Fréttatíminn - 26.07.2013, Blaðsíða 24
– fyrst og fre
mst
ódýr!
99 kr.stk.
Verð áður 159 kr. stk.
Don simon, epla-og appelsín
usafi, 1 lítri
Hámark 4 stk. af hverr
i tegund meðan birgðir e
ndast
38%afsláttur
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is
Þ egar maður tekur þátt í svona keppni þá fylgist maður með teikningu á pappír verða að veruleika, alveg frá
því að maður fær efnið sjálft í hendurnar
þangað til að maður vinnur með það, með-
höndlar það, spennugreinir það og svo fram-
vegis. Maður tekur þátt í öllu ferlinu og það
er ekki lengur bara einhver stærðfræðiform-
úla,“ segir Saga Úlfarsdóttir, nýútskrifuð úr
vélaverkfræði við Háskóla Íslands.
Hópur nemenda við verkfræði- og nátt-
úruvísindasvið Háskóla Íslands tók nýverið
þátt í alþjóðlegri keppni um hönnun kapp-
akstursbíla sem heitir Formula Student og
fór fram á Silverstone-kappakstursbrautinni
í Englandi. Liðið náði frábærum árangri
og hafnaði í þriðja sæti af 25 liðum í sínum
flokki.
Erfiðara að þróa rafmagnsbíla
„Þetta kom okkur svolítið á óvart vegna þess
að í þessari keppni eru mjög góðir skólar
að keppa og meðal annars lentum við ofar
en Cambridge háskólinn sem þykir með
þeim bestu. Í Bretlandi er valið úr skólum
og bara topparnir fá að taka þátt. Þá er gott
að vera frá litla Íslandi vegna þess að þeir
vilja að sem flest lönd taki þátt í keppninni,“
segir Ragnheiður Björk Halldórsdóttir,
iðnaðarverkfræðinemi við Háskóla Íslands.
Aðrir meðlimir hópsins eru Einar Hreins-
son, Aðalsteinn Pálsson, Steinar Þorvalds-
son, Sigurður Örn Ragnarsson og Jóhann
Oddur Úlfarsson. Meðlimir íslenska hópsins
stunda flest allir nám í iðnaðarverkfræði,
vélaverkfræði og rafmagns- og tölvuverk-
fræði.
Íslenski hópurinn lenti í 2. sæti fyrir kynn-
ingu sína á kostnaðar- og umhverfisáætl-
un, 4. sæti fyrir hönnun og 11. sæti fyrir
viðskiptaáætlun sína. „Það var hópur frá
Imperial College London háskólanum sem
vann í okkar flokki en þeir höfðu töluvert
betri vitneskju um það sem átti að koma
fram í viðskiptaáætluninni. Hefðum við haft
betri hugmynd um það tel ég að við hefðum
getað lent í því fyrsta,“ segir Ragnheiður.
Hönnuðu
rafknúinn
kappakstursbíl
Íslenskir verkfræðinemar tóku þátt
í alþjóðlegu hönnunarkeppninni
Formula Student sem fór fram á
Silverstone-kappakstursbrautinni í
Englandi og höfnuðu í 3 sæti í sínum
flokki. Hópurinn vinnur nú að hönnun
nýs kappakstursbíls og mun ásamt
ökumanni keppa að ári liðnu.
Bíllinn sem hannaður var af hópn-
um var rafknúinn kappakstursbíll
og segir Saga að rafmagnsbílar
séu í gífurlegri ásókn og að raf-
magnsbíll hafi verið í toppsætinu.
Hins vegar sé erfiðara að þróa raf-
magnsbíla.
Kvenmaður við stýrið
Saga og Ragnheiður segja að
vinnan við undirbúning keppninn-
ar hafi verið mjög mikil en þær eru
mjög ánægðar sem og hópurinn
með að hafa tekið þátt.
Nú mun hópurinn einbeita sér
að næstu keppni að ári þar sem
hann mun taka þátt í raunveruleg-
um kappakstri með nýjan kapp-
akstursbíl og ökumann. Verkefnið
segja þær að sé mjög kostnaðar-
samt og tímafrekt en á sama tíma
mjög lærdómsríkt. Hópurinn mun
hefja framleiðslu á bílnum sem og
þjálfun á ökumanni samhliða því.
Stefnt er að því að bíllinn verði
tilbúinn til aksturs ekki seinna en
1. maí næstkomandi og stefnan er
að ökumaðurinn verði kvenmaður
úr hópnum. Ástæðan fyrir því er
að betra er að hafa léttan ökumann
með lágan þyngdarpunkt. „Það er
mjög mikilvægt að prófa bílinn og
að þjálfa ökumanninn samhliða
því,“ segir Ragnheiður. „Þetta er
alvöru formúlukappakstur, bílarnir
eru að ná 140 km hraða í 75 metra
langri spyrnu. Þetta stendur og
fellur með ökumanninum,“ segir
Saga.
Stórfyrirtæki fylgjast með
Saga og Ragnheiður segja að mörg
tækifæri myndist fyrir þá nem-
endur sem taka þátt í keppni sem
þessari. „Hérna á Íslandi hafa
Einar Hreinsson prófar bílinn fyrir utan aðstöðu nemanna við Toppstöðina í Reykjavík.
Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, Saga Úlfarsdóttir og Einar Hreinsson eru ásamt hinum meðlimum hópsins stolt af verðlauna-
bílnum. Ljósmyndir/Hari
24 viðtal Helgin 26.-28. júlí 2013