Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.05.2013, Qupperneq 31

Fréttatíminn - 31.05.2013, Qupperneq 31
< Hefur engar áætlanir að breyta hegðun < Vill ekki breyta hegðun sinni og fer í vörn < Kostir hegðunarinnar mikilvægari en gallarnir < Forðast upplýsingar og pælir minna en aðrir í hegðun sinni %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  Er til staðar til að ræða málin, hvetur og fræðir eftir því sem færi gefst. %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  (VIlL BrEyTa hEgðuN En eR EkKi búin(n) að TaKa áKvörðun) ÍHuGuNaRþReP < Er meðvituð/meðvitaður um áhættuna og er alvarlega að hugsa um að breyta hegðun < Er að vega og meta kosti og galla en hefur ekki tekið ákvörðun um að breyta hegðun sinni < Meðvitaðri um kosti þess að breyta hegðun en veit af göllunum (HEfUr tEkIð áKvörðuN Um að HæTta) UNdIrBúNiNgSþReP < Hefur tekið ákvörðun um að breyta hegðun sinni < Metur kosti þess að breyta hegðun mikilvægari en ókostina < Einstaklingar stoppa stutt á þessu stigi AnNað þrEp: FyRsTa þRep: FOríhUgUnArþrEp (ÆTlAr eKkI Að bReYtA HeGðUn) þrIðJa þRep: 800 60 30Fáðu ráðGjöf í síma: ÞArFtU AðStOð vIð að KoMaSt uPp á næsTa þRep? %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  Talar um ástæðurnar fyrir reykingunum og kostina við að hætta að reykja. DaGuR án tóbAkS31. mAí 2013 FJóRðA þrEp: FRaMkVæMdArþrEp < Breytti hegðun sinni fyrir minna en sex mánuðum < Þarf mikið að hafa fyrir hegðunar- breytingunni og áhættan á bakslagi mikil < Metur ávinning með hegðunar- breytingu sinni meiri en kostnaðinn (ER HæTt(Ur) að NoTa tóbAk) VIðHaLdSþReP (HEfUr eKkI NoTað TóBaK í EiNhVeRn tíma) fImMtA ÞrEP: < Ný hegðun orðin stöðug, hefur varað í meira en sex mánuði < Vinnur að því að koma í veg fyrir bakslag < Hugsar lítið um gömlu hegðunina Hrósar, styður og bendir á leiðir til að koma í veg fyrir bakslag. Hrósar fyrir ákvörðunina og býður aðstoð sína og bendir á leiðir sem gagnast við að hætta að nota tóbak. %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  Hrósar, styður og bendir á hættur í umhverfinu og hvernig hugarástand getur aukið líkur á bakslagi. Hegðunarbreyting gerist í þrepum og lýsa þau ólíkri aðstöðu og viðhorfum og hvað er vænlegast til að hafa jákvæð áhrif á breytinguna. Í hverju þrepi notar hver og einn mismunandi aðferðir við að færa sig yfir á næsta þrep. Tóbakshegðunarþrepin geta nýst þér til að hætta eða til að hjálpa einhverjum að hætta. Lærum á þrepin og lærum að hætta að nota tóbak! dagurantobaks.is HVeRnIg HæTtUm Við Að nOtA TóBak? H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA 1 3 -1 2 1 4 J ónas Kristjánsson er goðsögn í íslenskri blaðamennsku. Hann á fimmtíu ára reynslu að baki sem blaðamaður og ritstjóri, lengst af á Vísi, Dagblaðinu og DV eftir að dagblöðin sameinuðust. Þrátt fyrir að hann sé fyr­ ir nokkru kominn á eftirlaunaaldur og hafi gegnt síðasta starfi sínu á ritstjórn fyrir tæpum sjö árum er hann langt frá því sestur í helgan stein. Undanfarið eitt og hálft ár hefur hann unnið að undir­ búningi eigin blaðamannaskóla sem nú hefur verið settur upp á vefnum. Þar býður hann upp á námskeið í grunn­ undirstöðum blaðamennsku svo sem textastíl og fréttamennsku en einnig eru námskeið í margmiðlun og ný­ miðlun enda segist Jónas kenna blaða­ mennsku sem nýtist til næstu