Nýjar kvöldvökur - 01.03.1920, Síða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1920, Síða 20
50 NVJAR KVOLDVOKUR. >Sannkristnum sómir?« sagði frú Fanney. »Jæja!« svaraði hann, brosandi. »Það var nú ekki beint það orð, sem jeg var að leita að; en þjer skiljið hvað jeg á við.« »Fyllilega,« sagði frú Fanney, hlæjandi, um leið og hún tók við bollanum, sem Magðalena var búin að hella í handa henni. »Pá komst jeg í ónáð hjá yfirboðara mínum og varð fyiir ýmiskonar óþægindum, þangað til jeg fór að kynnast Sparre prófasti betur, þá jafnaðist alt saman svo greiðlega, og nú þori jeg að fullyrða, að samkomulagið okkar á milli er næstum því eins og best getur verið hjá feðgum. Hann er óviðjafnanlegur rnaðurU endurtók aðstoðarpresturinn hvað eftir annað. »Já, er hann það ekki?« hrópaði frú Fanney. »Hann er sá fallegasti prestur, sem jeg hefi nokkurn tíma sjeð. Þó maður skyldi ekki eitt orð af ræðum hans, þá væri það útaf fyrir sig svo óviðjafnanlegt, að horfa á hann fyrir altar- inu og í stólnum. Eða þá yndislegu Ijóðin, sem hann yrkir!« »Já, jeg fyrir mitt leyti tek nú síðasta ljóða- safnið hans »Friður og friðþæging*, fram yfir alt annað, sem út hefir komið á vora tungu síðustu tíu árin. Getiö þið hugsað ykkur — góðu frúr! yndislegra Ijóð en versið þetta: »Jeg sat í kyrð við kofann minn um kveld á bekknum hljóður*. —« — »Hefir hann verið fátækur?* spurði Magðalena, hvatlega. Fanney hló; en aðstoðarpresturinn sagði henni vingjarnlega og með miklum fjálgleik, að Sparre hefði ort kvæðið, eftir að hann var orðinn prófastur; þetta um kofann ætti Iíklega helst að skilja sem skáldlegt tákn þess, hve höfundurinn gæti verið frámunalega hógvær maöur. Magðalena fann, að hún hafði spurt heimskulega, og hún settist við gluggann, til þess að geta horft út á götuna. »Já —« hjelt aðstoðarpresturinn áfram. »F*að er eitthvað svo óskiljanlegt við þann mann. Jeg get aldrei gert mjer grein fyrir í hverju það liggur; en bara við það, að vera í návist hans, er eins og maður verði fyrir svo sterk- um áhrifum af andlegum yfirburðum hans; einhverjum töfraáhrifum. —Pegar hann er orðinn biskup —« »Biskup? —« sagði frú Fanney, spyrjandi. »Alveg áreiðanlegt, frú! — Það er engum vafa bundið, að Sparre prófastur er sjálfkjörinn til að fá næsta biskupsstól, sem losnar. Pað hefir jafnvel verið gefið í skyn opinberlega.* »Nei, er það satt! Þetta hafði mjer aldrei dottið í hug,« hrópaði frúin. »En það er al- veg satt; hann mundi sóma sjer ágætlega sem biskup — þessi karlmannlegi maður, með hvítu Iokkana og stóran, skínandi gullkrossinn á brjóstinu. Pað er leiðinlegt, að kaupstaðurinn hjerna skuli ekki vera biskupssetur, — að vera biskup, það er þó sannarlega ekki svo lítið. Magðalena, hefirðu nokkurn tíma sjeð Iifandi biskup?« Magðalena sneri sjer við inn í stofuna og roðnaði út undir eyru, þegar hún sagði, stam- andi: »Hvað — hvað varstu að spyrja um — Fanney?« En frú Fanney hafði haft vakandi auga á götunni, og nú sá hún, hvar Delphin tók strik- ið yfir götuna og stefndi að húsi hennar. Hún tók kveðju hans og sagði við Magðalenu, en virti hana vandlega fyrir sjer um leið: »Viltu gjöra svo vel að sækja bolla handa amtsskrif- aranum — Magðalena mín.« »Er kandidat Delphin að koma?« spurði aðstoðarpresturinn, og litaðist um eftir hatti sínum. »Já, en þjer fáið nú alls ekki að fara — sjera Martens! — við vorum öll í svo góðu næði.« — Delphin kom inn, frú Fanney kink- aði kunnuglega kolli í kveðjuskyni, en hjelt áfram: »Nú skuluð þjer, sem prestur, einmitt hjálpa okkur til að snúa guðleysingjanum hon- um Delphin til betri végar.c »Parf ekki — þarf ekki! — náðuga frú!« hrópaði amtsskrifarinn, glaðlega. »Pað er búið að snúa mjer, að svo miklu leyti sem það á annað borð er hægt. Johnsen skólastjóri hefir sjeð um það. Við áttum langa samræðu um alvarleg málefni, einmitt mína.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.