Fréttatíminn - 31.05.2013, Side 21
Við bjóðum
góða þjónustu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
5
8
0
Við hjólum
í verkin
Undanfarnir mánuðir
hafa sannarlega
verið viðburðaríkir
hjá Íslandsbanka
Þriðja árið í röð bárum
við sigur úr býtum í átakinu
Hjólað í vinnuna í flokknum
800+ starfsmenn.
Við endurgreiddum um 20 þúsund viðskiptavinum okkar vexti
upp á samtals um 2,5 milljarða króna. Ergo hefur endurreiknað yfir 7.200 lán
einstaklinga og fyrirtækja. Nýtt og endurbætt app Íslandsbanka með Hraðfærslum
og stöðuyfirliti leit dagsins ljós. Netbankinn er betri en nokkru sinni með umbótum á
notendaviðmóti. Við unnum að breytingum á útsendingu greiðsluseðla til að efla pappírslaus
viðskipti og settum okkur metnaðarfull markmið í umhverfisstjórnun. Við vorum hreyfiafl
í uppbyggingu verðbréfamarkaðarins með útgáfu víxla og skuldabréfa og vorum umsjónaraðilar
í hlutafjárútboði í Tryggingamiðstöðinni hf.
Vilborg Arna pólfari kom til liðs við okkur og kenndi okkur
og viðskiptavinum markmiðasetningu með fyrirlestraröðinni „Það er svalt að
setja sér markmið“. VÍB og Kauphöllin stóðu að verkefninu Raddir
atvinnulífsins, við héldum námskeið í notkun á Meniga
og settum upp fasteignamælaborð á vefnum okkar í samvinnu við
DataMarket. Við efndum til funda og fræðslu um Warren Buffet,
Steve Jobs, tækifæri á norðurslóðum, skráningum VÍS og TM, húsnæðismál,
efnahagsmál, séreignarsparnað og margt fleira.
Við buðum hjálparhönd og gáfum starfsfólki tækifæri til
að verja vinnudegi í sjálfboðavinnu í þágu góðs málefnis. Við veittum
Hvatningarverðlaun í ferðaþjónustu, stóðum að
Frumkvöðlakeppni kvenna ásamt FKA og Opna háskólanum í
Reykjavík, veittum styrki úr Frumkvöðlasjóði til verkefna á
sviði orku- og sjávarútvegs og styrkjum barna- og unglingastarf
Golfsambands Íslands.
Já, og svo þeystum við rúmlega 30.000 kílómetra í
Hjólað í vinnuna og tókum okkar flokk með trompi.