Fréttatíminn - 26.07.2013, Blaðsíða 36
36 heilsa Helgin 26.-28. júlí 2013
Heilsa Hugmyndir að Hugleiðslu úr Kundalini jóga
Nefkvef, hnerri og
kláði í nefi
eru helstu einkenni frjókornaofnæmis
Nýjung Sinose 100% náttúrulegt efni
sem úðað er í nef og kemur af stað öflugum
hnerra sem hjálpar til við að hreinsa ofnæmis-
vaka úr nefi en í leiðinni róar það og ver með
áframhaldandi notkun.
Sinose er þrívirk blanda
sem hreinsar, róar og ver.
Hentar einnig þeim sem
þjást af stífluðu nefi og
nef- og kinnholubólgum.
Hentar öllum frá 12 mánaða aldri, á meðgöngu
og meðan á brjóstagjöf stendur.
Slævir ekki, engin kemísk íblöndunarefni.
Andaðu léttar og njóttu sumarsins með Sinose
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Frekari upplýsingar www.gengurvel.is
Náttúrulegi
nefúðinn sem
sló í gegn
sumarið
2012
KYNNING
s íðasta sumar komu dag- og nætur-kremin frá UNA skincare á markað og var það stór stund fyrir íslenska
nýsköpunarfyrirtækið Marinox, framleið-
anda varanna. Nú hefur augnkrem bæst í
Marine Bioactive línuna og ber það nafnið
Ultra Rich Eye Cream. Kreminu er pakkað
í loftþéttar, fimmtán millilítra krukkur með
pumpu og er afar þægilegt í notkun.
Augnkremið inniheldur virk efni sem
unnin eru úr íslenskum þörungum og
fór rannsóknar- og þróunarvinna fram í
náinni samvinnu við Matís í Reykjavík og
á Sauðárkróki. Rannsóknirnar snérust
um lífvirk efni í íslenskum þörungum og
andoxunarvirkni þeirra og leiddu þær í
ljós að bóluþang stóð upp úr. Því eru líf-
virku þörungaefnin í vörum UNA unnar
úr bóluþangi. „Sjávarþörungar eru vannýtt
auðlind á Íslandi en þeir innihalda aragrúa
af heilsusamlegum lífefnum sem hægt er að
nýta í margvíslegar afurðir. Marinox hefur
þróað náttúrulega aðferð til að einangra og
framleiða virk efni úr þessari einstöku ís-
lensku auðlind og þar með tryggt hámarks-
virkni þeirra. Þeir sjávarþörungar sem við
notum eru handtíndir og sérvaldir,“ segir
Eybjörg Einarsdóttir sölu- og markaðsstjóri
Marinox.
Ultra Rich augnkremið frá UNA skincare
er hannað til að vinna á húðinni í kringum
augun og inniheldur lífvirk efni úr sjávar-
þörungum ásamt öðrum öflugum og
virkum sérvöldum efnum. Húðin í kringum
augun er afar þunn og því eitt viðkvæmasta
húðsvæðið. Með aldrinum og ytra áreiti
svo sem sólargeislum og mengun veikist
byggingarefni húðarinnar og það dregur
úr framleiðslu mikilvægra efna sem veldur
því að húðin verður slappari og línur og
hrukkur byrja að myndast. Augnkremið
frá UNA skincare er sérhannað til að vinna
gegn þessum breytingum.
Eitt af virku efnunum í augnkreminu
er Palmitoyl Tripeptide-38 sem er eitt
öflugasta peptíð sinnar tegundar og kemur
í veg fyrir og dregur úr hrukkum á augn-
svæðinu. Klínískar rannsóknir sýna að
peptíðið dregur marktækt úr hrukkum og
sléttir húðina kringum augun. Í kreminu er
einnig þörungaextrakt unnið úr bóluþangi,
sem inniheldur mikið af lífvirkum efnum
eins og florótannín andoxunarefni, lífvirkar
fjölsykrur, amínósýrur, vítamín og steinefni
sem berjast gegn hvarfeindum og öldrun
húðarinnar ásamt því að draga úr bólgum
og roða. Þörungaextraktið er framleitt af
Marinox með háþróaðri aðferð úr sérvöld-
um handtíndum íslenskum þörungum. „Ný-
legar rannsóknir á þörungaefnum benda til
framúrskarandi andoxunarvirkni í frumum
og hindra virku innihaldsefnin ákveðin
ensím sem finnast í húðinni sem valda
niðurbroti á kollageni og elastíni sem eru
mikilvæg byggingarefni hennar. Virku efn-
in draga verulega úr bólgumyndun og bæta
teygjanleika húðarinnar,“ segir Eybjörg.
Að sögn Eybjargar hafa viðtökur UNA
skincare vörumerkisins verið afar góðar.
„Íslendingar leggja sig fram við að kaupa
íslenskar vörur. Það skiptir miklu máli
fyrir okkur sem þjóð því öll nýsköpun og
verðmæta aukning er afar mikilvæg. UNA
skincare er eitt af fáum íslenskum húðvöru-
merkjum sem hafa vísindalegar rannsóknir
á bak við sig.“
Augnkremið frá UNA er án allra litar,-
paraben,- og ilmefna og er ekki prófað á
dýrum. Nánari upplýsingar má nálgast á
heimasíðu UNA www.unaskincare.com og á
Facebook-síðunni unaskincare.
