Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 76

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 76
Staðalbúnaður Ég er rosa hrifin af leggings og kjól- um yfir eða skyrtum. Ég er eiginlega algert skyrtufrík. Maður er auðvitað í fótbolta þannig að rassinn og lærin vinna ekki alltaf með manni. En mér finnst gaman að vera í flottum fötum og ég sakna þess pínu að búa í Boston þar sem maður gat keypt sér flott föt fyrir lítinn pening, allt í boði LÍN. Nú kaupi ég mikið af fötum á netinu og uppáhalds síðan mín er Asos. Svo held ég líka upp á Monki, maður fer auðvitað alltaf í H&M og sömuleiðis American Apparel, þó ég fíli ekki „reppið“ þeirra undan- farið. Ég elska að vera á hælum og á nokkur pör af Jeffrey Camp- bell-skóm en ég á enn eftir að láta drauminn rætast og fá mér KronKron-skó. Uppáhaldsflíkin mín er Spaks- manns- spjara- hettan sem kæró gaf mér. Hún fer aldrei langt frá mér. Hugbúnaður Ég fer nú ekki mikið niður í bæ leng- ur enda var ég kölluð „Milf“ síðast þegar ég fór á djammið. Þá fattaði ég að ég dró meðalaldurinn aðeins upp. Mér finnst samt gaman að fara út þegar tilefni er til. Þegar ég er með fótboltastelpunum á tjúttinu enda ég alltaf á b5 og er næstum komin með ofnæmi fyrir því. Ég hef sjálf verið rosa hrifin af Lebowski enda fæ ég þar uppáhalds drykkinn minn, White Russian. Ég er sjúk í sjónvarp svo það er ekki skrítið að maður hafi endað í þessum geira. Núna er ég að horfa á The Newsroom sem eru æði og Suits, en ég held að það sé bara af því aðalleikarinn er svo heitur og svo finnst mér The Killing geðveikir. Svo er ég með Sex and the City sjúkdóm á háu stigi. Það er alveg sama hvað ég horfi oft á þá, mér finnst alltaf eins og ég sé að fá vini mína í heim- sókn. Ég hef líka alltaf sýnt Greys Anatomy mikla tryggð og ég elska New Girl, Parks and Recreation og Modern Family. Vélbúnaður Ég er nokkuð vel græjuð út af náminu mínu, er með Macbook-tölvu með klippiforritum og Canon T3-mynda- vél. Svo er ég bara með i Phone. Ég hef drepið allt sem er grænt heima hjá mér en mér hefur tekist að passa vel upp á hann sem gefur mér von um að ég geti orðið ágætis móðir. Ég nota Mirrors og Shazam, Instagram og auðvitað Face book en ég hef aldrei gefið Twitt er séns. Svo er ég Pinterest-sjúk. Aukabúnaður Ég er mega nörd í eldhúsinu og hef verið að elda síðan ég man eftir mér. Einu bækurnar sem ég fæ eru mat- reiðslubækur. Við kærastinn eigum þetta sameiginlegt, nördumst saman yfir matreiðsluþáttum á YouTube og prófum svo að elda. Mér finnst líka æðislegt að fara út að borða og prófa nýja staði. Ég fór til dæmis á eþíópískan stað á Flúðum um daginn og það var skemmtileg ævintýraferð, ég hef ekki hætt að hugsa um það síðan. Mér finnst „ethnic“-matur ótrúlega skemmtilegur. Drauma- bíllinn minn var alltaf Lada Sport en sá draumur hefur ekki ræst. Ég keyri um á bleiku drossíunni sem ég keypti af afa mínum árið 2008 og við höfum gengið í gegnum súrt og sætt saman. Í þessum töluðu orðum er hún með teip á rassinum en hún er samt flottust. Ég hef alltaf stefnt að því að ferðast á framandi staði og nú stefnum við kærastinn á Mið-Am- eríkureisu á næstunni. Í nóvember er ég að fara til Parísar og held ég að Boston verði mér alltaf mjög kær. Ég ímynda mér að ég eigi eftir að fara oft þangað í framtíðinni.  Í takt við tÍmann Greta mjöll SamúelSdóttir Rassinn og lærin vinna ekki alltaf með mér Greta Mjöll Samúelsdóttir er 25 ára fyrirliði knattspyrnuliðs Breiðabliks sem mætir Þór/KA í úrslitum Borgunarbikarsins um helgina. Greta lauk meistaraprófi í stafrænni fjölmiðlun frá Northeastern háskólanum í Boston í vor og starfar nú í tæknibrellu- deildinni í Latabæ. Hún horfir á Sex and the City og drekkur White Russian. Greta Mjöll þykir hörku söngkona. Hún og Hólmfríður systir hennar mynda dúettinn SamSam sem sendi á dögunum frá sér lagið House. Ljósmynd/Hari  appafenGur Google Maps Ég hef reglulega notað Maps-appið sem fylgdi með iPhone-inum til að rata þegar ég heimsæki fólk í Norðlingaholti eða Salahverfinu í Kópavogi. Eftir óvissuferð í dýragarðinn Slakka skipti ég því appi hins vegar út fyrir Google Maps. Þetta byrjaði allt sem sakleysisleg ferð tveggja mæðra með þrjár dætur. Við ákváðum að fara á bíl vinkonu minnar og ég gerði því ráð fyrir að hún rataði. Ég kíkti samt til öryggis á Netið áður en ég fór út, fann ekkert kort á vef Slakka en komst að því að hann var við Laug- arás og ákvað að það nægði mér því eflaust væru skilti um allt sem á stæði: Laugarás. Í ljós kom að við vinkonurnar áttum það sam- eiginlegt að hafa ekki snefil af rat- vísi, hún rataði alls ekki í Slakka og það stóð ekki Laugarás á neinum skiltum. Ég dró fram dýra iPhone-inn og reyndi að finna Laugarás og Slakka í Maps en ekkert gekk. Eft- ir að við vorum orðnar rammvillt- ar fengum við þá snjöllu hugmynd að prófa að leita í Google Maps í Samsung-sím- anum hennar. Viti menn! Appið sýndi okkur ná- kvæmlega hvert för okkar var heitið og innan tíðar komumst við heilar á höldnu með stúlkubörnin þrjú í dýra- garðinn. Mitt fyrsta verk þegar heim var komið var að sækja Google Maps. Já, svo segir appið þér hvað þú ert lengi að aka eða ganga á milli staða. Full- komið! Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 76 dægurmál Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.