Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 32
PI PA R \T BW A • SÍ A • 13 17 48 Umsóknarfrestur til 5. júní NÝTT TÆKIFÆRI TIL NÁMS KEILIR ÁSBRÚ 578 4000 keilir.net HÁSKÓLABRÚ Á Háskólabrú Keilis er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi. Að námi loknu uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla hérlendis og erlendis. Háskólabrú er skipulögð í samstarfi við Háskóla Íslands. Á Háskólabrú er lögð áhersla á speglaða kennsluhætti. Miðað er við þarfir fullorðinna nemenda þar sem gerðar eru kröfur um sjálfstæði í vinnubrögðum og raunhæf verkefni. Kennsla í staðnámi á Háskólabrú Keilis fer fram á Ásbrú í Reykjanesbæ og hjá SÍMEY á Akureyri. NÁMSFRAMBOÐ FÉLAGSVÍSINDA- OG LAGADEILD HUGVÍSINDADEILD VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD VERK- OG RAUNVÍSINDADEILD mennsku á þeim tíma. Þetta var svo sem ekkert erfitt enda tók ég þetta ekkert inn á mig,“ segir hann. Umræðan logaði á samfélags- miðlum þess tíma, Barnalandi og Málefnunum og einkenndist af mikilli heift. „Þetta var fyrsta dæmið um að almannarómur hefur áhrif og megnar að valda breytingum. Síðan hefur almenn- ingur haldið áfram að hafa völd í gegnum blogg og Fésbók. Þá skrifaði fólk allt undir dulnefni enda var ekki komin nein slípun á umræðuna, hún var bara villt. Það er í sjálfu sér ágætt, eftir á að hyggja, að svona skyldi þetta vera, enda bara partur af sögunni.“ Baráttan við Bakkus Á áttunda og níunda áratugnum háði Jónas harða baráttu við Bakkus. Hann var farinn að drekka daglega og mætti jafnvel ósofinn til vinnu að morgni. Loks játaði hann sig sigraðan og fór í áfengismeð- ferð. „Það var rosalega þreytandi að vera með svona marga bolta í einu, að vera í þessari vinnu, með stóra fjölskyldu og þetta áhugamál, áfengið. Ég gafst loks upp enda réð ég engan veginn við þetta. Og með því að strika út áfengið gat ég haldið hinu áfram, að öðrum kosti hefði ég að endingu dottið dauður niður. Það var svo mikil pressa sem fylgdi þessu, ég þurfti alltaf að vera til í tuskið á morgnana eftir jafnvel engan svefn,“ segir hann. Jónas var ekki drykkfelldur á yngri árum heldur ágerðist drykkj- an með aldrinum. Þegar hann var farinn að drekka daglega tók hann sig taki. Hann drakk einungis um helgar síðustu ár drykkjutímabils- ins, en það var ekki nóg, að hans sögn. Um þetta leyti komst hann í kynni við áhugamál sem átti eftir að eiga hug hans allan, hesta- mennskuna. Jónas hefur, á síðast- liðnum árum, ferðast um landið þvert og endilangt á hestbaki. Eins og það sé ekki nóg, þá nýtti hann ferðirnar í að skrásetja hinar marg- víslegu leiðir og kom afraksturinn út á bók fyrir hálfu öðru ári, verð- launabókinni 1001 þjóðleið. Líkt og með blaðamennskuna álpaðist Jónas út í hestamennskuna fyrir slysni. „Fyrir um 25 árum hafði dóttir mín heimtað hest mjög ein- dregið og lengi. Það endaði með því að ég keypti tvo hesta því ég þurfti alltaf að keyra hana upp í hesthús og þurfti að hafa eitthvað að gera meðan ég beið þar eftir henni. Þetta er klassísk aðferð föður til að halda dætrum frá strákum en fljótlega kom í ljós að áhugi hennar lá meira í strákunum en hestunum. Við hjónin sátum þá uppi með hestana. Þá vorum við komin með hesthús og vorum orðin svo flækt í málið. Svo fórum við að fíla þetta og sáum fljótlega að hestaferðalögin áttu vel við okkur,“ lýsir