Fréttatíminn - 31.05.2013, Page 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI
Fjöldi gas og
kolagrilla á
frábæru verði
www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
VELDU
GRILL
SEM EN
DIST
OG ÞÚ
SPARA
R
59.900
Er frá Þýskalandi
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Rigning eða skúRiR s- og sV-til, en
sól fyRiR noRðan og austan.
HöfuðboRgaRsVæðið: Þungbúið og
rigning með köflum.
Vætusamt syðRa, en áfRam léttskýjað
noRðantil.
HöfuðboRgaRsVæðið: fremur hægur
vindur, en skúraleiðingar.
Hæg n-átt og kólnaR HelduR í bili.
úRkomulaust.
HöfuðboRgaRsVæðið: skýjað með
köflum og Þurrt.
bleytutíð sunnanlands
ein og sama lægðin verður á hringsóli
við suðvestanvert landið fram á laugar-
dag með skúrum og rigningu meira og
minna sunnan- og suðvestanlands á
meðan sólin kemur til með að leika við
íbúa á norður- og austur-
landi. sæmilegur hiti, en á
sunnudag kólnar lítið eitt
í bil með hægum n-vindi.
úrkomulaust þá á landinu
öllu. strax eftir helgi er
von á hlýju og röku lofti
sunnan úr höfum.
7
8 10
10
7
7
7 10 9
8
9
7 6 7
10
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Þ etta eru hetjur okkar lands,“ segir Trausti Sigurðsson um liðsmenn björgunarsveitanna. Fjögur ár
eru síðan þeir björguðu lífi sonar hans
sem hafði fallið í sprungu á Langjökli.
„Hann var að útskrifast sem stúdent
um síðustu helgi. Ég er ekki viss um að
við værum að fagna þessum
áfanga nú ef ekki væri fyrir
þeirra hjálp,“ segir Trausti.
Vegna tekjusamdráttar hefur
Slysavarnafélagið Lands-
björg nú lagt upp með verk-
efnið „Bakvarðasveitin“ þar
sem fólk styrkir björgunar-
starfið mánaðarlega. Trausti
er ötull styrktaraðili.
Fjölskyldan var í sumar-
leyfi á Húsafelli í júnílok
2009 þegar bróðir Trausta,
sem er
uppi á
Lang-
jökli,
hringir og býður þeim að koma í dags-
ferð á snjósleðum enda veðrið dásamlegt
og yfir 20 stiga hiti. „Við þáðum boðið,
fórum upp á hábunguna sem er hættu-
laust svæði og nutum dagsins, fengum
okkur nesti og áttum góða stund. Á leið-
inni niður ákveðum við aðeins að stoppa
í góða veðrinu og sonur minn og frændi
ákveða að skutlast upp á Geitlandsjökul
sem er þarna á vinstri hönd. Þegar smá
tími er liðinn og við höfum ekkert orðið
vör við þá ákveðum við að fara og athuga
með strákana. Þá kemur í ljós að sonur
minn er ekki á staðnum heldur hafði
hann snúið við til að sækja okkur en
villst af leið og farið inn á sprungusvæði.
Bróðir minn fann sleðann hans yfirgef-
inn skömmu síðar, við áttuðum okkur
fljótt á hvað hafði gerst og hringdum á
björgunarsveitirnar,“ segir Trausti.
Á þessari stundu vissi Trausti ekkert
um afdrif sonarins. „Ég átti ekki von
á að finna hann á lífi nema þá stórslas-
aðan. Við sleðann fundum við fótspor
og um fimmtíu metra frá sleðanum er
stór sprunga sem hann hafði fallið niður
um. Til allrar hamingju kallaði hann
til okkar. Við sáum hann ekki strax því
hann hafði fallið tólf metra niður. Hann
sagðist lítið slasaður og það bjargaði
honum líklega að hann rotaðist á leiðinni
niður og lenti þess vegna mjúklega,“
segir hann. Ástæðan fyrir því að sonur
hans, sem einnig heitir Trausti, hafði
yfirgefið vélsleðann er að hann drap á
sér og því ætlaði sonurinn að ganga til
fjölskyldu sinnar.
Fyrstu björgunarsveitarmennirnir
voru komnir upp á jökulinn um klukku-
stund eftir útkall. „Þarna var einn okkar
reyndasti björgunarmaður á jökli. Ég
fann strax til öryggis þegar þeir voru
komnir að hjálpa okkur,“ segir Trausti.
Björgunin tók í allt tæpa þrjá tíma og
náði sonur hans sér að fullu. „Alls tóku
allt að fimmtíu björgunarsveitarmenn
frá fjórum sveitum þátt í björg-
uninni. Ég verð að segja að ég
hreinlega dáðist að teymisvinn-
unni hjá þeim. Þó þeir kæmu
úr ólíkum sveitum gekk þetta
allt svo vel.“ Trausti leynir ekki
hrifningu sinni á björgunarsveit-
armönnum. „Þetta er stór hópur
einstaklinga sem er tilbúinn að
hlaupa úr vinnu og frá fjölskyld-
unni til að hjálpa öðrum. Það er
bara skylda okkar að styrkja þá,“
segir Trausti og bætir við: „Við
Traustarnir munum alltaf kaupa
hjá þeim Trausta-pakkann fyrir
áramótin.“
Verkefnið „Bakvarðasveitin“
fer formlega af stað með söfnun-
arþætti á RÚV í kvöld. Slysa-
varnafélagið Landsbjörg hefur
á undanförnum árum glímt við
tekjusamdrátt samhliða því að
útköllum hefur fjölgað og nokkrar mjög
stórar aðgerðir sett sitt mark á fjárhag
samtakanna, til að mynda vegna ofsa-
viðrisins á Norðurlandi í haust og þar
áður vegna Eyjafjallajökuls og gossins í
Grímsvötnum.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
fjögur skemmtiferðaskip koma til
landsins næstkomandi mánudag, 3. júní,
og leggjast að bryggju hér á landi. meðal
þeirra er stærsta skemmtiferðaskip
sem komið hefur til Íslands. „Þetta
verður spennandi sumar og það er von
á rúmlega 80 skemmtiferðaskipum með
rúmlega 100 þúsund farþega til landsins.
