Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 78
KYNNING
6 veiði Helgin 31. maí-2. júní 2012
F átt er heilbrigðara og skemmtilegra en að fara í góðan veiðitúr með vinum. Standandi á
vöðlunum úti í miðju vatni með orm
á önglinum eða eina bláa og bleika á
flugustönginni í fallegri á. Það leiðin
legasta hins vegar, fyrir utan það þegar
ekkert fiskast, er þó klárlega að pakka
– þá sérstaklega nestinu. Að hugsa
um hvað þarf að borða í allar máltíðir
í tvo eða þrjá daga reynir enda mikið
á. Margur hefur þurft að lifa seinni
dagana á mjólkurkexinu einu
saman. Þá getur verið þægilegt að
láta aðra um kostinn. Í Kjötbúð
inni á Grensásvegi er hægt að fá
fullbúna nestispakka fyrir hverja
máltíð veiðiferðarinnar.
Geir Birgisson eða bara Geiri í
Kjötbúðinni hefur í yfir 20 ár séð
veiðimönnum fyrir nestispökkum í
veiðina. Ferðapakkana er hægt að fá
þannig að hugsað er fyrir öllu. Kjöt og
kartöflur, kartöflusalat, ferskt salat og
Kjötbúðin Geir birGisson sér veiðimönnum Fyrir nestispöKKum í veiðina
Ekkert
vesen
með
matinn
Geiri í Kjötbúðinni
með einn vænan úr
Veiðivötnunum
og félagar í veiði-
félaginu Steinar.
sósur með. Hamborgarar í millimál og kraftmiklar
súpur tilbúnar til upphitunar svo fátt eitt sé nefnt.
Svo er það að sjálfsögðu eftirrétturinn. En lunga
mjúka súkkulaðikakan þeirra í Kjötbúðinni er
reyndar þannig að passa verður að veiðifélag
arnir klári hana ekki í aftursæti veiðvagns
ins á leiðinni upp eftir. Öllu er
þessu pakkað í handhægar
og þægilegar ferða
pakkningar.
Matarpakkar í veiðina
Hægt er að fá
matarpakka sem
ætlaðir eru frá einum
manni upp í veislur fyrir
stóra hópa í lengri eða skemmri
tíma. Matnum er pakkað inn í
handhægar frauðplastöskjur
sem raðast vel í bílinn og halda
vörunum köldum á leiðinni.
Pantanir í síma 571-5511
eða með tölvupósti á geiri@
kjotbudin.is.
Veiðieðlið
Sjálfur er Geiri búinn að fara í
Veiðivötn í vel á annan áratug
með félögum í veiðifélaginu
Steinar. Sá flokkur dregur nafn
sitt af því þegar einn félaginn
setti í risageddu eitt árið. Allir
sem einn stóðu veiðifélagarnir
á bakkanum og hjálpuðu sínum
manni við að landa þessum líka
risa fiski. Þegar slagsmálunum
við óargardýrið lauk svo loksins
og skepnan sú arna komin í
háfinn reyndist ferlíkið ekkert
nema grjóthnullungur – af stærri
gerðinni þó.
Þeim Steinarsmönnum finnst
fátt betra, eftir að hafa fiskað
daglangt, en að grilla góða nauta
steik í veiðikofanum að kveldi
fyrsta dags. Seinna kvöldið grilla
þeir svo gjarnan feng dagsins
en hafa þó lambasteik tilbúna á
kantinum, gefi ekki nóg á grillið.