Fréttatíminn - 28.06.2013, Síða 68
Í takt við tÍmann Guðmundur Heiðar HelGason
Borðar á Grillhúsinu þegar það er fiskur í mötuneytinu
Staðalbúnaður
Eftir að ég byrjaði að vinna í banka
þarf ég að vera snyrtilegur. Ég
klæði mig í bleiser, skyrtu og bindi
á morgnana. Það var draumur sem
rættist þegar ég gat farið að vera
með bindi í vinnunni en maður getur
orðið pínu þreyttur á því. Þegar
ég kem heim vippa ég mér oft
beint í stuttbuxur. Fötin kaupi
ég mér oftast í Selected, ég
er svolítið mjór og það er
fínt að fá föt fyrir mjónur
þar. Svo hef ég verið að
versla svolítið í Next,
það eru oft aðeins
ódýrari föt þar.
Ég hef líka verið
svolítið hrifinn
af Levi’s fyrir
hversdags-
fötin.
Hug
búnaður
Ég neita því
nú ekki að mér
finnst gaman
að fara út með
Guðmundur Heiðar Helgason er áhugamaður um góð
léttvín en pantar sér oftast gin & tónik á barnum.
Trekking
(Petrol og Khaki)
Kuldaþol -20
Fyrir líkamsstærð 190 eða 175cm
Þyngd 190/1,70 kg og 175/1,65 kg
Verð kr. 13.995,-
Tjaldasalur - verið velkomin
Kúlutjöld - fjölskyldutjöld - göngu
tjöld
Savana Junior
(blár og rauður)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 150 cm
Þyngd 0,95 kg
VERÐ 11.995,-
Savana
(blár)
Kuldaþol -15°C
Fyrir líkamsstærð 195cm
Þyngd 1,45 kg
Verð kr. 13.995,-
Micra
(grænn og blár)
Kuldaþol -14°C
Fyrir líkamsstærð 195 eða 185cm
Þyngd 195/1,0 kg og 185/0,95 kg
Verð kr. 16.995,-
FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS
Guðmundur Heiðar Helgason er 25 ára Kópavogsbúi sem
starfar sem þjónustufulltrúi hjá Arionbanka í Kringlunni.
Hann og félagar hans hafa vakið athygli fyrir grínþættina
Punktinn sem nýlega hófu göngu sína á Mbl.is. Guðmundur
keyrir um á BMW og er kallaður Gummi „bullet“.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
vinum mínum og fá mér aðeins í glas.
Á tímabili fór ég oft á Lebowski en
það er svolítið síðan ég fór þangað síð-
ast. Svo fer ég stundum á Ellefuna og
Ziemsen, það fer bara eftir því í hvern-
ig skapi maður er. Ég var að vinna í
Vínbúðinni og hef eftir það rosalegan
áhuga á víni. Mér finnst líka gaman
að vera svolítið fínn á því og drekka
gott léttvín. Á barnum drekk ég samt
oftast gin & tónik. Ég spila fótbolta
nokkrum sinnum í viku og er að spila
í Gulldeildinni. Ég spila frammi og á
kantinum, enda er ég léttur á mér og
er stundum kallaður Gummi „bullet“.
Ég hef rosa gaman af kvikmyndum
og fer eins oft í bíó og ég get.
Ég horfi hins vegar afar
lítið á sjónvarpsþætti, ætli
South Park sé ekki það
eina sem ég horfi á. Þegar
fólk byrjar að tala við mig
um Game of Thrones
og Breaking Bad stend
ég bara og kinka kolli.
En planið er reyndar
að fara að bæta sig í
Breaking Bad.
Vélbúnaður
Ég er voða mikið
eftir á í tækni-
málum. Ég á
hundgamla tölvu
og gamalt túbu-
sjónvarp sem ég
fékk í fermingargjöf
árið 2001. DVD-
spilarann minn fékk ég á
700 krónur í Góða hirðin-
um. Ég náði þó að uppfæra
símann um daginn, allt í
einu á ég síma sem er ekki
með takka heldur bara skjá.
Þetta er Samsung Galaxy
III og ég er ánægður með
hann. Hann virkar vel fyrir
Facebook og fleira.
Aukabúnaður
Ég elda því miður rosalega
lítið. Ég er nýfluttur inn í
íbúð í Kópavogi, á bara einn
pott og það er ekki ofn í
íbúðinni. Móðir mín hafði
reyndar lofað mér örbylgju-
ofni í innflutningsgjöf en
það eru liðnir þrír mánuðir
og ég er enn að bíða eftir
honum. Þangað til verð ég
bara að nota samlokugrillið.
Ég borða oft á Grillhúsinu
í Kringlunni, sérstaklega á
þriðjudögum þegar það er
fiskur í matinn í bankanum.
Svo er ég rosa hrifinn af
pönnupítsunum á Dominos.
Við kærastan pöntum oft
svoleiðis á sunnudögum. Ég
á BMW 318, árgerð 1999.
Hann er keyrður 240 þús-
und kílómetra og er svolítið
harður. Ég nota ekki mikið
af snyrtivörum, bara DiFi
í hárið, Diesel-rakspíra og
rakvél öðru hvoru.
68 dægurmál Helgin 28.-30. júní 2013