Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 76

Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 76
4 veiði Helgin 31. maí-2. júní 2012 Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ00000 w w w. v e i d i k o r t i d . i s Eitt kort 35 vötn 6.900 kr FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ Veiðimessa Veiðiflugna verður haldin dagana 1. -2. júní, á laugardag og sunnudag. Verslunin stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá ásamt því að góð tilboð verða á veiðivörum. „Veiðimessa Veiðiflugna er árlegur viðburður þar sem veiðimenn sem vilja fræðast um allt það nýjasta í veiðivörum koma saman. Ásamt Veiðiflugum hafa nokkrar aðrar búðir tekið þennan sið upp sem er frábært því þá geta menn flakkað á milli verslana. Aðal hátíðin er samt að sjálfsögðu á veiðimessu Veiði- flugna,“ segir Oddný Magnadóttir, annar eigandi verslunarinnar. Bubbi syngur Völund á vaðlinum Veiðimessan fer fram á um helgina og verður dagskrá- in fjölbreytt. „Klukkan 16 á laugardag verður Klaus Frimor með kastsýningu á túninu fyrir neðan Lang- holtsskóla en það er sýning sem fluguveiðimenn mega ekki láta fram hjá sér fara. Þá kemur Bubbi Morthens í búðina um klukkan 15 á laugardag og tekur nokkur lög í tilefni dagsins. Eitthvað segir mér að lagið Völ- undur á vaðlinum verði á þeirri dagskrá en það er eitt af frábærum veiðilögum Bubba. Þá verður Gordon Sim, framkvæmdastjóri LOOP, í búðinni og kynnir LOOP veiðivörurnar fyrir gestum,“ segir Oddný. Oddný segir mörg góð tilboð verða á veiðivörum um helgina. „Tilboðin á veiðivörum verða hreint út sagt frábær. Valdar vörur frá LOOP verða á 20% kynning- arafslætti alla helgina. Klaus Frimor kynnir nýju EX- CEED stöngina sem hann hannaði og við gefum 15% afslátt af henni alla helgina ásamt því að með hverri stöng fylgir veiðidagur í Varmá og kastmyndband með Klaus Frimor. Þá bjóðum við gestum Veiðimessunnar 20% afslátt af línum um helgina. Við verðum einnig með tilboð á Kispiox vöðlum og skóm á 49.900 krónur og með því tilboði fylgir einnig veiðidagur í Varmá. Síðast en ekki síst verða nýjar sendingar af vöðluskóm frá Patagonia og Korkers komnar í hús, en Korkers hefur slegið í gegn hjá íslenskum veiðimönnum“. Boðið upp á kaldan í bala Oddný býst við því að verslunin verði full af fólki um helgina. „Undanfarin ár hefur Veiðimessan verið frábært upphaf að veiðitímabilinu og á ég ekki von á breytingu í ár. Það er gaman að segja frá því að Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Lax-á, Strengir og Hreggnasi munu kynna fyrir gestum þau veiðisvæði sem þau hafa á sínum snærum og verður einnig happahylur sem hægt er að skrá sig í. Í honum verður fjöldi veglegra vinn- inga, til dæmis veiðileyfi frá þessum aðilum. Veiði- messan verður fyrst og fremst skemmtileg helgi. Við grillum pylsur og bjóðum upp á gos með og jafnvel verður kaldur í bala fyrir þá sem ekki eru á bíl.“ -ss KYNNING  Veiðiflugur góð tilboð á VeiðiVörum og fjölbreytt dagskrá Veiðimessa um helgina  VorVeiði skjóls leitað í köldu Veðri Alltaf von á stórum bleikjum í Hlíðarvatni á vorin Skemmtilegt að lesa lífríkið, sjá hvaða fluga er á yfirborðinu og reyna að finna eitthvað í boxinu sem líkist kvikindinu. V ið félagarnir áttum veiðileyfi í Hlíðarvatni í síðustu viku og þó kalt væri í veðri og hvasst tímdum við ekki að sleppa því og héldum af stað með þá von í brjósti að veðrið myndi lagast. Í Hlíðarvatni er alltaf góð von á stórum bleikjum á vorin og í vor hafa veiðst margar einstaklega fallegar bleikjur. Veðurskilyrði voru ekki hagstæð en bestu staðirnir þegar hann stendur að