Fréttatíminn - 31.05.2013, Síða 36
Upplýsingar gefur
Þorleifur Friðriksson
Sími 564 3031
Netfang: soguferdir@soguferdir.is
Enn er laust pláss í Söguferð
til Hvítarússlands 3.-10. júlí.
Verð fyrir einstakling í tvíbýli
er 189.000 kr.
Sjá dagskrá á www.soguferdir.is
Ó lafur Sigurðsson hefur safnað hljóm-plötum af mikilli einurð og festu í gegnum áratugina enda tónlistin stór
þáttur í tilveru hans. Hann hefur undanfarið
selt plötur úr stóru safni sínu á flóamörk-
uðum og um helgina verður hann með einar
1100 vínylplötur á flóamarkaði sem opnar á
laugardaginn við Dalshraun 5 í Hafnarfirði.
Segja má að Ólafur sé einn af alheimsengl-
unum fjórum sem Einar Már Guðmunds-
son heillaði landslýð með í skáldsögu sinni
Englar alheimsins árið 1993. Eins og kunnugt
er byggði Einar Már bókina á sögu Pálma
Arnar, bróður síns og andlegum veikindum
hans. Ólafur var góður vinur Pálma Arnar
og er fyrirmyndin að Óla bítli sem er einn úr
vinahópi aðalpersónunnar Páls.
Englarnir flognir
„Nei. Ég og Pálmi vorum miklir og góðir
vinir en við vorum ekkert saman í tónlist. En
ég á ljóðabók eftir hann Pálma sem mér þykir
mjög vænt um.“
Pálmi stytti sér aldur í veikindum sínum en
er Óli síðasti engillinn sem er eftir?
„Þeir eru bara farnir eitthvað. Ég veit ekki
einu sinni hvert. Eins og gengur.“
Talið berst í framhaldinu að uppfærslunni
á Englunum í Þjóðleikhúsinu og kvikmynd
Friðriks Þór Friðrikssonar. Baltasar Kor-
mákur lék Óla bítil í myndinni en Ólafur Egill
Ólafsson fer með hlutverkið á fjölunum við
Hverfisgötuna um þessar mundir.
Ertu búinn að fara og sjá leiksýninguna?
„Ég er að fara núna í júní að sjá hana og
hlakka til. Það er enginn kvíði í mér fyrir að
sjá verk byggt á vinum mínum og sjálfum mér
á sviði. Ég er bara spenntur fyrir þessu.“
Og ekki hafði Ólafur heldur neitt yfir
bíómyndinni að kvarta enda getur fátt toppað
það að vera leikinn af sjarmanum Baltasar.
„Jújú, hann lék mig í bíómyndinni. Það verður
ekki mikið betra. Það er alveg rétt.“
1100 plötur
Þegar talið berst að veglegu plötusafni Ólafs
hefur hann þetta að segja: „Ætli þetta séu
ekki plötur sem ég hef safnað svona frá því ég
var tvítugur,“ segir Ólafur um plötubunkann
sem hann dregur með sér á flóamarkaðinn.
„Þetta er eitthvað á bilinu 1000 til 1100 plötur
geri ég ráð fyrir.“ Ólafur segist aðspurður
ekki eiga erfitt með að láta plöturnar frá sér
þótt hann sé í eðli sínu einbeittur safnari. En
eins og við mátti búast eru ekki allar plötur í
hans eigu falar.
„Ég á alveg mitt safn heima og er enn að
bæta í það. Þessar rúmlega þúsund plötur eru
bara umfram. Safnið mitt heima er ekki alveg
eins stórt en það er ansi sérstakt,“ segir Óli
og nokkurs stolts gætir í röddinni. „Þetta eru
þær plötur sem mér þykir vænst um og eru
eitthvað sem ég mun aldrei láta frá mér.“
Þegar Óli er spurður hvaða hljómsveitir séu
í mestum metum hjá honum stendur ekki á
svörum og hann telur upp: „Náttúrlega Pink
Floyd, Frank Zappa, Led Zeppelin og gamalt
rokk. Það er allt milli himins og jarðar þarna
og mikið um rokk, blús og djass.“
Björk í hæsta verðflokki
Óli hefur selt plötur með góðum árangri
undanfarna mánuði og safnarar hafa verið
duglegir að elta hann uppi. „Ég er búinn að
vera á markaði við hliðina á Góða hirðinum
síðan í september, minnir mig.“ Sá markaður
er að hætta og Óli ákvað því að flytja sig milli
bæjarfélaga og koma sér fyrir með plöturnar
og plötuspilarann í Hafnarfirðinum í sumar.
Ertu með plötuspilara í gangi á markaðn-
um?
„Að sjálfsögðu! Ég hef verið með plötu-
spilara á staðnum fyrir fólkið ef það vill hlusta
aðeins á tónlistina áður en það kaupir. Maður
reynir að hafa þetta flott og það er alltaf mjög
skemmtileg stemning í kringum þessa plötu-
sölu mína.“
Verðið á plötunum hjá Óla er svo álíka fjöl-
breytilegt og tónlistin. „Prísarnir eru svona
frá 1000 krónum og upp úr. Ég er með eina
sérstaklega verðmæta plötu sem er fyrsta
platan með Björk. Það er settur 25.000 kall á
hana. Enda er hún mjög sjaldgæf.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Ekki ónýtt að vera leikinn af Baltasar
Ólafur Sigurðsson
hefur lifað og hrærst
í tónlist alla sína tíð.
Hann á veglegt safn af
vínylplötum og verður
með um 1100 titla til
sölu á flóamarkaði í
Hafnarfirði um helgina.
Hann heldur því sem
honum þykir vænst
um enn fyrir sjálfan sig
en segist annars ekki
eiga erfitt með að selja
plötur úr stóru safni
sínu. Persónan Óli bítill
í Englum alheimsins
er byggð á Ólafi sem
segist aldrei hafa snúið
baki við vínylnum, enda
sé „sándið“ miklu betra
á gömlu plötunum en
diskunum.
Plötusafnarinn Ólafur Sigurðs-
son var fyrirmyndin að Óla
bítli í Englum alheimsins. Hann
er byrjaður að selja úr stóru
plötusafni sínu þar sem flest er
falt nema þær plötur sem standa
hjarta hans næst og verða aldrei
látnar fara. Mynd/Hari
Flóamarkaðurinn Hafnarfirði
Flóamarkaðurinn Hafnarfirði opnar við Dalshraun 5 laugardaginn 1.
júní klukkan 12. Markaðurinn verður opinn allar helgar í sumar en
þar stendur fólki til boða að leigja bása fyrir hvað sem því dettur
í hug að selja þannig að ætla má að úrvalið og fjölbreytnin verði
mikil.
Ný föt og notuð verða áberandi auk þess sem Ólafur verður þar
með plöturnar sínar innan um bækur, geisladiska og allt þar á milli.
Veitingasala og setustofa eru á staðnum auk þess sem ýmsar upp-
ákomur eru fyrirhugaðar um helgar í sumar.
36 viðtal Helgin 31. maí-2. júní 2012