Fréttatíminn - 26.07.2013, Qupperneq 59
V
ið tókum þátt í
Edrúhátíðinni í fyrra
og það var ótrúlega
gaman og gekk vel.
Það var hin fínasta
stemning og mér
heyrist á öllu að það verði stærra í ár
og við búumst við enn betri stemn-
ingu,“ segir Guðný Gígja Skjaldar-
dóttir, Gígja, ein af fimm meðlimum
hljómsveitarinnar Ylju sem mun spila
á hátíðinni.
„Ég tel Edrúhátíðina vera mjög
skemmtilegt framtak. Það að geta
farið með fjölskyldu og börnum og
verið í áfengislausri útilegu,“
segir Gígja.
Hljómsveitin Ylja gaf út
sína fyrstu plötu í nóvem-
ber í fyrra „Ylja“.
„Við höfum verið
ótrúlega dugleg að
fylgja henni eftir,
það gengur vel og
við erum rosalega
ánægð. Nú erum
við að leggja
drög að næstu
plötu og
erum að
vinna í
henni
hægt og
rólega,“
segir
Gígja.
Viðtök-
urnar við
fyrstu plötunni segir hún að hafi verið
góðar og að platan hafi verið að seljast
vel. „Við höfum verið að selja plötur
á tónleikum líka og sérstaklega til
útlendinga sem hafa veitt okkur mjög
góðar viðtökur þó svo að við syngjum
bara á íslensku,“ segir Gígja.
Á Edrúhátíðinni segir Gígja að Ylja
muni spila lög af gömlu plötunni. „Síð-
an verðum við vonandi komin með nýtt
lag sem við erum að klára þessa dag-
ana ef allt gengur eftir,“ segir Gígja.
Ylja hefur verið að spila um landið í
sumar en mun einnig spila á hátíð-
inni Innipúkanum í Reykjavík
um Verslunarmannahelgina.
Einnig mun hljómsveitin
spila á Vegamótum í miðri
viku í sumar.
Hljómsveitinni Ylju
skipa Bjartey Sveins-
dóttir (söngur og gítar),
Guðný Gígja Skjaldardóttir
(söngur og gítar), Smári
Tarfur Jósepsson
(slide-guitar)
og Valgarð
Hrafnsson
(bassi) og
Maggi
Magg
(tromm-
ur).
Þ essi hátíð er flott framtak. Ég mæti bara á svæðið með góða skapið í farteskinu og
vona að fólk eigi eftir að njóta há-
tíðarinnar. Ég ætla að syngja nokk-
ur lög af sólóplötunum mínum og
nokkur GusGus lög á föstudags-
kvöldinu,“ segir Daníel Ágúst, tón-
listarmaður og meðlimur hljóm-
sveitarinnar GusGus.
Hljómsveitin GusGus er að
vinna að næstu plötu þessa
dagana, inn á milli þess sem hún
spilar á tónlistarhátíðum víðs
vegar um Evrópu. „Við ljúkum
við plötuna líklega í haust og hún
kemur út væntanlega á næsta ári,
það er þó ekki víst að það náist
fyrir jólin. Platan er búin þegar
hún segist vera búin, það er ekki
hægt að flýta eða stjórna því ein-
hvern veginn,“ segir Daníel.
Daníel segir að á nýju plötunni
muni GusGus reyna að finna nýja
fleti á nýjum lögum og það sem
veiti honum innblástur sé að mestu
leyti samskipti við annað fólk og
þær aðstæður sem hann lendir í.
Hljómsveitin GusGus hefur ný-
lega spilað á þremur tónlistarhá-
tíðum í Austurríki, Ungverjalandi
og Noregi. „Við vorum að spila á
besta tíma og á stóru sviði í Ung-
verjalandi og það myndaðist alveg
ótrúlega mögnuð stemning,“ segir
Daníel. Hópurinn lenti einnig í
ævintýralegum aðstæðum í Osló
en allt endaði vel. „Þetta var nú
svolítið skrítin tónleikaferð hjá
okkur því flugfélagið týndi megn-
inu af tónleikagræjunum. Frá því
að við lentum og við áttum að
fara á svið voru þrír klukkutímar.
Okkur tókst með góðra vina
hjálp að púsla saman einhverjum
græjubúnaði til þess að flytja tón-
leikana. Þetta var lítið kraftaverk
að þetta tókst í rauninni. Viddi, ís-
lenskur vinur okkar í Osló, lánaði
okkur eina græju og hjálpaði
okkur að finna hljóðfæraleigu þar
sem við fengum hljómborð. Við
fengum græjurnar okkar kvöldið
eftir þannig að þetta var ævintýri
sem endaði vel,“ segir Daníel
Ágúst.
„Börnunum fannst sætkartöflusúpan og kjúklingurinn
bestur,“ segir Ágúst Már Garðarsson, betur er þekktur
sem Gústi Chef.
Gústi Chef sá um matinn í Edrúhátíðinni í fyrra en
vann einnig við tónleikahaldið á kvöldin. Á þessari há-
tíð mun hann hins vegar einbeita sér að því
að elda dýrindis kræsingar fyrir gesti
hátíðarinnar og getur frekar notið
þess að hlusta á tónleikana á kvöldin
að þessu sinni.
„Þetta var alveg frábært í fyrra og
ég vona að það verði eðlileg þróun
að hátíðin stækki. Hátíðin heppnaðist
mjög vel í fyrra og tónleikarnir voru
mjög flottir,“ segir Gústi.
Gústi segir að í fyrra hafi
listasmiðjurnar úti og leik-
ritin notið mikilla vin-
sælda hjá börnunum en
í ár komi til dæmis líka
Leikhópurinn Lotta.
Segir hann að dag-
skráin í fyrra hafi
heppnast mjög vel, til dæmis áherslan á hið andlega
eins og jógaæfingar, hláturjóga og fleira sem verður
líka á hátíðinni núna.
Matseðillinn verður ekki bara gómsætur heldur líka
hollur og á góðu verði.
Morgunmatur: Hafragrautur, AB mjólk, Granola
músli og ávextir, soðin egg, brauð og álegg. 750 kr.
Hádegi: Bragð-
mikil edrúsúpa
og br auð.
1250 kr.
Kvöldmatur:
Steik og hlað-
borð. Sæt ar
kartöflur, epla-
salat , ferskt
salat, tómat-
salat og tvær
kaldar sósur
(kjúkl ingur á
laugardeginum og lambalæri
á sunnudeginum). 2000 kr.
Hvað er svona gott við edrúhátíðina?
Maður er ekki að fara að vakna á
degi tvö með djammviskubit og skilja
tjaldið eftir og húkka far í bæinn.
Annars hef ég aldrei skemmt mér jafn-
vel og á Laugalandi i fyrra.
Hvað er mikilvægast í lífinu?
Lifa lífinu lifandi.
Af hverju ertu svona brún þrátt fyrir alla
þessa rigningu?
Þökk sé sólbaðstofunni Sól 101 verð eg
brún út sumarið :)
Örviðtal
Natalie GunnarsdóttirGústi Chef býður upp á frábæra veislu
Kemur með
góða skapið
á flotta hátíð
Ylja spilar á Edrúhátíðinni
Búumst við enn
betri stemningu í ár
Nú erum við að
leggja drög að
næstu plötu og
erum að vinna
í henni hægt
og rólega
3EDRÚ VERSLUNARMANNAHELGINA 2.-5. ÁGÚST 2013