Fréttatíminn - 26.07.2013, Blaðsíða 42
42 skák og bridge Helgin 26.-28. júlí 2013
Skákakademían Ungir Snillingar Skipa fleSt efStU Sætin á StigaliSta fide
1. sæti: magnus Carlsen, fæddur
30. nóvember 1990,
Noregi. Hann varð
stórmeistari 13
ára, næstyngstur
allra í sögunni, og
hefur síðan slegið
flest met sem hann
hefur komist í tæri
við. Carlsen teflir í
nóvember einvígi
við Anand um heimsmeistaratitilinn.
Þótt einvígið fari fram á heimavelli
Anands, Indlandi, hallast flestir að
öruggum sigri unga Norðmannsins.
2. sæti: levon aronian, fæddur
6. október 1982,
Armeníu. Þessi
eitilharði meistari er
þjóðhetja í heima-
landi sínu, enda
hefur hann leitt
Armena til margra
glæsilegra sigra á
ólympíumótum og
í heimsmeistarakeppni. Hefur orðið
heimsmeistari í atskák og hraðskák, og
ávallt til alls líklegur.
3. sæti: fabiano Caruana, fæddur
30. júlí, 1992, Ítalíu.
Hinn geðþekki Ítali,
sem sigraði á N1
Reykjavíkurmótinu
í fyrra, hefur farið
með himinskautum
síðustu misserin.
Hann er yngstur
allra á topp 10 og
til alls líklegur í framtíðinni. Er nú rétt
við 2800 stiga múrinn, og að margra
áliti skæðasti keppninautur Carlsens í
framtíðinni.
4. sæti: alexander grischuk,
fæddur 31. október,
1983, Rússlandi.
Grischuk er nú
stigahæstur rúss-
neskra skákmanna,
en fæstir búast við
að hann blandi sér
alvarlega í keppni
um heimsmeistara-
titilinn úr þessu.
Grischuk varð hins-
vegar heimsmeistari í hraðskák 2006
og 2012.
5. sæti: Vladimir kramnik, fæddur
25. júní 1975,
Rússlandi. Einn
af jöfrum skák-
sögunnar, sigraði
Kasparov í einvígi
um aldamótin og sat
sem heimsmeistari
til 2007, þegar hann
tapaði fyrir Anand.
Kramnik, sem býr í París, hefur verið
mistækur að undanförnu. Hann var
þó hársbreidd frá sigri á áskorenda-
mótinu í London í vor, og gæti alveg
blandað sér aftur í baráttuna um
heimsmeistaratitilinn á næstu árum.
6. sæti: Hikaru nakamura, fæddur
9. desember 1987,
Bandaríkjunum.
Besti skákmaður
vesturálfu er
hinn sókndjarfi
og drambsami
Nakamura, sem er
japanskrar ættar.
Hann sigraði á fyrsta
risamóti sínu í fyrra (Wijk aan Zee) og
hefur prílað upp stigalistann af einurð
og festu. Eitilharðir aðdáendur spá
honum heimsmeistaratitli.
7. sæti: Vishy anand, fæddur 11.
desember 1969,
Indlandi. Heims-
meistarinn Anand,
sem verður 44 ára
á aðventunni, er
aldursforsetinn á
topp 10. Hann hefur
sigið niður listann
að undanförnu
og átt misjöfn mót. Sjöunda sætið
sæmir auðvitað ekki heimsmeistara,
en Anand er tvímælalaust einn mesti
skákmaður allra tíma. Enginn skyldi
afskrifa hann fyrirfram í einvíginu á
móti Carlsen í haust.
8. sæti: Shakhriyar mamedyarov,
fæddur 12. apríl
1985, Azerbæjan.
Þessi eitilharði Azeri
er ríkjandi heims-
meistari í atskák
og hefur staðið
sig frábærlega á
Grand Prix mótum
FIDE. Hann hefur á
síðustu árum staðið
í skugga landa síns, Radjabovs, en sá
góði meistari er í frjálsu falli meðan
boxarasonurinn blómstrar.
9. sæti: Sergey karjakin, fæddur
12. janúar 1990,
Rússlandi. Karjakin
fæddist í Úkraínu
en tók upp rúss-
neskt ríkisfang fyrir
fjórum árum. Hann
varð stórmeistari
í skák aðeins 12
ára og 7 mánaða,
yngstur allra í sögunni. Gríðarlega
hæfileikaríkur skákmaður sem ugg-
laust mun keppa um æðstu metorð við
Carlsen, Caruana og aðra snillinga af
ungu kynslóðinni.
10. sæti: Veselin topalov, fæddur 15.
mars 1975, Búlgaríu.
Topalov varð heims-
meistari FIDE árið
2005, en tapaði árið
eftir fyrir Kramnik
í „sameiningar-
einvígi“. Reyndi
svo án árangurs
að ná krúnunni af
Anand. Þessi harð-
skeytti Búlgari hefur setið í efsta sæti
heimslistans í alls 27 mánuði. Aðeins
Kasparov, Karpov, Fischer og Carlsen
hafa trónað þar lengur. Topalov
elur enn með sér drauma um æðstu
metorð, en tími hans á toppnum er
trúlega liðinn.
í slenska stúlkan Hjördís Eyþórs-dóttir, sem hefur verið atvinnumað-ur í bridge um árabil vestanhafs í
Bandaríkjunum, vann sér á dögunum
sæti í heimsmeistarakeppninni í Balí.
