Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.07.2013, Page 12

Fréttatíminn - 26.07.2013, Page 12
í sundlaugum Kópavogs Njóttu lífsins kopavogur.is Sund er dásam leg líkams rækt, hvort sem þú vilt ná þér í holla hreyf ngu, slökun og vel líðan í þægi legu um hverf eða bara busla og skemmta þér! Sundlaug Kópavogs og Sundlaugin Versölum bjóða frábæra aðstöðu, vatns renni brautir og heita potta. Komdu í sund! PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 31 90 2 Frá 1. maí er opið virka daga: 06.30–22.00 um helgar: 08.00–20.00 Sundlaug Kópavogs Borgarholtsbraut 17–19 Sími 570 0470 Sundlaugin Versölum Versölum 3 Sími 570 0480 Þ etta kom fólki á óvart. Einstaka manni fannst þetta vera það hræðilegasta sem hægt væri að gera,“ segir Hildur Björg Gunnarsdóttir sem tók sér námsleyfi frá læknisfræði á síðasta námsári og fór í Hússtjórnarskóla Reykjavíkur. „Þetta var æðislegt. Ég gæti talað endalaust um hvað þetta var lærdóms- ríkt og mikil upplifun. Þetta nám er allt öðruvís en nokkuð sem maður hefur prófað. Við bjuggum til alveg ótrúlega margt, bæði mat og hluti,“ segir Hildur. Í sumar vinnur hún á dagdeild krabbameinslækninga á Land- spítalanum. Þetta er ekki hluti af náminu hennar en hún getur nýtt margt af þeirri þekkingu sem hún hefur öðlast á þremur árum í læknisfræði. Hún er mjög ánægð með námið og er spennt að hefja fjórða námsárið í haust, jafnvel enn spenntari því í náms- leyfinu lét hún gamlan draum rætast. Sama um álit annarra „Ég og vinkona mín skráðum okkur saman í Hússtjórnarskólann. Hún er útskrifaður lögfræðingur og hefur starfað sem slíkur í tvö ár. Við komumst að þeirri niðurstöðu að það væri aldrei of seint að uppfylla drauma sína. Handavinna er mitt aðaláhugamál. Ég sá ekki fyrir mér að ég myndi mennta mig í að vera klæðskeri eða fara í fatahönnun. Þarna fékk ég tækifæri til að fara á nám- skeið í því, og læra svo margt fleira í leiðinni.“ Þessi ákvörðun þeirra vakti mismunandi viðbrögð. „Einhverjir héldu að ég væri að hætta í læknisfræði sem ég var auðvitað ekki að gera. Það var eins og sumum fyndist það vera skref niður á við að fara í Hús- stjórnarskólann en okkur var alveg sama. Þegar við útskýrðum áhuga okkar fannst fólki þetta sniðugt. Okkar nánustu studdu okkur alltaf.“ Hún telur að hluti af undrun fólks hafi stafað af því að það taldi hana vera að fara í nám sem væri skref afturábak fyrir jafnréttis- baráttu kynjanna. Hún gefur lítið fyrir það, segist vera femínisti og jafnvel enn meiri femínisti eftir að hafa farið í Hússtjórnar- skólann. „Ég hef með tímanum skilið að femínismi snýst um að konur hafi réttinn til að velja. Þegar ég var yngri þá var ég svona æstari femínisti, bara eins og unglingar eru sem berjast á móti öllu. Þá fannst mér fáránlegt ef konur vildu vera heima og sinna börnunum og mér fannst það hundrað skref afturábak fyrir jafn- réttið. En þetta er ekki svona einfalt. Ég er búin að komast að því að það er mjög mikil vinna að sjá um heimili og börn og ég ber mikla virðingu fyrir konum sem velja það. Nú er ég er byrjuð að reka heimili og það gerir mig ekkert að minni femínista þó ég eldi súpu. Það dregur ekkert úr mínum skoðunum á réttindum kvenna. Konur geta verið femínistar sama hvað þær gera í lífinu.