Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 65

Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 65
R okkhátíðin Eistnaflug hefur skipað sér stóran sess meðal rokkara og verður haldin í ní- unda sinn nú í sumar. Að sögn Stefáns Magnússonar, skipuleggjanda hátíðar- innar, gengur undirbúningurinn vel. Skipulagning stendur yfir allt árið og þegar Stefán var á leið heim af síðustu hátíð fékk hann símtal frá hljómsveit sem skráði sig á þá næstu svo einni há- tíð er varla lokið þegar undirbúningur þeirrar næstu hefst. Eistnaflug var fyrst haldið árið 2005 og fékk þá styrk frá menningar- ráði Austurlands sem dugði fyrir rútu undir hljómsveitirnar tíu sem þá spiluðu. Árið áður hafði Stefán flutt til Neskaupstaðar með fjölskyldu sinni og fannst vanta rokk og ról í þennan rólega kaupstað. Þrátt fyrir að fáir tón- leikagestir hafi mætt á fyrsta Eistna- flugið skemmtu allir sér vel og mættu allar hljómsveitirnar aftur að ári. Þó Stefán sé nú fluttur frá Neskaupstað heldur hann áfram að skipuleggja Eistnaflugið sem vex og dafnar með hverju árinu. „Það er öðruvísi að fara á Eistna- flug en tónleika í bænum og það er það skemmtilega við þetta. Það koma yfir- leitt um 1.400 manns og helmingurinn af þeim hefur komið fjórum til fimm sinnum áður. Þetta er því stór hópur sem þekkist vel og kemur til að hafa gaman og stjórnar stemningunni. Það er Woodstock fílingur þarna og allir passa upp á alla og skemmta sér og hafa gaman,“ segir Stefán. Sú regla hefur gilt á Eistnaflugi frá fyrsta degi að allt vesen er bannað. „Ég fer upp á svið á hverju einasta kvöldi og minni fólk á að hugsa vel um hvert annað og vera ekki með neitt vesen. Það er einfaldlega bannað og allir hjálpast að við að láta þetta ganga vel,“ segir Stefán og bætir við að það sé ekkert vit í því að keyra austur í tíu tíma til að berja einhvern. Eistnaflug hefst fimmtudaginn 11. júlí og er 18 ára aldurstakmark en núna í sumar verður í fyrsta sinn boðið upp á sérstaka barnatónleika. Þeir verða miðvikudaginn 10. júlí í Egilsbúð og verður dagskráin ekki af verri end- anum – Skálmöld, Dimma og Sólstafir. Að sögn Stefáns verður allt stillt í botn eins og vanalega og hvergi slegið af þó að um barnatónleika sé að ræða. „Það verða þarna bestu hljómsveitir í heimi og spennandi fyrir krakkana að fá alvöru rokktónleika,“ segir Stefán. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is  Eistnaflug stEfán Magnússon skipulEggjandi RokkhátíðaRinnaR Gleði og Woodstock stemning á Neskaupstað Stefán Magnússon íþróttakennari flutti til Neskaupstaðar með fjölskyldunni sinni árið 2004 og fannst heldur róleg stemningin í bænum og ákvað því að skipuleggja rokkhátíð og hóaði því saman nokkrum hljómsveitum sem komu saman sumarið 2005 og héldu fyrsta Eistna- flugið. Núna er hátíðin hápunktur sumarsins hjá mörgum þungarokkurum og í ár verður boðið upp á sérstaka barnatónleika þar sem hvergi verður slegið af. Stefán Magnússon skipuleggur rokkhátíðina Eistnaflug sem haldin verður á Neskaupstað 11. til 14. júlí. Meðal hljómsveita sem fram koma eru Red Fang, Sól- stafir, Skálmöld, Brain Police, The Psyke Project, Singapore Sling og Agent fresco. Ljósmynd/Hari Skálmöld á Eistnaflugi. Hljómsveitin spilar á næstu hátíð. menning 65 Helgin 31. maí-2. júní 2012 Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á www.unak.is/nam AkAdemískA Akureyri Háskólinn á Akureyri er kjörlendi fyrir framhaldsnám — alþjóðleg ur rannsóknaháskóli með rúmgóðum fyrirlestra­ sölum og búinn nýjustu tækni. Greiður aðgang ur að kennurum skapar persónulegt og afslapp að andrúmsloft. Af því sprett ur öflugt samfélag þar sem víðsýni og vísindaleg vinnubrögð haldast í hendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.