Bandaríkin hafa rétt til þess að senda
tvö kvennalið í keppnina og haldin var
keppni í Flórída í júlímánuði til að velja
lið. Hjördís var í sveit Westheimer,
sem kennd er við fyrirliða sveitarinnar
Valerie Westheimer en auk þeirra voru
í sveitinni Jenny Wolpert og Jill Levin.
Sveit Westheimer háði 120 spila úrslita-
leik gegn sveit Baker og vann nauman
sigur með 221-217 impum. Naumara
mátti það ekki vera, því sveit Baker var
með forystu fyrir lokalotuna 197-184.
Lokalotan fór 37-20 fyrir sveit Westhei-
mer og sigurinn var hennar. Sigurinn
veitir sveitinni rétt til þess að vera önnur
kvennasveit Bandaríkjanna á heims-
meistaramótinu Venice Cup í Balí sem
háð verður í september. Sannarlega frá-
bær árangur hjá Hjördísi, sem gengur
undir gælunafninu „Disa“ í Bandaríkj-
unum. Spil dagsins er frá úrslitaleikn-
um gegn sveit Baker. Það kom fyrir í
lokalotunni og var númer 107 í leiknum.
Óhætt er að segja að spilið hafi verið
stór þáttur í sigri sveitar Westheimer.
Suður var gjafari og enginn á hættu:
Bridge fráBær árangUr HjördíSar eyþórSdóttUr
Sæti í landsliði Bandaríkjanna
♠ DG2
♥ ÁG
♦ ÁK103
♣ K1042
♠ Á86543
♥ K5
♦ D92
♣ ÁG
♠ 7
♥ 7643
♦ 87
♣ D98653
♠ K109
♥ D10982
♦ G654
♣ 7
N
S
V A
Suður vestur norður austur
1 ♠ pass 2 ♣ pass
2 ♠ pass 3 ♠ pass
4 ♣ pass 4 grönd pass
5 ♥ pass 6 ♠ p/h
Tiltölulega einfaldar sagnir. Hjördís sat
í norður og Westheimer í suður. Hjördís
geimkrafði með 2 laufum, Westheimer
sýndi sexlit með 2 spöðum og þriggja spaða
sögn Hjördísar sýndi stuðning í litnum og
slemmuáhuga. Fjögur lauf var fyrirstöðu-
sögn, 4 grönd 5 ása spurning (trompkóngur
talinn sem ás) og 5 hjarta svarið sýndi 2
ása og neituðu spaðadrottningu. Hjördís lét
því eðlilega 6 spaða duga. Þar græddi sveit
hennar vel, því sveit Baker réði ekki vel við
sagnir og endaði í alslemmu í spaða. Þar var
notuð fjögurra granda sögnin sem annar
spilaranna taldi að væri ásaspurning en fé-
lagi hennar skildi hana ekki þannig. Austur
átti öruggan spaðaslag í alslemmu og sveit
Westheimer græddi 14 impa á þessu spili.
Fyrirtaks þátttaka í sumarbridge
Óhætt er að segja að þátttakan hafi verið
góð miðvikudagskvöldið 17. júlí í sumar-
bridge. Þar skráðu 38 pör sig til leiks.
Bræðurnir Oddur og Árni Hannessynir
unnu næsta öruggan sigur með góðu skori.
Lokastaða 5 efstu para varð þannig:
1. Oddur Hannesson – Árni Hannesson 67,8%
2. Gunnlaugur Karlsson – Kjartan Ingvarsson 61,6%
3. Ingibjörg Guðmundsd. – Sólveig Jakobsd. 58,8%
4. Gunnar B Helgason – Magnús E Magnússon 57,6%
5. Guðmundur Skúlason – Stefán Stefánsson 57,3%
Aðsóknin hefur verið minni á mánudags-
kvöldum í sumarbridge, en samt með
ágætum. Þó að það sé sjaldgæft, þá enduðu
leikar þannig í sumarbridge 22. júlí, þar sem
þáttakan var 23 pör, að tvö pör enduðu jöfn
í fyrsta sætinu. Lokastaða efstu para varð
þannig:
1. Kjartan Jóhannsson – Hjálmar S Pálsson 61,1%
1. Jón Viðar Jónmundss. – Þorvaldur Pálmas. 61,1,%
3. Guðrún Jörgensen – Vilhjálmur Sigurðsson jr 8,9%
4. Egill Darri Brynjólfsson – Snorri Karlsson 56,1%
5. Magnús Sverrisson – Halldór Þorvaldsson 55,5%
Á heimasíðu Bridgesambandsins (bridge.
is) er reiknaður út árangur allra þeirra sem
mæta í sumarbridge. Þar er efstur á blaði
Bergur Reynisson sem hefur fengið 58,22%
skor að meðaltali. Gunnlaugur Sævarsson er
í öðru sæti með 58,13% að meðaltali, Stefán
Stefánsson í þriðja sæti með 57,67% að
meðaltali, Árni Hannesson í fjórða sæti með
57,10% og Kristján Már Gunnarsson í fimmta
sæti með 56,18% að meðaltali.
Spilarar í sveit Westeimer voru Jenny Wolpert,
Valerie Westheimer, Hjördís Eyþórsdóttir og Jill
Levin.
Á vefnum 2700chess.com er hægt að fylgjast með breytingum á skákstigalistanum frá degi til
dags. Lítum nú aðeins á 10 stigahæstu skákmenn heims.
Carlsen, 2862 stig.
Aronian 2813 stig.
Caruana 2796 stig.
Grischuk 2785
stig.
Kramnik 2784 stig.
Nakamura 2775
stig.
Anand 2775 stig.
Mamedyarov 2774
stig.
Karjakin 2772 stig.
10 bestu skákmenn heims
Topalov 2769 stig.