Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 2
ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Skólaostur i sneiðum og 1 kg stykkjum á tilboði  Heilbrigði Hópur fagfólks í samstarfi við fjölskyldu ákvarðar kyn Eitt barn á ári af óræðu kyni Það eru ekki þessi börn sem fara í kyn- leiðrétt- ingarferli síðar. Fyrsta spurningin sem nýbakaðir foreldrar þurfa að svara er hvort barnið er strákur eða stelpa. Í undantekningar­ tilfellum er það hins vegar ekki ljóst og barnið af óræðu kyni. Hér á landi er reynir fagfólk í samstarfi við foreldra að ákveða kynið sem fyrst og gera viðeigandi læknisfræðilegar ráðstafanir. Stefnt er að því að aðgerðum sé að mestu lokið áður en barn byrjar í skóla. a ð jafnaði fæðist um eitt barn á ári á Íslandi af óræðu kyni. „Stundum fæðast þrjú og stundum ekk- ert. Þetta er mjög breytilegt,“ segir Ragnar Bjarnason, yfir- læknir barnalækninga á Land- spítalanum. Afar mismunandi er hvernig kynfæri þessara barna eru þegar þau fæðast. „Það er eins breytilegt og börnin eru mörg. Stundum fæðast stúlkur með typpi og pung því það hefur verið of mikil testosterónfram- leiðsla á meðgöngunni. Þær eru þá ekki með sjáanlega leggangaop en með með innri kynfæri stúlku. Allt er tekið með í ákvarðana töku um kyn svo sem útlit kyn- færa, litningar og hormónastaða. Það er alltaf stefnt að því að taka þá ákvörðun sem fyrst,“ segir Ragnar. Í vikunni bárust þær fregnir frá Þýska- landi að foreldrar geti sleppt því að fylla út kyn á fæðingarvottorði barns ef um órætt kyn er að ræða. Slíkt hið sama hefur verið gert í Ástralíu og málið rætt í nokkrum Evrópulöndum. Ragnari finnst þetta held- ur undarleg leið. „Þetta hljómar kannski vel í fyrstu en í raun er kannski verið að tala um að barnið er orðið 12, 13 ára þegar það á sjálft að ákveða af hvoru kyninu það er.“ Barnið hefur þá vaxið úr grasi með óræð kynfæri og ekki getað samsamað sig með öðru hvoru kyninu og telur Ragnar það geta haft alvarlega sálræna erfiðleika í för með sér. „Í þjóðfélaginu ertu annað hvort strákur eða stelpa. Það er stefna fag- fólks og það hjálpar foreldrum að taka sem besta ákvörðun. Ungbarn getur auðvitað ekki verið með í ákvarðanatöku en reynt er að taka sem besta ákvörðun fyrir hvern einstakling,“ segir Ragnar. Hann bendir á að í umræðu um kyn- leiðréttingar fullorðinna hafi stundum verið talið að þar sé um að ræða börn sem fæddust af óræðu kyni og að „rangt“ kyn hafi verið valið fyrir barnið. Ragnar segir þetta af og frá. „Það hefur einfaldlega ekki sýnt sig. Það eru ekki þessi börn sem fara í kynleið- réttingarferli síðar.“ Fyrsta spurningin sem nýbakaðir foreldrar fá er iðu- lega hvort barnið sé drengur eða stúlka og getur það verið mikið áfall fyrir foreldra þegar barnið er af óræðu kyni. Dæmi eru þá um að foreldrar þurfi sálrænan stuðning frá sálfræðingum eða presti. Ragnar segir barnalækna einnig vera að fást við áfalla- hjálp í sínu starfi og meta þurfi hverju sinni hvaða aðili sé best fallinn til að veita þá hjálp. „Það skiptir líka miklu máli fyrir foreldra að komast sem fyrst að niður- stöðu um hvaða kyn barnið verður og hefja vinnu við það. Það er aldrei ákvörðun eins læknis heldur hópur fagfólks og fjöl- skyldu barnsins.“ Hann segir mikilvægast að grafast fyrir um orsakir þess að barnið er af óræðu kyni. „Áður fyrr var spurning um hvað væri auðveldast að gera skurð- tæknilega séð en nú er hægt að gera mjög mikið. Inn í þetta kemur samt líka hvernig innri kynfæri eru. Stefnan er að leiðrétt- ingarferlið sé komið langt á veg áður en börn byrja í skóla. Sumar aðgerðir eru gerðar strax fyrsta árið,“ segir Ragnar. „Það sem skiptir mestu máli með svona mikilvæga hluti er að flýta sér hægt og að allir fletir séu skoðaðir áður en endanleg ákvörðun er tekin.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Allt er tekið með í ákvarðanatöku um kyn svo sem útlit kynfæra, litningar og hormónastaða. Myndir/NordicPhotos/Getty Ragnar Bjarnason, yfirlæknir barnalækn­ inga á Landspítalanum. Bandaríski predikarinn Franklin Graham er þekktur fyrir andúð sína á samkyn­ hneigðum og mús­ limum.  