Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 31.05.2013, Blaðsíða 40
Ásgeir Alexandersson dreymir um að vinna við að leysa vandamál sem hann getur nálgast út frá bæði verkfræðilegum og læknisfræðilegum sjónarmiðum. Ljósmynd/Hari gerir grillmat að hreinu lostæti! E N N E M M / S ÍA / N M 57 44 6 Læknirinn sem fór í verkfræði Afburðanemandinn Ásgeir Alexandersson ákvað að fara óhefð- bundna námsleið. Hann er nýútskrifaður læknir og hálfnaður með meistaranám í heilbrigðisverkfræði sem er nýleg grein innan verkfræðinnar. Ásgeir segir endalaus tækifæri innan þessa sviðs en það skiptir hann ekki síst máli að geta sjálfur sótt börnin sín á leikskólann. L æknisfræðin heillaði snemma, alveg frá því þegar ég var unglingur. Á sama tíma fann ég á einhvern hátt að ég myndi ekki endilega verða hefð- bundinn spítalalæknir,“ segir Ás- geir Alexandersson, nýútskrifaður læknir. Snemma á kandídatsárinu ákvað hann að fylgja eftir áhuga sínum á verkfræði og skráði sig í meistaranám í heilbrigðisverk- fræði við Háskólann í Reykjavík. „Draumurinn er að vinna við að leysa vandamál sem ég get nálgast út frá bæði verkfræðilegum og læknisfræðilegum sjónarmiðum,“ segir Ásgeir. Dúx af eðlisfræðibraut Heilbrigðisverkfræði er nýleg grein innan verkfræðinnar. Þar er aðferðum verkfræðinnar beitt á eða í mannslíkamanum til að leysa vandamál sem tilkomin eru vegna veikinda eða slysa, eða einfaldlega til að bæta lífsgæði. Meðal þess sem heilbrigðisverkfræðingar gera er að hanna gervilimi, þróa tæki til notkunar á skurðstofum og nota raförvun við endurhæfingu vöðva þverlamaðra einstaklinga. „Með aukinni tækniframþróun eru mögu- leikarnir endalausir,“ segir hann. Ásgeir dúxaði af eðlisfræðibraut Menntaskólans á Akureyri með 9,6 í meðaleinkunn. Á menntaskólaár- unum keppti hann á Ólympíuleik- um í bæði stærðfræði og eðlisfræði og fékk þar heiðursviðurkenningu. Eftir útskrift fór hann í inntöku- próf í læknadeild Háskóla Íslands, komst inn en ákvað að taka sér árs frí frá námi og ferðaðist um Suður- Ameríku með kærustunni sinni, sem er eiginkona hans í dag. Eftir að hafa ferðast um heiminn þurfti hann að taka inntökuprófið á ný og hóf nám í læknisfræði. Staðlaði legrafritsmælingar Hann saknaði hörðu eðlisfræðinn- ar og stærðfræðinnar í læknanám- inu og þegar kom að rannsóknar- verkefni sem læknanemar vinna á þriðja ári ákvað Ásgeir að hafa samband við Brynjar Karlsson, dósent við tækni- og verkfræðideild HR, sem hafði kennt honum eðlis- fræði á fyrsta ári í læknisfræði og sagðist vilja vinna verkefni tengt eðlisfræði. „Þetta endaði með að ég vann óhefðbundið verkefni þar sem ég hannaði og smíðaði rafskauta- haldara til að staðla legrafritsmæl- ingar hjá þunguðum og fæðandi konum. Á sumrin vann ég síðan við að mæla konur, bæði á með- göngu og í fæðingu, með þessari aðferð sem ég hafði hannað,“ segir Ásgeir. Aðferðin er nú notuð við rannsóknir í fjórum Evrópulöndum en aðalmarkmið þeirra rannsókna er að búa til nýtt greiningartæki sem greinir legsamdrætti, hjálpar til við að spá fyrir um fyrirbura- fæðingar og vonandi fækka þeim. „Mér hefur verið boðið á nokkra fundi í Evrópu upp á síðkastið vegna þekkingarinnar sem ég hef á þessari mælitækni,“ segir hann. Ásgeir vitnar í lærimeistara sinn, Brynjar Karlsson, og segir þessar mælingar afar mikilvægar því í hverri kynslóð eru fleiri dauðsföll á tímabilinu eftir 22ja vikna með- göngu til viku eftir fæðingu en fyrir sömu kynslóð alla ævi í umferðinni. Verkefnið okkar snýst um að reyna að fækka þessum dauðsföllum með að fylgjast betur með hættu á fyrir- burafæðingum og hjálpa þannig til að koma í veg fyrir þær. Varð faðir í læknadeildinni Sjálfur á Ásgeir tvö