“ Hildur Björg Gunnarsdóttir kom mörgum á óvart þegar hún tók sér leyfi frá læknisfræðinámi til að fara í Hússtjórnarskólann. Hún er femínisti og segist í raun enn meiri femínisti eftir að hafa numið hússtjórn. Hildur gifti sig ung, aðeins 19 ára gömul, og er óhrædd við að fara óhefðbundnar leiðir í lífinu. Handavinna er helsta áhugamál Hildar Bjargar Gunnarsdóttur læknanema. Mynd/Teitur Læknanemi í Hússtjórnarskólanum Vefnaðarstóllinn eins og orgel Hildi finnst hún hafa lært margt afar nytsamlegt í Hússtjórnarskólanum. „Við lærðum marga hagnýta hluti um hvernig á að reka heimili, hvernig er best að nýta hlutina og hvernig er gott að skipuleggja þrifin. Við lærðum ýmis húsráð og að elda einfaldan mat. Ég hef alveg trú á minni kynslóð en held að það séu ansi margir sem mikla fyrir sér að elda. Það er svo margt sem er ekkert mál þegar maður er búinn að læra það, eins og að gera sósur og súpur frá grunni eða að strauja skyrtur. Ég er orðin 25 ára og þarna lærði ég margt sem ég hefði viljað læra fyrr,“ segir hún og finnst hreinlega að það ætti að skylda ungmenni á námskeið í heimilishaldi. „Alveg óháð því hver þrífur mest á heimilinu þá þurfa allir einhvern tímann að þvo af börnunum sínum og allir þurfa að skúra. Ég lærði þarna margt sem á eftir að auðvelda mér lífið og lifa með mér í framtíðinni.“ Eitt stendur sérstaklega upp úr náminu hjá handa- vinnukonunni Hildi. „Mér fannst afskaplega gaman að læra að vefa. Við unnum við stóra vefstóla og mér leið fyrst eins og ég væri að setjast við orgel. Þarna voru pedalar sem ég vissi í fyrstu ekkert hvað ég átti að gera við. Þetta var mjög gaman og ég veit ekki hvort ég fæ nokkurn tímann aftur tækifæri til að setjast við vefstól.“ Heppin með foreldra Þetta hliðarspor á menntabrautinni er ekki það eina óvenjulega sem Hildur hefur gert því hún gifti sig aðeins 19 ára gömul og þótti það heldur ungt. Hún kynntist manninum sínum, Elíasi Bjarnasyni, þegar þau voru bæði 17 ára. „Hann var nýkominn frá Eþí- ópíu þar sem hann bjó í 8 ár með fjölskyldu sinni og foreldrar hans störfuðu sem kristniboðar. Við kynnt- umst í gegn um sameiginlega vini í KSS, Kristi- legum skólasamtökum fyrir krakka á menntaskóla- aldri. Við felldum fljótt hugi saman, byrjuðum á því að vera vinir en fundum að við áttum svona ljómandi vel saman.“ Elías er menntaður smiður, lýkur BS gráðu í bygg- ingatæknifræði í sumar og byrjar í meistaranámi í verkfræði í haust. Þrátt fyrir allt þetta nám höfðu þau tækifæri til að eyða nokkrum vikum í Suður-Ameríku fyrir áramót enda eru þau þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í kjallaranum hjá foreldrum hennar á Seltjarnar- nesi. „Það er ómetanlegur stuðningur að fá að búa í þessari íbúð. Við erum ótrúlega þakklát og heppin. Það gerir það líka að verkum að við getum ferðast aðeins þegar við erum búin að vera dugleg að vinna.“ Hildur og Elías giftu sig í Dómkirkjunni þann 26. desember 2007, á annan í jólum. „Okkur finnst jólin rómantískari tími en sumarið. Við fengum jólasnjó og þurftum að klofa hann til að komast inn í kirkjuna. Jólin eru besti tími ársins hjá okkur. Það kom sumum á óvart að við ætluðum að gifta okkur svona ung. Okkur fannst þetta það eina rétta. Við erum bæði gamlar sálir og okkur langaði að hefja hjónaband og stofna heimili. Þetta er eins og með svo margt annað, sumum fannst það skrýtið í fyrstu en þegar það kynntist okkur og hvernig við hugsum þá fannst fólki þetta mjög eðlilegt. Ég er ekki upptekin af því hvað öðrum finnst. Ég reyni ekki meðvitað að ögra en ef mér finnst eitthvað rétt og er viss í minni sök þá læt ég bara vaða. Ég er heppin með foreldra, þeir ólu mig upp sem ábyrga unga konu og þau treysta því að ég taki ábyrgðarfullar ákvarðanir. Ég ígrunda allt vel og ana ekki út í neitt. Ég er foreldrum mínum mjög þakklát.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Það gerir mig ekkert að minni femínista þó ég eldi súpu. 12 viðtal Helgin 26.-28. júlí 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.