Fréttatíminn - 23.08.2013, Page 8
Ö ll framleiðsla á íslenskum minkaskinnum er send út á markað. Það er kannski einstaka flík hér á landi sem framleidd er úr íslensku skinni en
það heyrir til undantekninga,“ segir Björn Halldórsson,
stjórnarformaður Sambands íslenskra loðdýrabænda.
Skinn íslenskra minkabænda eru seld í uppboðshúsi í
Kaupmanannhöfn. Þar eru haldin uppboð fimm sinnum á
ári og á þau mæta kaupendur hvaðanæva að úr heiminum.
Fyrir uppboðin eru skinnin flokkuð eftir lit, áferð og kyni
og í nokkra daga fyrir uppboð gefst kaupendum tækifæri
til að skoða og meta skinnin.
Eggert Jóhannsson feldskeri, notar minkaskinn af
þessum markaði. „Ég nota skandinavísk skinn svo
það getur verið að hluti þeirra sé íslensk skinn.
Við hérna notum reyndar mikið af lambskinni
og roði en þegar við notum minkaskinn er það
að hluta til íslenskt og að hluta til frá öðrum
löndum. Með þessu móti er hægt að kaupa
vel flokkuð skinn og þá gerist það ekki
að maður kaupi skinn sem passa ekki
saman. „Að sögn Eggerts er skinn-
unum blandað saman í uppboðshús-
unum svo erfitt getur verið að rekja
uppruna þeirra en séu uppi sérstak-
ar óskir um slíkt sé það gerlegt.
„Þá þarf að passa upp á það frá byrj-
un ferlisins en við vinnslu þarf að
taka öll merki af,“ segir Eggert sem
reynir núna þegar verðið er svo hátt
að vinna frekar úr þeim skinnum sem
fyrir eru á lager. „Ég reyni að kaupa
eins lítið og ég get núna því verðið er
svo hátt. Íslenskir minkabændur hafa
unnið vel á undanförnum árum og upp-
skera samkvæmt því núna. “
Í sama streng tekur Heiðar Sigurðsson,
feldskeri og eigandi fyrirtækisins Feldur
verkstæði. „Ég kaupi skinn á uppboðum í
Danmörku og Helsinki í samstarfi við aðra
feldskera. Við kaupum saman góðan slatta og
svo fæ ég hluta. Skinnin eru svo sútuð í sérhæfð-
um sútunarverksmiðjum víða um Evrópu. Verðið
á íslenskum minkaskinnum er mjög hátt núna enda
hefur verið vel að ræktuninni staðið hér og íslenskar
aðstæður, svo sem loftslag og veðurfar, henta einstak-
lega vel til minkaræktunar. Sumar þjóðir eiga svarta-
gull en minkaræktin gæti orðið okkar feldsgull."
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Loðdýrarækt ísLensk skinn bLandast Öðrum í uppboðshúsi
Íslensk framleiðsla úr
innfluttum skinnum
Öll þau minkaskinn sem framleidd eru á Íslandi eru flutt út og seld á uppboði í Kaupmannahöfn.
Þar blandast þau öðrum skinnum í sama flokki svo uppruni þeirra er ekki rekjanlegur. Íslenskir
feldskerar kaupa skinn á þessum mörkuðum svo framleiðsla úr minkaskinni hér á landi er ekki
alfarið úr íslenskum skinnum.
Íslensk minkaskinn blandast skinnum frá
öðrum löndum í uppboðshúsi í Kaupmannahöfn
svo erfitt getur verið að rekja upprunann.
Fiðluleikur til
styrktar UNICEF
Ágústa Dómhildur Karlsdóttir, sextán
ára fiðluleikari, mun halda þriggja tíma
tónleika undir berum himni á menn-
ingarnótt og safna fé sem mun renna
óskipt til UNICEF á Íslandi. Tónleikarnir
verða við hlið bókabúðar Eymunds-
son við Skólavörðustíg og standa frá
klukkan 15:00 til 18:00. Á dagskránni
verða vinsælar dægurlagaperlur á borð
við Dagnýju og Kostervalsinn í bland
við létt, klassísk tónverk. Tónleikarnir
verða fjórðu söfnunartónleikar Ágústu
en á Menningarnótt árið 2011 safnaði
hún rúmum 106.000 krónum sem
runnu til UNICEF. -dhe
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
15%
afsláttur
Afslátturinn gildir út ágúst.
Mjög bragðgott glútenlaust og sykurlaust brauðmix!
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
8 fréttir Helgin 23.-25. ágúst 2013