Nýtt augnkrem frá íslenska nýsköp-
unarfyrirtækinu Marinox, fram-
leiðanda UNA skincare, er komið á
markað. Kremið inniheldur sérvalin
og öflug innihaldsefni en eitt af virku
efnunum er unnið úr íslenskum
sjávarþörungum og voru rannsóknir
á þeim gerðar í náinni samvinnu við
Matís. Fyrir ári komu á markað UNA
dag- og næturkrem sem notið hafa
mikilla vinsælda.
UNA augnkremið inniheldur öflug og sérvalin efni svo árangurinn leynir sér ekki. Kremið styrkir og endurvekur byggingarefni húðarinnar, dregur verulega úr dökkum og
þrútnum svæðum og varnar hrukkumyndun á augnsvæðinu ásamt því að bæta áferð húðarinnar svo hún verður silkimjúk og ljómandi.
Augnkremið hefur nú bæst við línu UNA húðvara en
fyrir ári síðan komu dag- og næturkrem á markað.
s alka gaf í vikunni út bókina Hin sanna náttúra eftir Arn-björgu Kristínu Konráðs-
dóttur, kundalini jógakennara,
heilara og jógískan ráðgjafa. Í bók-
inni eru útskýringar og ljósmyndir
af hugleiðslu úr Kundalini jóga
eftir forskrift Yogi Bhajan á tutt-
ugu og fjórum stöðum í náttúru
Íslands. Við hverja hugleiðslu flétt-
ast svo landslagsmyndir og fróð-
leikur um hvern stað. Ef lesandi á
þess ekki kost að ferðast á staðina
hjálpa myndirnar að skynja orkuna
frá þeim og njóta hugleiðslunnar.
„Ef fólk hefur ekki kost á því að
skreppa út í náttúruna getur það
horft á mynd í bókinni og tengt sig
í huganum,“ segir Arnbjörg.
Bókin kemur einnig út á ensku
undir heitinu True Nature in Ice-
land og var það nokkurra mánaða
ferli að fá hana samþykkta hjá
Kundalini Research Institute í
Bandaríkjunum sem tryggir að
hugleiðsluleiðbeiningar og myndir
eru eins og Kundalini-, Hatha- og
Naad jógameistarinn Yogi Bhajan
kenndi upphaflega. „Það var mikil
vinna að fá hana samþykkta hjá
stofnuninni en að
sama skapi mjög
mikilvægt. Þá geta
iðkendur gengið
að því vísu að hug-
leiðsluleiðbeiningar
og myndir séu sam-
kvæmt hefðinni,“
segir Arnbjörg.
„Mín reynsla er
sú að það sé mun
ánægjulegra að
hugleiða úti í nátt-
úrunni. Þegar Yogi
Bhajan hóf kennslu
í Bandaríkjunum
árið 1968 var það
einmitt oft utan-
dyra. Það eru svo
margir fallegir
staðir að velja um, hreint loft og
gróðurilmur allt í kring svo upp-
lifunin verður ánægjulegri og
heilsusamlegri,“ segir Arnbjörg.
Í bókinni eru leiðbeiningar að
mismunandi hugleiðslu, sem til
dæmis veitir iðkendum hamingju,
innri staðfestu, orku, frið og kær-
leik. Þar eru grunnskrefin einnig
kennd svo byrjendur geta lært
hugleiðslu með
hjálp bókarinnar.
„Bókin hefur
verið mikið sam-
vinnuverkefni og
ótal margir sem
hafa hjálpað til að
láta hana verða að
veruleika. Yoko
Ono las yfir þann
kafla sem fjallar
um friðarhug-
leiðslu í Viðey og
líkaði vel og ritaði
eina tilvitnun
í þann kafla.“
Bókin er fyrsta
sinnar tegundar
á Íslandi og telur
Arnbjörg jafn-
vel líklegt að bókin sé sú fyrsta
í heiminum í tengslum við þessa
tegund jóga. „Það er þó ekki hægt
að slá því föstu. Ég hef ekki heyrt
af öllu því góða sem fólk hefur
tekið sér fyrir hendur í heiminum.
Þau hjá Kundalini Research Insti-
tute hafa í það minnsta ekki sam-
þykkt bók sem þessa áður,“ segir
Arnbjörg.
Bók um hugleiðslu
í íslenskri náttúru
Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari með meiru, hefur sent frá sér bókina Hin sanna nátt-
úra. Í bókinni eru leiðbeiningar að hugleiðslu víðs vegar í náttúru Íslands. Bókin kemur jafnframt
út á ensku og er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og jafnvel í heiminum. Yoko Ono las yfir
þann kafla sem fjallar um friðarhugleiðslu í Viðey og líkaði vel og ritaði tilvitnun í kaflann.
Fyrsti hugleiðsluviðburður bókar-
innar var í Kjarnaskógi á Akureyri.
Arnbjörg við gong-hljóðfærið eftir
slökunarstund.
Nýtt augnkrem frá UNA skincare