Það verður mikið um að vera á mánudag
en þá koma fjögur skip með mörg
þúsund farþega samtals,“ segir jóhann
bogasson, deildarstjóri hjá tvg-Zimsen.
fyrirtækið og dótturfélag þess, gára í
Hafnarfirði, sjá um að þjónusta skipin
meðan á dvöl þeirra stendur. skipin
Crystal symphony, sea explorer og ad-
venture of the seas leggjast við bryggju
í reykjavík á mánudag. adventure of the
teikningar bygginga í
reykjavík aðgengilegar
á vef
aðaluppdrættir bygginga í reykjavík eru
nú aðgengilegir á vef. vinnan hefur staðið
yfir í nokkur ár enda ekkert áhlaupaverk
að skanna og skrá með leitarorðum 130
þúsund teikningar, að því er fram kemur í
tilkynningu borgarinnar.
Þeir sem þurfa teikningar geta nú farið
inn á vefinn teikningar.reykjavik.is í stað
þess að sækja afrit uppdrátta í afgreiðslu
byggingarfulltrúa. sá möguleiki verður þó
enn í boði hjá Þjónustuveri reykjavíkur-
borgar í borgartúni 12 – 14. Þar má fá
teikningar í fullri stærð.
nýir samþykktir aðaluppdrættir eru
skannaðir og settir inn í kerfið innan
mánaðar frá afgreiðslu byggingarleyfisum-
sókna. Þó teikningasafnið á vefnum nái til
flestra bygginga í Reykjavík eru nokkrar
undantekningar þar á af öryggisástæðum,
s.s. sendiráð erlendra ríkja og byggingar
alþingis. hver og einn eigandi húss getur
óskað eftir því að grunnmyndarteikning
húss hans sé fjarlægð úr gagnagrunninum,
en það heyrir til undantekninga, segir í til-
kynningunni, að slíkar beiðnir berist. - jh
fimmtungur starfsfólks
sleppir bílnum
Æ fleiri starfsmenn Seðlabanka Íslands
nýta sér annan samgöngumáta en bílinn til
að koma sér í vinnuna en bankinn styður
slíkt með ákveðnu framlagi, að því er fram
kemur á síðu hans. Þar segir: „seðlabanki
Íslands hefur hvatt starfsfólk til að velja
vistvæna, hagkvæma og heilsusamlega
ferðamáta til og frá vinnu. Í þeim tilgangi
hefur verið gerður sérstakur samgöngu-
samningur við þá starfsmenn sem vilja.
nú þegar hafa 29 starfsmenn bankans
gert svona samgöngusamning, en sam-
göngustefna fyrir starfsmenn bankans var
kynnt 8. maí 2012.
samningurinn felst í því að starfsmenn
mæta ekki á eigin bíl til vinnu, heldur
ganga, hjóla eða fara með strætisvagni
í vinnuna og fá þá dálítið framlag upp í
kostnað. Strax í upphafi tóku tveir tugir
starfsmanna þátt í þessu átaki, en nú
hefur þeim fjölgað um tæplega helming
og er þá fimmtungur starfsmanna sem
tekur þátt í átakinu. ennfremur geta þeir
starfsmenn sem þurfa að fara á fundi utan
bankans fengið til þess strætómiða eða
farið á öðru af tveimur reiðhjólum sem
bankinn hefur nú yfir að ráða.“ - jh
fjögur skemmtiferðaskip hingað á mánudaginn
fjögur skemmtiferðaskip koma til landsins
á mánudaginn. Þrjú, þar af stærsta
skip sem hingað hefur siglt, koma til
reykjavíkur en eitt til hafnarfjarðar.
seas er stærsta skemmtiferðaskip sem
kemur til landsins í sumar og mun vera
stærsta skip sem hefur komið til Íslands.
skipið er rúmlega 137 þúsund brúttótonn
og rúmar rúmlega 3.100 farþega og um
1.200 skipverja. auk þessara skipa mun
skemmtiferðaskipið astor leggjast að
bryggju í Hafnarfirði. - jh
samFélagsmál landsbjörg saFnar styrktaraðilum í áskriFt
Þakklátur fyrir lífsbjörg sonarins
trausti sigurðsson segir björgunarsveitarmenn hafa
bjargað lífi sonar síns þegar hann féll í sprungu
í Langjökli fimmtán ára gamall. Vegna fjölgunar
útkalla samhliða tekjusamdrætti er slysavarna-
félagið landsbjörg að fara af stað með verkefnið
bakvarðasveitin þar sem fólk er hvatt til að styrkja
félagið mánaðarlega um ákveðna upphæð.
trausti traustason
ásamt föður sínum,
trausta sigurðar-
syni. Þeir ætla að
kaupa trausta-
pakkann frá
björgunarsveit-
unum fyrir
öll áramót
og þannig
styrkja
björgunar-
starfið.
meðal verkefna björg-
unarsveitarmanna er
að hjálpa fólki í ófærð.
Þeir sem ganga til liðs
við bakvarðasveitina
styrkja björgunarstarfið
með mánaðarlegum
greiðslum. Mynd/Lands-
björg/Sigurður Ó. Sigursson
Ég átti
ekki von
á að finna
hann á lífi
nema þá
stórslas-
aðan.
4 fréttir helgin 31. maí-2. júní 2012