börn, fjögurra ára skottu og tveggja ára strák, með æskuástinni sinni, Öldu Hrönn Jónasdóttur. Þau hafa verið saman síðan í 3. bekk í MA og eru nýgift. „Ég eignaðist börnin þegar ég var í læknadeildinni. Það var í raun mjög jákvætt því þá fékk ég beint í æð hvernig það er að vera faðir í krefjandi námi og vaktavinnunni á kandídatsárinu. Ég fann snemma að ég var meira frá fjölskyldunni en ég var ánægður með. Þetta er hluti af því að ég ákvað að fara í heil- brigðisverkfræði. Mig langar að geta unnið hefðbundnari vinnutíma og sótt börnin mín á leikskólann,“ segir Ásgeir. Eiginkona hans er einnig vel menntuð sem lyfjafræð- ingur. „Tímarnir eru breyttir. Það er ekki lengur þannig að annar vinnur og hinn sér um heimilið. Það er frábært að geta fundið jafn- vægi á milli vinnu og fjölskyldulífs.“ Sú námsleið sem Ásgeir hefur valið sér, að útskrifast sem læknir og fara síðan í heilbrigðisverk- fræði, er ekki hefðbundin. Hann fékk því aðstoð frá Brynjari í Há- skólanum í Reykjavík við að útbúa námsáætlun til tveggja ára þar sem hann útskrifast ekki aðeins með meistaragráðuna heldur uppfyllir ströng skilyrði Verkfræðingafélags Íslands. „Þetta er búið að vera smá púsluspil. Ég fæ ýmsa áfanga metna úr læknadeild og tek áfanga sem kenndir eru á þremur mismun- andi árum á sama tíma.“ Hann er nú að ljúka fyrra árinu af tveimur. Um jólin var hann með meðalein- kunnina 9,5 og á nýlokinni önn var hann með 9,6 í meðaleinkunn. Þar áður hafði Ásgeir fengið 8,9 í meðaleinkunn í læknadeildinni og 10 á lokaprófinu sem er staðlað bandarískt próf. Spurður út í þessar glæsilegu einkunnir verður Ás- geir eiginlega hálf feiminn, finnst óþægilegt að tala um eigin afrek og segir hógvær: „Þetta liggur bara vel fyrir mér.“ Kenndi meðfram námi Á þessu fyrra ári í heilbrigðisverk- fræði var hann einnig að ljúka kandídatsárinu sínu í læknisfræði með því að vinna á Sjúkrahúsinu á Akureyri. „Það er algjörlega frábært fólk sem þar vinnur, oft við mjög erfiðar aðstæður,“ segir Ás- geir og krefst þess með brosi og hógværð að þetta komi fram í við- talinu. „Ég vildi vera á Akureyri út af fjölskyldunni. Börnin eru þar á leikskóla, foreldrar mínir búa þar og konan mín að vinna. Ég hef því lítið komist í fyrirlestra en fer alltaf suður í verklegar æfingar og próf.“ Eins og þetta sé ekki nóg þá var hann í vetur að kenna tauga-ana- tómíu við Háskólann á Akureyri. Ásgeir var búinn að skipuleggja að kvænast síðasta sumar um leið og kandídatsárinu lauk og flytja síðan en komst að því að hann hafði færst helst til mikið í fang á sama tíma. Hann fékk þá að fara fyrr í sumarfrí frá sjúkrahúsinu og lauk kandídatsárinu í jólafríinu. Þau hjónin eru núna nýkomin heim úr brúðkaupsferðalagi til Kína. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verður Ásgeir eftir sumarið 2014, þá þrítugur, kominn með fullgild réttindi sem læknir og fullgild rétt- indi sem verkfræðingur. Hvað þá tekur við er allsendis óljóst. „Ég vil ekki binda mig strax niður í neitt,“ segir hann en bendir á að það séu nokkur öflug fyrirtæki á Íslandi þar sem heilbrigðisverkfræðimenntun kemur sér vel, til að mynda Össur, Nox Medical og Mentis Cura. „Síð- an getur verið að ég stofni fyrir- tæki. Ef ég dytti niður á eitthvað áhugavert og hefði gott fólk í kring um mig þá væri það líklega góð hugmynd,“ segir hann en vill halda öllu opnu. Enn er rúmt ár í útskrift og margt getur gerst á þeim tíma. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Ásgeir kvæntist nýverið æskuástinni sinni, Öldu Hrönn Jónasdóttur. Hér eru þau ásamt börnum sínum, Alexander og Guðrúnu. Mynd úr einkasafni 40 viðtal Helgin 31. maí-2. júní 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.