norðvestan eru Kaldósinn og Botnavíkin. Þar er maður í sæmilegu skjóli og getur kastað undan vindinum. Við vorum að vona að það myndi lægja með kvöldinu svo að við gætum reynt fleiri staði í vatninu. Veiðistaðir eins og Hlíðarey eða Mosatangi sem eru oft pakkaðir af bolta bleikju á vorin voru óveiðandi fyrir roki. Þegar kalt er í veðri hefur mér reynst vel að veiða á kuðunga (Bobba), brúna eða ólívugræna, sem að ég hnýti á grubber öngla nr. 14. Við settum undir kuðunginn því við svona skilyrði er bleikj- an lítið uppi við en er að éta niður við botninn og þá helst í kuðung eða smáum mýpúpum. Þessar ágiskanir reyndust réttar því þegar við létum kuðunginn undir þá tók hann fljótlega og við veiddum fjórar bleikjur í Botnavíkinni. Allar vel feitar og pattaralegar, frá 1 kílói upp í 1,6 kíló. Orðnir hrollkaldir héldum upp í hús til að fá okkur kaffi og ylja okkur. Við gerðum að fiskunum til að skoða magainnihaldið sem var að mestu kuðungur, ólívugrænn og fáeinar mýpúpur flutu með. Lífríkið lesið Morguninn eftir byrjuðum við að veiða í hægri norðvestan átt og stöku sólarglennu. Krían var að tína mýið af yfirborðinu og byrjuð- um við með flotlínu og eina og hálfa stangarlengd í taum. (0,18 mm 6 lbs). Við settum undir Buzzera sem líktust mýpúpunum frá því kvöldinu áður, svarta með drapplitaðar kinnar nr. 14, sem skilaði okkur 3 vænum bleikjum í morgunveiðinni. Þegar ég nota Buzzera (heillakkaðar púpur) eða púpur án kúlu finnst mér gefa best að hreyfa fluguna hægt og láta strauminn í vatninu ráða ferðinni, halda við og hreyfa með stuttum inndrætti. Það skiptir máli hvað þú setur undir en ekki síður skiptir það máli hvernig flugan berst fyrir fiskinn. Sniðugt er að hafa tvær flugur á í einu þegar leitað er að fiski. Hnýta svokallaðan Dropper á taum- inn og setja þyngri fluguna neðst svo að taumurinn leggist vel og flækist siður í kastinu. Það getur verið gaman að veiða í vötnum á vorin þó að það sé kalt í veðri og aðstæður séu erfiðar. Þá getur stór fluga, Peacock með kúlu eða Mylar prins, gefið vel líka, sem og straumflugur eins og Bleik og Blá. Sjálfum finnst mér skemmtilegra að lesa lífríkið, sjá hvaða fluga er á yfirborðinu og hvernig hún er á litinn og reyna að finna eitt- hvað í boxinu sem líkist kvikindinu. Hægt sökkvandi lína í kuldanum Það er líka gott þegar svona kalt er í veðri að nota hægt sökkvandi línu og láta fluguna sökkva hægt niður að botni. Strippa svo rólega inn. Þá heldur línan flugunni á því dýpi sem að fiskurinn er í æti. Einnig er árangursrík aðferð við svona aðstæður að nota tökuvara og flotlínu og leyfa flugunni að reka rólega yfir veiðisvæðið. Þessi aðferð getur verið mögnuð og margir farnir að nota hana í vatna- veiðinni. Hin aðferðin er að nota flotlínu og langan taum og láta fluguna sökkva hægt og reka niður undir botn. Þessa aðferð nota flestir veiðimenn og gefur hún oft fína veiði sérstaklega þegar fer að hlýna og púpan byrjar að leita upp á yfirborðið og klekjast út. Flot- línan lyftir púpunni upp í hvert sinn sem maður dregur inn línuna og það er minni hætta á festum en með intermediade línunni. Ef ekkert er að sjá þá er gott að nota kuðung eða vorpúpur niður við botninn. Það eru fleiri aðferðir til sem fluguveiðimenn nota við veiðar i vötnum en hér eru taldar upp og alltaf er maður að læra eitthvað nýtt sem gerir veiðiskapinn að lifandi og frábæru sporti. Við félagarnir héldum heim glaðir og ánægðir með þessa stuttu og annars ágætu vorheimsókn í Hlíðarvatn. Örn Hjálmarsson Mylar prins Bleik og blá Peacock Kuðungur Buzzer
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.