Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 50
50 langur laugardagur Helgin 31. maí-2. júní 2012
Langur Laugardagur Hátíð Hafsins, HefðarHjóLreiðar og fLeira
Mikið líf í miðborg
Reykjavíkur um helgina
Það verður nóg um að vera í miðborg Reykjavíkur um helgina. Hátíð hafsins er við höfnina og fjöl-
breytt dagskrá verður víðar. Þá er langur laugardagur þannig að verslanir í miðborginni eru opnar
fram eftir degi.
s jómannadeginum er fagnað um allt land um helgina. Í Reykjavík er fjöl-breytt dagskrá á Hátíð hafsins. Há-
tíðarhöldin fara fram úti á Granda og teygja
sig yfir á Ægisgarð, bæði laugardag og
sunnudag.
Meðal þess sem er í boði eru fjölbreytt
tónlistaratriði, dorgveiði, sjóræningjasigl-
ingar, bryggjusprell og furðufiskasýning. Á
sjómannadaginn sjálfan, sunnudag, verður
skrúðganga Skoppu og Skrítlu ásamt Lúðra-
sveit Austurbæjar. Þær stöllur taka á móti
gestum fyrir framan tónlistarhúsið Hörpu
klukkan 12.30 og síðan verður marserað
meðfram Reykjavíkurhöfn niður á Granda
þar sem hátíðarhöldin fara fram.
Ítarlegar upplýsingar um dagskrána má
finn á hatidhafsins.is.
Á laugardaginn verða tvennir stórtónleikar
í Hörpu undir yfirskriftinni Óskalög sjó-
manna, þeir fyrri klukkan 17 en þeir síðari
klukkan 21. Meðal þeirra sem koma fram
eru Gylfi Ægisson, Sigríður Thorlacius,
Valdimar Guðmundsson, Magnús Eiríksson
og KK en tónlistarstjóri er Jón Ólafsson. Auk
þess mun Gerður G. Bjarklind lesa kveðjur í
anda gömlu óskalagaþáttanna.
Hefðarfólk á hjólum
Tweed Ride Reykjavík verður haldið í annað
sinn á laugardag. Fyrirmyndin að þessari
hóphjólreið er sótt til London. Árið 2009
tóku reiðhjólaáhugamenn þar í borg sig sam-
an, klæddu sig í klassísk föt og dragtir í anda
bresks hefðarfólks, og hjóluðu saman í hópi
á virðulegum borgarhjólum. Um 70 manns
tóku þátt í Tweed Ride Reykjavík í fyrra og
þótti reiðin takast frábærlega. Allar upplýs-
ingar er að finna á Facebooksíðu Tweed Ride Reykjavík en í ár er búist við
mun fleiri þátttakendum. Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar, verslunin
Geysir og Reiðhjólaverzlunin Berlín leggja til verðlaunin fyrir best klædda
herrann, best klæddu dömuna og flottasta hjólið.
Tónleikar og nytjamarkaður
Hjálpræðisherinn blæs til viðburðarins „Hertex dags 2013“ á laugardag.
Hann hefst á því að fata- og nytjamarkaður verður opnaður klukkan 11 í
Herkastalanum að Kirkjustræti 2. Boðið er upp á kaffi og meðlæti. Klukk-
an 14 stíga popparar og hljómsveitir á stokk, hver á fætur annarri. Þeirra
á meðal er Eyþór Ingi, hljómsveitin Leaves, færeyska söngkonan Dorthea
Dam, Sísý Ey, Steini í Hjálmum og Siggi Ingimars. Viðburðinum lýkur
klukkan 17.
Það er alltaf eitthvað forvitnilegt að skoða á sjómannadeginum.
Á Tweed Ride Reykjavík
klæðir fólk sig upp að
hætti bresks hefðarfólks
og hjólar um borgina.
Margar gerðir af búningasilfri.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur
www.thjodbuningasilfur.is
L a n g u r L a u g a r d a g u r !
M i k i ð ú r v a l
a f t i l b o ð s v ö r u m !
Laugavegi 8 S. 552 2412
FALLEGAR GJAFAVÖRUR
Laugavegur 58 S. 551 4884 still@stillfashion.is stillfashion.is
Ship ohoj!!
Njóttu þess
að koma