Fréttatíminn - 26.07.2013, Page 20
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing:
Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af
natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint
inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af
kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít
(sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á
meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára
og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum
sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að
fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir
virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og
varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög
saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve
inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun,
nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá
sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta
klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt
læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218)
og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega
síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem
þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized,
Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling
by Over-the-Counter Heartburn Treatments.
2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over
Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium-
Aluminum Antacid Gel.
Ert þú með
brjóstsviða?
• Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1
• Virkar í allt að 4 tíma 2
Mixtúra Cool Mint 300 ml
Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt.
Galieve Peppermint
Tuggutöflur með piparmintu bragði
þegar við sækjum hann og verður
þá svolítið pirraður. Sjúkdómurinn
veldur því að hann þreytist fyrr en
jafnaldrarnir og hefur ekki sama
úthald og þeir til að hlaupa um og
klifra,“ segir Sif. Að sögn Hjörvars
er þó ekkert sem drengirnir geta
ekki gert ennþá, flest taki aðeins
lengri tíma og þreyti þá meira en
jafnaldrana.
„Um daginn fórum við seinni
part dags í heimsókn til ömmu og
afa sem búa á þriðju hæð í blokk
og Baldvin bað um að fá bara að
bíða úti í bíl, hann væri svo þreytt-
ur. Hann gat bara alls ekki hugsað
sér að ganga alla leið upp á þriðju
hæð. Svo buðum við honum að afi
myndi koma og bera hann upp og
þá fékkst hann með,“ segir Sif.
Áheitasöfnun gengur vel
Í Reykjavíkurmaraþoninu ætlar
Hjörvar að hlaupa hálft mara-
þon en Sif tíu kílómetra og safna
áheitum fyrir Duchenne samtökin
á Íslandi. Hvorugt þeirra hefur
hlaupið svo langa vegalengd áður
en hafa þó ekki áhyggjur af því að
komast ekki í mark. „Við göngum
þá bara inn á milli ef við verðum
mjög þreytt.“ Þegar þessar línur
eru skrifaðar, fjórum vikum fyrir
maraþonið, hafa þau Hjörvar og Sif
þegar safnað hátt í fjögur hundruð
þúsund krónum í gegnum áheita-
söfnun Reykjavíkurmaraþons.
Fjölmargir aðrir hlaupa einnig
fyrir samtökin. Upphaflega hafði
Hjörvar skráð sig til þátttöku
í tíu kílómetra hlaupinu og þá
söfnuðust nokkur þúsund en svo
skoruðu bræður hans á hann að
hlaupa hálft maraþon ef áheitin
færu yfir 50.000 krónur og tókst
það á örskotsstundu. „Í fyrra
söfnuðust 700.000 krónur fyrir
samtökin svo ef ég einn næ þeirri
upphæð breyti ég skráningunni
aftur og fer heilt maraþon,“ segir
Hjörvar og hlær.
Þegar Reykjavíkurmaraþonið
fer fram verður liðið nákvæmlega
ár frá því Baldur Ari fékk sína
greiningu en sá eldri, Baldvin, var
greindur viku fyrr. Foreldrarnir
vilja gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að safna peningum til
rannsókna á sjúkdómnum sem
engin lækning hefur enn fund-
ist við. „Mín heitasta ósk er sú
að það finnist lækning því ég vil
ekkert frekar en að synir mínir
eigi langt og gott líf fyrir höndum.
Ég vil líka að nýfædd dóttir mín
muni eiga bræður á lífi þegar hún
verður fullorðin,“ segir Sif.
Nánari upplýsingar um áheita-
söfnun til styrktar Duchenne
samtökunum á Íslandi má nálgast
á síðunni www.hlaupastyrkur.is
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Það eru rannsóknir í
gangi víða um heim
og við krossleggjum
fingurna og vonum
að það komi eitthvað
sem mun gagnast
sonum okkar. Maður
liggur yfir þessu á
netinu og fylgist með
um leið og einhverjar
fréttir koma og ég er
mjög bjartsýnn á að
það komi lækning á
næstu árum.
Hjörvar Jónsson Ef ég safna yfir sjö hundruð þúsundum breyti ég skráningunni aftur og fer heilt maraþon. Ljósmyndir/Hari
20 viðtal Helgin 26.-28. júlí 2013