Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 23.08.2013, Blaðsíða 26
Þú getur rétt ímyndað þér að þetta var ekki skemmtilegt, fastur í Aust- ur-London í óveðri og fá ekki að spila. Ég hélt meira að segja jólin inni á þessu hótel- herbergi. Aleinn. Það var heldur betur eftir- minnilegt. Þ essi ferill minn er búinn að vera hálfgerð rússíbanareið. Ég náði ekki að festa mig í sessi neins staðar fyrr en ég kom til Hol- lands. Það var besta ákvörðun lífs míns að koma hingað,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson knattspyrnumaður. Guðlaugur Victor spilar með NEC í hollensku úrvalsdeildinni og þykir hafa staðið sig með miklum ágætum síðan hann kom til liðsins fyrir ári síðan. Hann hefur verið fastamaður á miðjunni hjá NEC og þó gengi liðsins hafi ekki verið upp á marga fiska hefur hann staðið fyrir sínu. Reyndar hefur gengi liðsins verið það slæmt að þjálfara þess, Alex Pastoor, var sagt upp störfum á dögunum. Pastoor þessi fékk Guðlaug til liðsins og því liggur beint við að spyrja hvort brotthvarf hans breyti ein- hverju um stöðu Guðlaugs. „Það er búið að vera mikið rugl í kring- um boltann og gengið liðsins en ég reikna nú ekki með því að þetta breyti neinu fyrir mig. Mér líður rosalega vel hérna og hjá liðinu. Hann var náttúrlega stór hluti af ástæðu þess að mér leið vel hérna og það er erfitt að sjá hann fara. Ég á þetta tímabil og tvö ár í viðbót eftir af samningnum mínum og gæti alveg hugsað mér að vera hérna út samninginn.“ Var markamaskína í yngri flokkunum Guðlaugur ólst upp í Grafarvoginum og spilaði með Fjölni í yngri flokkunum. Hann skipti yfir í Fylki og var seldur þaðan í AGF í Danmörku. Eftir eins og hálfs árs veru í Árósum flutti hann sig yfir til Liverpool og lék með varaliði liðsins í tvö ár. Þá samdi hann við skoska liðið Hibs. Athyglisverð- ustu félagsskiptin voru án alls efa þegar Guðlaugur flutti sig vestur um haf og lék um stutta hríð með New York Red Bulls. Þaðan fór hann svo til NEC. Þú spilar sem varnarsinnaður miðju- maður. Það hefur ekki alltaf verið þín staða, er það nokkuð? Margir muna til að mynda eftir þér í hægri bakverði með 21 árs lands- liðinu. „Ég spila núna á miðjunni og er frekar varnarsinnaður en þegar ég var yngri, áður en ég fór til AGF, þá var ég sóknarmaður. Ég var algjör markamaskína. Þjálfarinn hjá AGF fór að prófa mig á miðjunni þegar hann sé að ég hafði hæð og styrk og gat skallað, djöflast og tæklað. Á fyrra tíma- bilinu hjá Liverpool var ég á miðjunni en því seinna í miðverðinum. Ég var valinn í æfingaferð með aðalliðinu fyrir seinna tímabilið sem miðvörður. Hjá Hibs byrjaði ég á miðjunni, fór svo í miðvörð og svo í hægri bakvörð. 21 árs landsliðið prófaði mig svo þar. Þegar ég fór til New York var ég sóttur sem miðjumaður. En þegar Tim Cahill kom til Red Bulls þá vissi ég að ég væri ekki að fara að spila.“ Sér ekki eftir tímanum í New York Dvölin hjá New York Red Bulls var ekki löng. Aðeins hálft ár leið frá komu Guð- laugs þangað þar til hann fór til NEC. „Það voru stór nöfn í liðinu og þetta var öðruvísi. Ég ákvað bara að kýla á þetta þó ég vissi að þetta gæti farið svona. Ég sé ekki eftir því. Ef ég hefði ekki farið þangað þá væri ég ekki það sem ég er í dag. Það verður líka að horfa á að það sem mér stóð til boða þá voru lið í fjórðu og þriðju deild á Englandi og eitthvað í Skandinavíu. Ég fékk ekki að spila nógu mikið en það var skemmtilegt upplifun að prófa þetta.“ Guðlaugur fellst á það að ferill hans þangað til hann kom til NEC hafi verið upp og ofan. Hann bendir samt á að það geti verið stutt á milli hláturs og gráts í fótbolt- anum. „Það lítur auðvitað ekki vel út að vera 22 ára og vera búinn að spila í fimm löndum. Ég er að vísu ekki hrifinn af því að tala um EF en þau eru samt nokkur hjá mér. Ef Roy Hodgson væri enn stjóri Liverpool væri ég kannski þar enn og ef Colin Calderwood væri enn hjá Hibs...“ Tvö íslensk húðflúr á líkamanum Guðlaugur Victor lék með yngri landslið- um Íslands en hefur ekki enn leikið fyrir A- landsliðið. Hann vonast til að það breytist. „Að sjálfsögðu er það mitt markmið og mun alltaf vera. Ég lék í öllum unglinga- landsliðunum og er alltaf jafn stoltur af því að spila fyrir Íslands hönd. Ég fékk smá smjörþef á móti Rússum á Marbella þegar ég var valinn. Ég fékk ekki fyrsta leikinn þá en eftir að hafa prófað þetta einu sinni þá vill maður þetta alltaf. Ég verð bara að halda áfram að standa mig vel hér og von- andi kemur þá kallið.“ Þú átt portúgalskan pabba. Þú hefur ekki íhugað að fara svipaða leið og Aron vinur þinn Jóhannsson? „Nei. Ég er með tvö íslensk tattú á líkam- anum, skjaldarmerkið og útlínur landsins. Ég held að það sé ekki að fara að gerast,“ segir hann og hlær við. Það lítur ekki vel út að vera 22 ára og búinn að spila í fimm löndum, segir knatt- spyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson. Eftir mikið flakk og rótleysi er hann loksins búinn að finna fjölina sína hjá NEC í Hollandi og hefur komið sér vel fyrir. Fréttatíminn ræddi við Guðlaug um tíð vistaskipti, portúgalskan pabba hans og fósturpabba hans sem studdi alltaf við bakið á honum og hjálpaði honum að komast á þann stað sem hann er á í dag. Farandverka- maðurinn festir sig loks í sessi Framhald á næstu opnu Fótboltamaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur komið sér vel fyrir í Nijmegen í Hol- landi. Þar hefur honum gengið vel með úrvals- deildarliðinu NEC. – fyrst og fre mst ódýr! Skólatöskurmargar gerðir v 2 lítrar 198kr.stk. Verð áður 379 kr. stk. Happy Day ávaxtasafi, Appelsínu-, epla- og fj ölvítamínsafi 45%afsláttur Hámark 12 stk. á mann meðan birgðir endast! Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t KjúKlingamáltíð fyrir 4 Grillaður kjúklingur – heill Franskar kartöflur – 500 g Kjúklingasósa – heit, 150 g Coke – 2 lítrar* *Coca-Cola, Coke Light eða Coke Zero 1990,- Verð aðeins + 1 flaska af 2 L Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili · Tekur venjulegt GSM SIM kort · Hægt að panta mynd eða hlusta svæði. · SMS og MMS viðvörun í síma og netf. · Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist. · Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara. · Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o.. S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is 26 viðtal Helgin 23.-25. ágúst 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.