Fréttatíminn - 31.05.2013, Page 48
48 heilsa Helgin 31. maí-2. júní 2012
S næfellsnesið er alveg gríðarlega fjölbreytt göngusvæði og oft er sagt að það sé eins og smækkuð
útgáfa af Íslandi. Þar er hægt að fá sýnis-
horn af flestu því sem einkennir nátt-
úru Íslands og þetta er eitthvert besta
göngusvæðið á landinu,“ segir Reynir
Ingibjartsson, sem nýlega sendi frá sér
bókina Tuttugu og fimm gönguleiðir á
Snæfellsnesi. Áður hefur Reynir skrifað
bækur um tuttugu og fimm gönguleiðir
á höfuðborgarsvæðinu, Hvalfjarðar-
svæðinu og á Reykjanesskaga.
Að sögn Reynis hentar bókin bæði
byrjendum og lengra komnum. „Þessar
leiðir eru ekki aðeins fyrir göngugarpa.
Þær eru allar á láglendi og tilgangur-
inn með bókinni er einfaldlega sá að
hvetja almenning til útiveru og vekja
athygli á því að oft er mjög stutt að fara á
skemmtileg göngusvæði,“ segir Reynir.
Gönguleiðirnar í bókinni eru allar hring-
leiðir og segir Reynir að með því móti
sjái fólki helmingi meira en ef það gangi
fram og til baka. Í sumum tilvikum er
bæði hægt að velja um styttri eða lengri
hring og eru stystu leiðir bókarinnar
um tveir kílómetrar en þær lengstu tíu
kílómetrar. Gönguleiðir bókarinnar eru
fjölbreyttar og ýmist við ströndina eða
inn til landsins.
„Nú eru samgöngur orðnar svo góðar
að frá höfuðborgarsvæðinu kemst fólk
á þá staði þar sem gönguleiðirnar eru á
einum og hálfum til tveimur á hálfum
tíma. Svo eru líka mjög góðir gistimögu-
leikar svo það er um að gera að taka sér
góða helgi eða nokkra daga og ganga
um Snæfellsnesið,“ segir Reynir. Snæ-
fellsnesið er ævintýraheimur sagna af
ýmsum toga auk þess að vera vettvang-
ur margra Íslendingasagna. Í bókinni
eru góð kort og leiðarlýsingar þar sem
sagan er dregin fram. Bókina prýða
einnig myndir sem Reynir hefur sjálfur
tekið og varpa ljósi á viðkomandi svæði
og leið.
Reynir segir að í göngum sé aðalat-
riðið að vera í góðum skóm og klæða sig
eftir veðri og kynna sér leiðina áður en
lagt er af stað.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Cetirizin-
ratiopharm
10 mg - 10 stk., 30 stk. og 100 stk.
Fljótt að virka
Við einkennum frá augum
og nefi
Við einkennum langvarandi
ofsakláða
Búðu þig undir
ofnæmið
Nú 100 töflur án lyfseðils!
Notkunarsvið: Cetirizin-ratiopharm inniheldur
cetirizin tvíhýdróklóríð, ofnæmislyf fyrir
fullorðna og börn frá 6 ára aldri; til að
draga úr einkennum frá nefi og augum
vegna árstíðabundins eða stöðugs
ofnæmiskvefs; til að draga úr
einkennum langvarandi ofsakláða.
Frábendingar: alvarlegur nýrna-
sjúkdómur, ofnæmi fyrir virka
efninu, einhverju öðru innihalds-
efni Cetirizin-ratiopharm eða
fyrir hydroxyzini eða píperazín
afleiðum. Varúð: Einstaklingar
með skerta nýrnastarfsemi,
með flogaveiki eða sem eiga
á hættu að fá krampa skulu
láta lækninn vita áður en lyfið
er notað. Hætta þarf töku
lyfsins þremur dögum áður
en farið er í ofnæmishúðpróf.
Meðganga og brjóstagjöf:
Forðast skal notkun lyfsins.
Skömmtun: Fullorðnir og
unglingar eldri en 12 ára:
Ráðlagður skammtur er 10 mg,
ein tafla, á dag. Börn 6 til 12 ára:
Ráðlagður skammtur er 5 mg,
hálf tafla, tvisvar á dag. Sjá frekari
upplýsingar í fylgiseðli. Algengar
aukaverkanir: Þreyta, munnþurrkur,
ógleði, niðurgangur, svimi, höfuðverkur,
syfja, kokbólga og nefkvef. Lesið vandlega
fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Júlí 2012.15%
AFSLÁTT
UR
til 30. jú
ní
2013
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúrulegt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
AUGNÞURRKUR
ÚtiviSt Ný bók um göNguleiðir á SNæfellSNeSi
Snæfellsnes er eins og
smækkuð útgáfa af Íslandi
Bók um tuttugu og fimm gönguleiðir á Snæfellsnesi eftir Reyni Ingibjartsson er komin út. Göngu-
leiðirnar eru allar á láglendi og mis langar svo bókin nýtist byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Á Snæfellsnesinu er hægt að fá sýnishorn af flestu því sem einkennir náttúru Íslands.
Gönguleiðirnar í bók
Reynis Ingibjartssonar
um Snæfellsnesið eru
allar hringleiðir og svo
fólk sér helmingi meira
en ef það gengur fram
og til baka.
NÁMSKEIÐ Í LISTRÆNNI TJÁNINGU
MEÐ FJÖLLISTAKONUNNI BASIA FORREST FRÁ LONDON
Laugardaginn 15 júní frá kl. 10.00 - kl. 18.00
• Orkuæfingar og kyrrðarstund í u.þ.b. 1/2 tíma
• Þema kynnt listræn sköpun (með litum og fjölbreyttu efnisvali)
• Opin umræða og sjálfstjáning á eigin verki
• Djúpslökun í lok dags.
"It is not about beeing good at producing art, but simply
allowing yourself a day of playtime "
Staður: Kíwanishúsið við Köldukvísl Mosfellsbæ (Leirvogstungu)
Verð: kr. 20.000, kr. 15.000 ef greitt fyrir 5. júní. Te, kaffi og
grænmetismáltíð innifalin
Listræni leiðbeinandinn Basia Forrest frá London nam í Chelsea
Collage of Art and Design og Central St Martins Collage of Art &
Design London. Basia er einnig lærður ljósmyndari og leikari.
Hún hefur áralanga reynslu af námskeiðahaldi í London og víðar
http://www.ickr.com/photos/basiaforrest_courses_work-
shops_events/ . Þórgunna Þórarinsdóttir sem leiðir orkuængar,
kyrrðarstund og djúpslökun hefur rekið Heilsusetur Þórgunnu
síðan 1992 og nam Joga og hugrækt og hefur stunda það í tæp
örtíu ár. Einnig lært og leikið sér með aðra
orkuleikmi m.a. Thai chii.
Frekari upplýsingar og skráning í síma 896 9653 og á
netf: thorgunna.thorarinsdottir@gmail.com
Basia Forrest
74,6%
... kvenna
35 til 49 ára
á höfuðborgar-
svæðinu
lesa
Fréttatímann*
*konur 35 – 49 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent jan-mars. 2013
H E LGA R BL A Ð