tíu ára en ekki blaðamennsku sem gagnaðist fyrir fimmtíu árum. Því gífurleg breyt­ ing hefur orðið á umhverfi fjölmiðla á undanförnum árum. Dagblaðalestur er á undanhaldi og áhorf á sjónvarpsfréttir fer ört minnkandi. „Margt ungt fólk fær vitneskju sína úr allt öðru en fréttum,“ bendir Jónas á. „Það les ekki dagblöð og fylgist ekki með fréttum í ljósvaka­ miðlum. Í staðinn koma amatörar sem sumpart eru orðnir fréttauppsprettur og það er áskorun fyrir hina gömlu frétta­ miðla. Þótt samskiptamiðlar á borð við Facebook og Twitter séu ágætir eru þeir ekki það sama og hefðbundnir fjöl­ miðlar með þeirri hliðvörslu sem þar er, en oft er vanmetin. Á fjölmiðlum vinna fagmenn við að grisja veruleikann og búa til áhugaverðan pakka af upplýs­ ingum sem verður til þess að fólk fylgist með,“ segir hann. Breytingarnar í fjölmiðlaumhverfinu hafa orðið til þess að kröfurnar til blaða­ manna eru allt aðrar en áður, að sögn Jónasar. „Hvort sem um er að ræða fréttaritara í Búðardal eða stríðsfrétta­ ritara á átakasvæðum þurfa blaðamenn að kunna allt í senn, skrifa fréttir fyrir dagblöð, vef, útvarp og sjónvarp – og ekkert af þeim er eins – sem og að kunna að nýta sér nýjustu tækni.“ Og þetta kennir Jónas. Feimnir við stjórnmálamenn Eitt af því sem einkennt hefur íslenska fjölmiðlamenn í gegnum árin og áratug­ ina er að fæstir þeirra eru menntaðir í faginu. Erlendis er áratugalöng hefð fyrir því að blaðamenn skóli sig í sér­ stökum blaðamannaskólum enda hefur blaðamennska verið kennd í skólum í Bandaríkjunum í yfir hundrað ár. Stór hluti af náminu felst í því að starfa inn á hinum ýmsu fjölmiðlum og fá þannig ómetanlega starfsreynslu. Nám í blaða­ mennsku er tiltölulega nýtt á Íslandi og hefur hlotið gagnrýni fyrir að vera ekki nógu hagnýtt. Þar sé áhersla á fræði­ legu hlið fjölmiðlunar í stað starfsþjálf­ unar. Því, eins og Jónas bendir á, blaða­ mennska er fyrst og fremst handverk. Jónas hefur á liðnum árum óhikað gagnrýnt efnistök íslenskra fjölmiðla og sakað blaðamenn um skort á fag­ mennsku og vandvirkni. Aðspurður segir hann að íslenskir blaðamenn séu upp til hópa hræddir við að vinna vinnu sína til enda. Hér stilli blaðamenn upp ólíkum skoðunum málsaðila en lesand­ inn sé jafnvel engu nær, því blaðamað­ urinn hafi ekki túlkað ummælin eða matreitt fréttina með þeim hætti að hún skiljist. „Hér eru menn feimnir að setja ofan í við stjórnmálamenn sem fara ef til vill með tómt rugl og þar af leiðandi er ruglið ráðandi í pólitíkinni. Hér vantar almennt eftirfylgni í spurningum – fréttir hér eru mun meira afgreiðsla á skoðunum. Það er einfalt og þægilegt en fyrir vikið er fólk rosalega fávíst,“ segir Jónas. Þó svo að Jónas hafi sjálfur stundað háskólanám er hann hrifnastur af þeim blaðamönnum sem hafa komið beint í blaðamennsku af götunni, ef svo má að orði komast. Hann segir að háskóla­ nám spilli textastíl blaðamanna, þeir skrifi í ritgerðastíl sem langan tíma taki að aflæra. Hann hefur þó ekki á móti menntun – telur einfaldlega að menntun blaðamanna á Íslandi sé ábótavant. Blaðamannaskóli Jónasar er framlag hans til þeirra umbóta. Var í vitleysisfagi Eins og svo margir rataði Jónas í blaða­ mennsku fyrir tilviljun. Árið 1959 var hann við nám í Þýskalandi, „í svona vitleysisfagi, félagsfræði, sem ég var búinn að sjá að var ekki heil brú í,“ eins og hann lýsir sjálfur. „Mig vantaði bara sumarvinnu, ég vissi ekkert um blaða­ mennsku. Ég sendi Tímanum tvær fréttir um kvikmyndahátíðina í Berlín, Björninn, sem voru birtar og ég sótti í kjölfarið um sumarvinnu,“ lýsir Jónas. Sem hann fékk. „Síðan fraus ég inni ein­ hvern veginn. Það var meira gaman að þessu en að vera í skóla. Ég átti engan draum um að verða neitt sérstakt, ekki læknir eða prestur,“ segir Jónas. Nokkr­ um árum síðar lauk hann B.A. prófi í sagnfræði í Háskóla Íslands. Jónas var í þrjú ár á Tímanum áður en hann færði sig yfir til Gunnars Schram á Vísi þar sem hann var fréttastjóri. „Ég fór af Vísi á Dagblaðið og var þá búinn að finna þráðinn í ritstjórninni og hélt að ég kynni almennilega til verka. Það var ekki fyrr en löngu seinna, þegar ég var hættur að vera ritstjóri, að ég fattaði hvernig ég átti að haga mér. Þetta er eins og að byggja hús, þú veist allt um alla hluti þannig að þegar þú ert búinn að byggja húsið ertu fullútskrifaður í þeirri tækni að byggja hús en svo bygg­ irðu aldrei annað hús. Þú ert búinn að því. Verður sérfræðingur í hlutum sem maður þarf svo aldrei aftur á að halda,“ segir Jónas og hlær. Ísafjarðarmálið fékk ekki á hann Frá Vísi fór hann á Dagblaðið sem hann segir eftirminnilegasta tímabilið í blaða­ mennsku sinni. Þar hafi verið einstök stemning, jafnt á ritstjórninni sjálfri sem og í samfélaginu. „Þegar við sam­ einuðumst Vísi og urðum DV urðum við hins vegar partur af kerfinu og fólk leit öðrum augum á okkur, við vorum ekki elskuð með sama hætti og áður. Við áttum hins vegar nóg af peningum, sem var mikil breyting, og gátum leyft okkur að gera alla hluti. Við fögnuðum friðnum sem skapaðist við að einokun kom í staðinn fyrir samkeppni enda var komin streita í fólk,“ segir hann. Með sameiningu Dagblaðsins og Vísis mynd­ aði DV ákveðið mótvægi við stærsta dagblað landsins á þeim tíma, Morgun­ blaðið, og jafnvægi náðist á markaðnum með þeirri einokunarstöðu sem blöðin tvö mynduðu. Jónas ritstýrði Fréttablaðinu í skamma hríð á árdögum þess árið 2002 en sagði skilið við blaðamennskuna og þáði „gamalmannadjobb“, eins og hann kallar það, á hestablaðinu Eiðfaxa, sem var fyrst og fremst vegna hestaáhugans. „Svo kallaði Gunnar Smári Egilsson í mig aftur seinna og gerðist ég ritstjóri á DV við hlið Mikael Torfasonar. Það var skemmtilegur tími enda gefandi að vinna með því unga og hressa fólki sem var á ritstjórninni á þeim tíma.“ Jónas og Mikael voru saman ritstjórar í um ár og hrökkluðust úr starfi í kjölfar þess fárs sem varð uppi í kjölfar umfjöllunar DV um ísfirska barnaníðinginn Gísla Hjartarson. „Við hröktumst úr starfi fyrir almannavilja. Andrúmsloftið í þjóð­ félaginu var dálítið sérstakt. Almenn­ ingur hafði fengið meiri völd í gegnum umræðu á netinu og stemningin í þjóð­ félaginu var sú að við værum andstyggi­ legir og værum að ofsækja þennan mann og að vinnubrögð okkar væru skelfileg. Mér fannst það nú ekki enda baðst ég aldrei afsökunar á þessu. En við hættum, það var ekki annað hægt, því almannaviljinn var svo sterkur. Aðrir tóku við en svo kom í ljós að ekki var grundvöllur fyrir þessari tegund blaða­ Mig vantaði bara sumar­ vinnu, ég vissi ekkert um blaða­ mennsku. Framhald á næstu opnu viðtal 31 Helgin 31. maí-2. júní 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.