Fréttatíminn - 31.05.2013, Page 79
Helgin 31. maí-2. júní 2012 veiði 7
KYNNING
4.990
ELBE
barnasett
VEIÐIDEILD IntErsport - BÍLDsHÖFÐA / sími 585-7220 / bildshofdi@intersport.is / opIÐ ALLA DAGA: Mánudaga - föstudaga 10 - 18 / Laugardaga 10 - 18 / sunnudaga 13 - 17
FLott VErÐsérHæFÐ ráÐGjÖFmIkIÐ úrVAL
6.990
ABUmAtIC jr.
VeIÐIstanGasett
Með lokuðu hjóli, 6 fet.
12.990
ABU
VeIÐIstanGasett
Með abumatic 275
lokuðu hjóli, 6 fet.
1.890
2.990 4.790
BErkLEy
superstronG VeIÐIGIrnI
0,24 - 0,26 MM, 270 Metrar ABUháfur
ABU
VeIÐIGrIffLur
AFtUr Í IntErsport!
Frá
Frá
nEopHrEnE VÖÐLUr
MeÐ fILtsóLa
Góðar í stangveiðina
22.990
fuLLt VerÐ: 26.990
10.990
ABU CArDInAL
VeIÐIstanGasett
opið hjól og lína, 8 fet.
Veiði Þjónusta Við Veiðimenn hjá intersport Bíldshöfða
Starfsfólk með mikla reynslu af veiði
Veiðideild
Intersport á
Bíldshöfða
og er opin
alla daga
vikunnar. Þar
starfar fólk
sem hefur
mikla reynslu
af veiði og
er viðskipta-
vinum boðið
upp á að
veiðibúnaður
sé yfirfarinn,
þeim að
kostnaðar-
lausu.
á vorin, í byrjun veiðitímans, yfirförum við flugu- og kast-hjól, spólum nýjum línum og smyrjum hjól,“ segir Ólafur
Kr. Ólafsson hjá veiðideild Intersports við
Bíldshöfða. Sú þjónusta kostar ekki neitt
en sé þörf á nýjum tengjum, línum eða
öðru greiðir fólk fyrir það.
Veiðideild Intersport er í versluninni
við Bíldshöfða og er opin frá tíu til sex,
mánudaga til laugardaga en frá klukkan
eitt til fimm á sunnudögum. Í verslun
Intersports í Lindum er lítil deild með
ýmsum smávörum fyrir veiðiferð fjöl-
skyldunnar. Að sögn Ólafs er stór hluti
af hans þjónustu að leiðbeina fólki sem
er á leið í veiði eða austur í Sog, í Alviðru
eða Bíldsfell. „Þar er ég búinn að vera
árnefndarformaður fyrir Stangveiðifélag
Reykjavíkur í tæp fjörutíu ár svo ég reyni
að miðla visku minni um það hvernig á að
bera sig að í stærstu bergvatnsá landsins.
Sogið er stórfljót sem erfitt er að koma að
án þess að vita nokkuð,“ segir Ólafur sem
ráðleggur fólki meðal annars varðandi
val á flugum sem henta til veiða í Soginu,
bæði á silunga- og laxatíma.
Hjá veiðideild Intersport er boðið upp á
veiðibúnað frá Abu Garcia, eins og töskur,
veiðivettlinga, hjól, línur, háfa og stangir.
Einnig er boðið er upp á stangarsett, hjól,
fluguhjól og fleira frá Rapala og Shim-
ano. Að sögn Ólafs eru alltaf einhverjar
tískusveiflur í veiðifatnaðinum en Ólafur
hefur þó orðið var við það eftir árið 2008 að
fólk leitist frekar við að finna góðar vörur á
góðu verði.
„Við erum með allar flugurnar frá dr.
Ólafur Kr. Ólafsson og Stefán Ingi
Danielsson með Bakkaárlaxinn. 21,5
kg. 130 cm langur og 11 ára gamall
hængur. Veiddur 24. júní 1992 af
Marinó Jónssyni, Bakkafirði. Stærsti
lax sem hefur veiðst í íslenskri
laxveiðiá. Veiddur á veiðistöng og
veiðihjól frá Mitchell. Þótt Ólafur
hafi veitt marga stóra fiska í Soginu
þá hefur hann aldrei fengið svona
stóran.
Jónasi Jónassyni fiskifræðingi (dr.
Francis) og hann sér um fluguborðið
okkar. Þar eru bæði silungaflugur,
straumflugur, laxaflugur og laxatúbur.
Við erum því með breitt úrval af hans
vörum. Við bjóðum einnig upp á inn-
fluttar laxaflugur og tvíkrækjur í sil-
ungaflugum,“ segir Ólafur.
Strandveiði nýtur vaxandi vinsælda
á Íslandi og hjá Intersporti er mikið
úrval strandveiðistanga, hjóla auk
lína sem eru sérstaklega sterkar og
henta til strandveiða. Að sögn Ólafs er
nauðsynlegt að nota sérstakan búnað
til strandveiða því þyngri beita er notuð
og sökkur geta vegið allt að einu kílói.
„Þær stangir eru yfirleitt þrettán fet
eða lengri og stífar. Hjólin eru stærri
svo það sé pláss fyrir sterkari og lengri
línu. Með besta búnaðinum er hægt að
kasta allt að hundrað og fimmtíu til tvö
hundruð metra.“
Alltaf
heitt á
könnunni.