrir-
gefst þetta og ýmislegt annað og
hann heldur áfram að heilla gamla
lesendur sem nýja.
Sjálfsagt má að einhverju leyti
skýra stöðugar og jafnvel endur-
nýjaðar vinsældir Tinna með því
að hann er fulltrúi horfins heims,
sem í endurliti virðist einfaldari og
betri en nútíminn sem æðir áfram
eftir ljósleiðurum á slíkum ógnar-
hraða að manneskjan stendur eftir
ráðvillt og firrt. Oft illa haldin af
fortíðarþrá.
Í þessu sambandi má nefna að
gömlu, íslensku Tinna bækurnar
eru í raun sterkari
gjaldmiðill en
krónan og hafa
staðið af sér
hagsveiflur
mun
betur en hlutabréf í stórfyrirtækj-
um. Í þeirri fortíðarvakningu sem
nú birtist ekki síst í þeirri tísku að
enginn þykir maður með mönnum
nema eiga vínýl-plötuspilara hafa
myndasögurnar sem nutu hvað
mestra vinsælda á áttunda og
níunda áratugnum, Lukku-Láki,
Ástríkur, Tinni og fleiri orðið að eft-
irsóttum safngripum. Setið er um
notaðar bækur í Góða hirðinum og
Kolaportinu og þær ganga kaupum
og sölum og hækka í verði eftir því
sem milliliðirnir verða fleiri.
Útgáfan á Tinna bókunum í
smækkaða brotinu svarar að ein-
hverju leyti þörf þeirra sem þrá
bara að komast í ævintýrin sjálf,
hvort sem það er í fyrsta sinn eða
til upprifjunar. Harðasta Tinna
fólkið sættir sig þó ekki við neitt
nema að fá sígilda myndaramm-
ana, sem margir hverjir eru
listaverk út af fyrir sig, í
fullri stærð. Þetta fólk á
þó ýmist bækurnar frá
því í gamla daga eða
stendur í slagnum
um þær á nytja-
mörkuðun-
um.
Tinni Síungur á níræðiSaldri
Hann er því
óhjákvæmi-
lega barn síns
tíma og hefur
fengið nokkrar
gusur yfir sig
í seinni tíð
þegar hann er
skoðaður með
gleraugum
nýrra og upp-
lýstari tíma.
Stendur sterkari en krónan
Hinn hjartahreini og hugprúði blaðamaður Tinni sást fyrst á prenti 1929 í dagblaði í Belgíu. Hann sló í gegn og fór fljótt
að birtast aðdáendum sínum í bókum. Tinni er 83 ára á þessu ári en tíminn hefur ekki bitið á honum. Hann er síungur og
þótt ævintýri hans séu komin nokkuð til ára sinna eru þau einhvern veginn alltaf fersk.
Tinni og Tobbi standast
tímans tönn og selja enn
bækur enda naskir við að
laða til sín nýja og unga
lesendur.