Nýjar kvöldvökur - 01.03.1920, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1920, Blaðsíða 14
44 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Samræðan hófst brátt aftur niðri í stofunni. Marinó var að segja frá því, að hann hefði farið upp á skrifstofu þá um daginn. Rað hafði verið ætlun hans að tala við konsúlinn sjálfan; hann ætlaði að bera sig upp undan skipstjóranum, sem hafði talað ilja um hann. En hann fjekk ekki einu sinni að koma inn til konsúlsins; aftur á móti hafði einn af skrif- stofuþjónunum — »einhver bölvaður gleiðgosi með gleraugu* — komið með þau skilaboð, að Marinó fengi ekki skiprúm hjá versluninni, nema hann vildi ganga á stýrimannaskólann í vetur og hætti að drekka. Meðan hann var að segja frá þessu, var sem eldur brynni úr augum hans; þau voru stór og skær, eins og í Maríönnu, en augnaráðið var harðneskjulegt. í föla andhtinu hans sáust greinilega sömu veiklunarmerkin og á henni, en Marinó var hár vexti og beinastór, með langa, sterklega handleggi. Meðan hann var að tala, sveiflaði hann handleggjunum, og barði í borðið við og við; heiftin vall í hon- um, og jókst eftir því sem hann drakk meira, blótaði og ragnaði. Hann ætlaði ekki að fara að ganga á skóla, eftir skipun frá Garman & Worse, og þó hann drykki, þá varðaði kon- súlinn ekkert um það. En hann skyldi — og með ruddaleg blótsyrði á vörunum, steitti hann hnefann í áttina til Sandgerðis. »Pað var rjett — drengur rninn!* hrópaði Tom Robson. »Fjandans hyskið að tarna! Láttu nú sjá að þú sjert karl í krapinu.« — Mr. Robson var aldrei jafnánægður og þegar hann gat fengið Marinó til að tala sig reiðan, og það var ekki svo erfitt að fá hann til þess. Rví Marinó hafði frá barnæsku verið reiðigjarn og haft alt á hornum sjer. Hann fjekk þann vitnisburð í skólanum, að hann væri greind- astur, en um leið ódælastur allra drengjanna, og eftir að skólagöngunni var lokið, hafði hann aldrei annað gert en að setja sig upp á móti öllu og öllum, sem hann átti saman við að sælda. Marinó hafði næstum altaf orðið, þegar þeir gátu saman, fjórmenningarnir — þrír þeirra til þess að drekka, en Torpander til þess að vera nálægt elskunni sinni. »VeggjaIúsin« fjekk sjaldan að leggja orð í belg, því hann var svo óþjáll, og ef Mr. Robson, sem var eins og nokkurskonar forseti á þessu þingi, leyfði hon- um einstöku sinnum að taka til máls, þá hafði »veggja!úsin« svo mörg útlend orð á taktein- um, að hinir skildu hann ekki. Karl Jóhann Torpander var ekki heldur van- ur að segja margt. Það sem hann hugsaði mest um alt kvöldið var heimkoma Maríönnu. Eftir það sat hann venjulega þögull og hug- fanginn. En í þetta sinn studdi hann árás Marinós á Garmansfólkið — því Torpander hataði það af öllu hjarta — og hann kom með ýmsar dagblaðatilvitnanir um harðstjórn auð- valdsins og annað þess konar. »Ó! — fjandinn hafi alt bölvað sænsku- bullið úr þjer!« æpti forsetinn, »við skulum hlusta á það, sem »veggjalúsin« er að muldra fyrir munni sjer.« »Lítið þjer á — herrar rnínir!* sagði þá »veggjalúsin«. »Pað er rjettur öreiganna.* »Hvað á nú að koma?« hrópaði Marinó. »Veggjalúsin« heyrði ekki neitt, og hjelt á- fram máli sínu, en lygndi augunum deyfðar- lega til þeirra á víxl, til þess að vita, hvort þeir hlustuðu á hann. En Marinó gat ekki þagað Iengur; hann fór aftur að formæla og hella sjer út yfir Garman & Worse og auðvaldið, og skipstjórana, og alt mögulegt, og altaf var hann að súpa á ölglas- inu, og þurfti oft að kveikja í pfpunni sinni uppi yfir lampanum. Andrjes gamli hafði fyrst sest fyrir framan eldhúsdyrnar; en þeir voru svo hæglátir þetta kvöld — fanst honum, og svo mátti hann til að hlýða á tal þeirra, fyrst þeir voru að tala um Garman & Worse. Hann færði sig þv* rjett að borðinu. Tom Robson rýmdi til á bekknum, svo gamli maðurinn gæti sest þar, og hann bauð honum ölkollu sína. »Jeg þakka — Mr. Robson,« sagði Andrjes og saup á. Tom Robson var ekki aðeins for- seti við borðið, heldur var hann líka gestgjafi

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.