trúmál Þátttaka á Hátíð vonar Biskup enn að hugsa málið og úrsögnum fjölgar Hátíð vonar fer fram helgina 28. til 29. september og kom fram í dagskrá hátíðarinnar að biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, myndi halda þar erindi. Á dagskránni er einnig erindi frá predikaranum Franklin Graham, sem þekktur er fyrir andúð sína í garð samkynhneigðra og múslima. Þátttaka biskups á hátíðinni og fyrirhuguð koma predikarans kallaði á hörð viðbrögð, meðal annars frá formanni Samtakanna 78. Samkvæmt upplýsingum frá Árna Svani Daníelssyni, fjölmiðlafulltrúa Biskupsstofu, hefur biskup ekki enn tekið ákvörðun um þátttöku sína á hátíð- inni. Á síðu hátíðarinnar segir að hún sé samstarfsverkefni Billy Graham Evan- gelistic Association, sem kennd eru við föður Franklin Graham, og þverkirkju- legrar samstarfshreyfingar á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá hafa hundrað fimmtíu og fimm skráð sig úr Þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. til 20. ágúst en til samanburðar hundrað þrjátíu og tveir allan júlímánuð. Á und- anförnum árum hefur sóknarbörnum Þjóðkirkjunnar farið fækkandi en frá árinu 2011 hefur þeim fækkað um tvö þúsund sextíu og einn. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@ frettatiminn.is SKB fær spjaldtölvur Í vikunni færði verslunin Epli.is Styrktar­ félagi krabbameinssjúkra barna tvær spjaldtölvur að gjöf sem félagið mun ráðstafa til barna í krabbameinsmeðferð. Að sögn Rósu Guðbjartsdóttur, formanns styrktarfélagsins, er gott að geta boðið börnum sem greinast með krabbamein að stytta sér stundir eða stunda nám sitt með spjaldtölvu við hönd á meðan á löngum og ströngum meðferðum stendur. „Við erum mjög þakklát fyrir þennan hlýhug til okkar barna,” segir hún. ­dhe Hollvinir RÚV krefja ráðherra svara Stjórn Hollvina Ríkisútvarpsins sendi í gær bréf til Illuga Gunnarssonar mennta­ málaráðherra þar sem hann er krafinn svara við ýmsum spurningum er snúa að ríkisfjölmiðlinum. Afrit bréfsins var sent til fjölmiðla en í því kemur fram að spurn­ ingarnar séu lagðar fram í ljósi ummæla ýmissa ráðamanna um Ríkisútvarpið að undanförnu. Meðal þeirra spurninga sem Hollvinir RÚV krefja ráðherrann svara við eru hvort hann sé sammála þeim fullyrðingum ýmissa alþingismanna að núverandi starfs­ menn RÚV séu upp til hópa vinstrisinnaðir og hafi þau markmið með störfum sínum að ófrægja og/eða klekkja á núverandi stjórnvöldum. Undir bréfið skrifa þau Þor­ grímur Gestsson, Valgeir Sigurðsson, Viðar Hreinsson, Ragnheiður Tryggvadóttir og Þór Magnússon. -dhe 57% verðmunur á skólabókum Allt að 57% munur mældist á verði skóla­ bóka framhaldsskólanemenda í bókaversl­ unum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt könnun ASÍ. Farið var í sex verslanir. Níu titlar af 32 voru ódýrastir í Forlaginu og A4. Bóka­ búðin IÐNÚ var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum eða á 17 titlum af 32. Mestur verðmunur var á „Íslands­ og mannkynnsisaga NB II: Frá lokum 18 aldar til aldamóta 2000“. Hún var dýrust á 4.990 kr. hjá IÐNÚ en ódýrust á 3.180 kr. hjá Forlaginu. Munurinn er 1.810 kr. eða eða 57%. Sami hlutfallslegi munur var á verði bókarinnar „Setningafræði handa framhaldsskólum“ sem var dýrust hjá IÐNÚ en ódýrust hjá Griffli. 14% landsmanna treysta Alþingi Einungis 14% landsmanna bera traust til Alþingis samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Alþingi. Af þeim bera 12% frekar mikið traust til þingsins en einungis 2% segjast bera mjög mikið traust til Alþingis. 76% svarenda sögðust hins vegar bera lítið eða alls ekkert traust til þingsins. Af þeim bera 16% ekkert traust til þingsins, 37% frekar lítið traust en 23% mjög lítið traust. 10% svarenda svöruðu því til að þeir bæru hvorki mikið né lítið traust til Alþingis. 72% þeirra sem svöruðu sögðu að vantraustið beindist að vinnulagi þingmanna; fólki þykir forgangsröðun þingsins röng. Þingmenn hlusti ekki á almenning og séu ekki í nægum tengslum við fólkið í landinu. Vinnulag þingsins einkennist af aðgerða­ og getu­ leysi þingmanna til að fylgja málum eftir og klára þau. Þá kom fram að umræða á Alþingi væri ómálefnaleg, mikið væri um málþóf og ómarkvissar og sundurlausar umræður. 2 fréttir Helgin 23.­25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.