hann. Jónas tekur öll áhugamál sín til hins ýtrasta. Hann fékk snemma áhuga á mat og matreiðslu og skrifaði veitingahúsagagnrýni um áratugaskeið ásamt því sem hann prófaði sig áfram í eldhúsinu með flóknum uppskriftum og fram- andi hráefnum. „Ég hef alla tíð eldað hér heima þótt ég hafi ekki sömu tilfinningu fyrir því og áður því mér leiðist nú orðið að gera flókna hluti. Ég vil heldur fara út að borða. Á tímabili var ég í mikilli tilraunaeldamennsku, leitaði uppi bris og þvíumlíkt, sem ekki fékkst, til að prófa þessar frönsku upp- skriftir. Börnin mín muna eflaust eftir nýrunum sem ég var að reyna að fá þau til að borða en voru ekki vinsæl,“ segir hann og hlær. „Nýru eru fínn matur en mér tókst ekki að selja þau hér inni á heimilinu,“ bætir hann við. Haldið sofandi á gjörgæslu Jónas býr með eiginkonu sinni, Kristínu Halldórsdóttur, fyrrver- andi alþingismanni, í húsi sem þau byggðu á Fornuströnd á Seltjarnar- nesi árið 1972. Þau eiga fjögur börn. Eitt þeirra, Pálmi, smitaðist af blaðamennskuáhuga föður síns og starfaði með honum á DV um nokkurt skeið en hefur lengst af unnið sem fréttamaður hjá RÚV. Kristín og Jónas ferðuðust mikið. Afraksturinn var safn ferðabóka um um fjölda borga þar sem helsta áherslan var á mat og veitingastaði. Jónas skrifar enn veitingahúsarýni, en nú á vef sinn, www.jonas.is þar sem hann skrifar daglega um mál- efni sem á honum brenna. Fyrir hálfu öðru ári varð í fyrsta skipti hlé á skrifum Jónasar í þau fimm ár sem hann hefur haldið úti bloggi sínu. Skýringin var einföld: Jónas hafði gengist undir stóra hjartaað- gerð og var haldið sofandi á gjör- gæsludeild í viku eftir aðgerðina og lá viku til viðbótar á gjörgæslu- deild áður en hann var færður yfir á almenna deild þar sem hann var þriðju vikuna. „Ég var með bilaða ósæð sem víkkaði og víkkaði og hefði að end- ingu rifnað. Ég var undir stöðugu eftirliti hjá hjartalækni þangað til kom að því að ekki var annað hægt en að skera. Tilgangurinn var að setja eitthvað úr grís í staðinn. Ég fór gangandi inn á spítalann en að- gerðin var erfiðari en til stóð, með þessum afleiðingum,“ segir hann. „Ég vissi hvorki í þennan heim né annan eftir aðgerðina og var alveg kolruglaður, allt varð meðal annars í vitlausri tímaröð. Ég gat ekki einu sinni staðið í fæturna þegar ég var færður af gjörgæslu,“ segir hann. Jónas var í nokkrar vikur á göngudeild á Landspítalanum eftir sjúkrahúsdvölina og svo mánuð á Reykjalundi. Þá var hann orðinn ágætur, að eigin sögn. Hann segist hafa verið uppnuminn af þeirri fagmennsku sem einkenndi starf heilbrigðisfólks og þakklátur fyrir að tæknin skuli vera jafn mikil og raunin er. Jónas náði smám saman fyrri styrk með því að fara í stutta göngutúra út frá heimili sínu sem lengdust eftir því sem honum jókst kraftur. Í fyrrasumar taldi hann sig orðin nægilega góðan til þess að fara í hestaferð að nýju og reið fram og til baka yfir Kjöl. „Ég svindlaði svolítið og hvíldi mig stundum í jeppa sem fylgdi,“ segir hann kankvís. „Enda ætla ég að taka mið af því í ferðum sumarsins og ætla mér ekki um of.“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Jónas tekur öll áhugamál sín til hins ýtrasta. Nú blasir við hjá honum ákveðið tómarúm eftir að blaðamanna- skólinn fór í loftið. Helgin 31. maí-2. júní 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.